Morgunblaðið - 02.03.2021, Page 25

Morgunblaðið - 02.03.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021 „ÞÚ ERT ÖRLÍTIÐ UNDIR KJÖRÞYNGD. STINGDU ÞESSU Í VASANN.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að gefa óvæntar gjafir. ÞIÐ SEM HÉR ERUÐ LIGGIÐ ÖLL UNDIR GRUN VEGNA HVARFS EFTIRRÉTTARINS! OG VIÐ MUNUM EKKI FARA FYRR EN EN VIÐ VITUM HV– R O O O O O P AFSAKIÐ ÞETTA ÞRENGIR LEITINA EKKERT MÁL! ÉG VEIT AÐ ÉG ER BÚIN AÐ SETJA ÞÉR FYRIR ANSI MÖRG VERKEFNI Í DAG, EN MÉR DUTTU NOKKUR ÖNNUR Í HUG… HVERSU ERFITT GETUR ÞAÐ VERIÐ AÐ HUNSA NOKKUR Í VIÐBÓT? DJÚPT Í REGNSKÓGUM AMAZON LEITAR ÓFEIGUR AÐ UPPLÝSINGUM UM HVERNIG HANN GETUR LIFAÐ AF. atriði á Golden Age Gym Festival í Pesaro á Ítalíu 2018.“ Fjölskylda Eiginkona Helga er Margrét Er- lendsdóttir, f. 6.4. 1942, kennari. Þau eru búsett í Seljahverfi í Reykjavík. Foreldrar Margrétar voru hjónin Margrét S. Tómasdóttir, f. 21.5. 1915, d. 23.3. 1964, húsfreyja, og Erlendur Sigmundsson, f. 5.11. 1916, d. 1.4. 2005, prestur á Seyðisfirði, síðar biskupsritari. Börn Helga og Margrétar eru: 1) Hafliði, f. 8.7. 1964, upplýsingafulltrúi í dómsmálaráðuneytinu, kvæntur Ragnhildi Vigfúsdóttur markþjálfa, f. 12.8. 1959. Dætur þeirra eru Vigdís, f. 17.11. 1995, og Hólmfríður, f. 26.7. 1999; 2) Erlendur, f. 8.9. 1967, sam- eindalíffræðingur, vísindaráðgjafi við viðskiptaháskólann Bedriftsøkon- omisk Institutt í Ósló, kvæntur Krist- ínu Láru Friðjónsdóttur, uppeldis- og sérkennslufræðingi í Ósló, f. 28.7. 1967. Dætur þeirra eru Margrét Ólöf, f. 24.2. 1998, og Friðbjört María, f. 2.1. 2007; 3) Ólöf Huld, f. 26.3. 1974, lyfjafræðingur í Reykjavík, gift Hall- dóri Kristni Júlíussyni, f. 30.7. 1973, hljóðverkfræðingi í Reykjavík. Börn þeirra eru Ófeigur Helgi, f. 25.2. 2004, Bergdís Jóhanna, f. 20.8. 2006, Ás- gerður Inga, f. 23.7. 2012, og Kolfinna Sjöfn, f. 1.8. 2014. Bræður Helga eru Einar, f. 4.9. 1943, byggingarverkfræðingur, fyrrv. forstöðumaður brúardeildar Vegagerðar ríkisins í Reykjavík; Sig- urður, f. 12.2. 1946, fyrrv. útibússtjóri Íslandsbanka á Siglufirði; Ragnar, f. 4.11. 1947, viðskiptafræðingur og endurskoðandi, fyrrv. aðstoðarfor- stjóri Fjármálaeftirlitsins, og Hafliði, f. 23.9. 1953, jarðfræðingur, prófessor við Björgvinjarháskóla. Foreldrar Helga voru hjónin Jóna Sigurveig Einarsdóttir, f. 9.2. 1920, d. 5.12. 2000, húsfreyja á Siglufirði, og Hafliði Helgason, f. 31.8. 1907, d. 8.7. 1980, útibússtjóri Útvegsbanka Ís- lands á Siglufirði. Helgi Hafliðason Hafliði Guðmundsson blikksmiður og hreppstjóri á Siglufirði, f. í Reykjavík Sigríður Pálsdóttir húsfreyja á Siglufirði, f. í Reykjavik Helgi Hafliðason kaupmaður og útgerðarmaður á Siglufirði Sigríður Jónsdóttir húsfreyja á Siglufirði Hafliði Helgason útibússtjóri Útvegsbanka Íslands á Siglufirði Jón Eiríksson bóndi í Hrúthúsum Björg Steinsdóttir húsfreyja í Hrúthúsum í Fljótum Tómas Guðmundsson bóndi á Einifelli í Stafholtstungum Ástrós Sumarliðadóttir húsfreyja á Einifelli Einar Tómasson kolakaupmaður í Reykjavík Ragnhildur Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Jón Einar Jónsson prentari í Reykjavík Sigurveig Guðmundsdóttir húsfreyja og kaupkona í Reykjavík Úr frændgarði Helga Hafliðasonar Jóna Sigurveig Einarsdóttir húsfreyja á Siglufirði Alltaf er gott að rifja upp gaml-ar vísur. Þorsteinn Magn- ússon frá Gilhaga orti: Margan hendir manninn hér meðan lífs er taflið þreytt að hampa því sem ekkert er og aldrei hefur verið neitt. Hallgrímur Pétursson orti: Lukkan hefur sæti sitt sett á norðurljósum, lasta þú ekki ólán þitt þótt aðrir baði í rósum. Jón Þorláksson kvað: Segið mér hvort sannara er að sálin drepi líkamann, eða hitt að svakk með sitt sálinni stundum fargi hann. Brúðguma dreymir nóttina fyr- ir brúðkaupið, að vinur sinn góð- ur, sem var einn boðsgesta en hafði dáið skyndilega, vitji sín og segi: Helltu út úr einum kút ofan í gröf mér búna, beinin mín í brennivín bráðlega langar núna. Konráð Gíslason orti: Hugsað get ég um himin og jörð en hvorugt smíðað – vantar líka efnið í það. Helgi Guðmundsson gaukaði limrukorni að Vísnahorninu: Ég Húsvíking spurði í Hongkong hvort hefði hann gaman af pingpong. Sá ansaði’ að brag(g)ði því aldrei hann þag(g)ði og jarmaði: „Ja, ja og dingdong“. Helgi R. Einarsson yrkir „Nota- gildi jarðhræringa“: Sniðugt, fyrir það fyrsta, sagði við bóndann, Systa. Ég er hér, játast þér og jörðin sér um að hrista. Kristján Karlsson orti: Einhver Sigurjón sunnan úr Garði hafði sest uppi í Vonarskarði. „Margbölvaður dóni ég skal melda þig Jóni,“ sagði melgrasskúfurinn harði. Mælti Sigfús frá Eyvindará, „draug er alltaf gaman að sjá, sé hann vel til fara og verði ekki bara að veruleik eftirá“. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Góðar vísur gamlar og limrur Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 11-16 VÖNDUÐ LJÓS Í ÚRVALI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.