Morgunblaðið - 02.03.2021, Síða 24

Morgunblaðið - 02.03.2021, Síða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021 60 ára Gunnhild fæddist á Flateyri og ólst þar upp til níu ára aldurs en síðan í Reykjavík og býr þar. Hún er rekstrarfræðingur frá Tækniskóla Ís- lands og er gæða- og skjalastjóri hjá Tækniskólanum. Synir: Rubin Pollock, f. 1990, og Ólafur Jarl Pálsson Øyahals, f. 1994. Foreldrar: Hulda Hatlemark, f. 1938 í Sykkylven á Suður-Mæri í Noregi en er hálfíslensk, húsmóðir, búsett í Reykjavík, og Olav Øyahals, f. 1938 í Namdalen í Þrændalögum í Noregi, d. 2015, vélstjóri. Gunnhild Hatlemark Øyahals Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Hafðu ekki áhyggjur þó ferðaáætl- anir þínar eða áætlanir sem tengjast námi líti ekki nógu vel út. Taktu það rólega og komdu jafnvægi á sjálfan þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er til mikils ætlast af þér í vinnunni og þú þarft að leggja þig allan fram. Víkkaðu út sjóndeildarhring þinn því þá muntu sjá málið í öðru ljósi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Misstu ekki sjónar á hlutunum því áður en þú veist eru þeir horfnir og jafnvel fyrir fullt og allt. Leggðu drög að því að kom- ast í gott ferðalag. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Hikaðu ekki við að þiggja hjálp sam- starfsmanna þinna þegar hún er boðin fram af góðum hug. Gættu þess þó að sum mál eru alls ekki ætluð öðrum, þótt góðir séu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Leggðu þig fram um að sýna öðrum umhyggju í dag. Svona tækifæri gefast ekki oft og nýttu því daginn til hins ýtrasta. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú myndir elska ef allir hefðu sömu markmið og þú: samhljóm og frið. Ekki snuða sjálfan þig bara til þess eins að vera kurteis. 23. sept. - 22. okt.  Vog Láttu ekki hugfallast þótt þér finnist umbun erfiðis þíns láta á sér standa. Vin- urinn sem um ræðir er ekki vammlaus, en ekki heldur svo slæmur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur vald yfir einhverju sem þú telur þig ekki hafa neina stjórn á. Mundu bara að ábyrgð fylgir orði hverju og þá er þér ekkert að vanbúnaði. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Margir taka fjölskyldum okkar sem sjálfgefnum hlut. Ekki halda aftur af þér því aðrir eru tilbúnir að hlusta á framlag þitt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Með aðgæslu í fjármálum ætti ykkur að takast að ná settu marki fyrr en þið ráðgerðuð í upphafi. Allir verða að gefa eitt- hvað eftir til þess að samkomulag náist. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert kominn í tímaþröng og hefur ekki efni á að vera kærulaus. Hafðu þetta hugfast þegar þú ráðstafar tíma þín- um. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert nú loksins að uppskera árang- ur erfiðis þíns og ert svo sannarlega vel að því kominn. Sýndu ákveðni en vertu varkár um leið. félagi i Rótarýklúbbnum Reykjavík- Miðborg. Áhugamál Helga eru einkum á sviði lista og menningar, og þá sér- staklega bókmenntir, tónlist og myndlist. „Árið 1992 var ég kallaður til setu í stjórn Kammermúsík- klúbbsins og hef verið formaður hans frá 2014. Við erum eiginlega að halda listahátíð núna í lok vetrar, með fern- um tónleikum fjóra sunnudaga í röð, keppni, bæði um skipulag, byggingar eða listaverk og hlotið viður- kenningar, m.a. fyrir tillögur að úti- listaverkum við Sigöldu, Flugstöð Leifs Eiríkssonar o.fl.“ Helgi hefur gegnt ýmsum trún- aðarstörfum fyrir Arkitektafélag Ís- lands, var formaður félagsins List- iðnar 1975-76, stjórnarformaður Rannsóknastofnunar byggingariðn- aðarins 1990-98 og enn fremur stofn- H elgi Hafliðason fæddist 2. mars 1941 á Siglu- firði og ólst þar upp. „Sem barn var ég hluta úr tveimur sumrum í sveit og vann ýmis störf í sumarleyfum, m.a. í banka, á síldar- söltunarstöðvum á Siglufirði og bygg- ingarvinnu á Siglufirði og Seyðis- firði.“ Eftir almenna skólagöngu og landspróf var Helgi einn vetur í Verzlunarskóla Íslands, fór síðan í Menntaskólann á Akureyri og lauk stúdentsprófi þaðan vorið 1960. Hann hélt svo til náms í arkitektúr í Tækni- háskólanum í Niðarósi (Norges Tekniske Høgskole) og lauk þaðan prófi 1965. „Að loknu náminu í Nor- egi settumst við hjónin að í Reykjavík og höfum búið þar síðan.“ Fyrstu árin eftir námið vann Helgi á Teiknistofu Stefáns Jónssonar og Reynis Vilhjálmssonar og fékkst þar við ýmis verkefni, m.a. skipulag í Reykjavík og á Sauðárkróki. Frá 1973 hefur hann starfað sjálfstætt og unnið að ýmsum verkefnum, ýmist einn eða í félagi við aðra, t.d. skipu- lagi á Húsavík með Reyni Vilhjálms- syni landslagsarkitekt. „Meðan einingaverksmiðjan Hús- einingar hf. var starfandi vann ég að þróun byggingareininganna og teikn- aði allmörg hús sem reist voru úr þeim. Af öðrum verkum mætti helst nefna sýsluskrifstofur og lögreglu- stöð á Siglufirði og Eskifirði, dvalar- heimilið Skálarhlíð á Siglufirði, við- byggingu við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á sama stað, stækkun búningsklefa við Sundlaug Húsavík- ur, gróðurhús fyrir Lambhaga í Reykjavík og Mosfellsdal, aðveitu- stöðvar fyrir Rarik víða um land auk nokkurra einbýlis- og raðhúsa. Árið 1968 sendi ég inn tillögu að Evrópufrímerki sem valin var til út- gáfu 1971 og teiknaði einnig síðar nokkur frímerki með brúarmyndum fyrir Póst- og símamálastofnun. Ég hef nokkrum sinnum tekið þátt í sam- en þetta eru tónleikar sem var frestað í vetur og þjappast núna saman. Fyrstu tónleikarnir voru á sunnudag- inn var, þeir tókust mjög vel og meira að segja Móðir jörð tók undir.“ Á tón- leikunum næsta sunnudag verða á efnisskránni píanótríó eftir Beet- hoven og Brahms. Flytjendur eru Sigrún Eðvaldsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir og Domenico Codispoti. Allir tónleikarnir eru haldnir í Norðurljósasal Hörpu. „Ferðalög hafa heillað mig og höf- um við hjónin farið margar ferðir, m.a. með gömlum skólafélögum, bæði innan lands og utan, mest þó með þeim góðu vinum sem við kynntumst í Kramhúsinu en þar hef ég stundað líkamsrækt síðan 1985. Með þeim höfum við farið í stuttar útivistar- ferðir og tekið þátt í mörgum skemmtilegum viðburðum, t.d. dans- Helgi Hafliðason arkitekt – 80 ára Ljósmynd/Gunnar Leifur Jónasson Fjölskyldan 50 ára brúðkaupsafmæli Helga og Margrétar árið 2013. Kammermúsíkklúbburinn heldur listahátíð í Hörpu Með „litlu ljósin“. Amma og afi með Ásgerði Ingu og Kolfinnu Sjöfn, en sú síðarnefnda var ekki fædd þegar fjölskyldumyndin var tekin. Afmælisbarnið Helgi á fornum slóðum í Noregi. 40 ára Ómar er Kefl- víkingur, Hann er með meistaragráðu í fé- lagsfræði við Háskóla Íslands og er í dokt- orsnámi í félagsfræði við HÍ. Ómar er mark- mannsþjálfari hjá Keflavík og fv. markvörður með félaginu. Maki: Elínrós Haraldsdóttir, f. 1981, hár- snyrtimeistari. Börn: Jana Guðlaug, f. 2007, Ari Berg, f. 2009, og Tinni Snær, f. 2018. Foreldrar: Jóhann Gunnarsson, f. 1958 í Hafnarfirði, húsvörður í Reykjaneshöll- inni, og Guðlaug Gunnarsdóttir, f. 1962 í Hnaukum í Álftafirði, hjúkrunarfræðingur á HSS. Þau eru búsett í Keflavík. Ómar Jóhannsson Til hamingju með daginn –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is BÍLA-SÉRBLAÐ BÍLA fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 16. mars 2021BLAÐ Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.