Morgunblaðið - 02.03.2021, Side 26

Morgunblaðið - 02.03.2021, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021 Lengjubikar kvenna A-deild, 1. riðill: Valur – Keflavík........................................ 8:0  Valur 6, Þróttur R. 3, Keflavík 3, Selfoss 3, KR 0, ÍBV 0. England Everton – Southampton.......................... 1:0  Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn og lagði upp sigurmark Everton. Staða efstu liða: Manch. City 26 19 5 2 52:16 62 Manch. Utd 26 14 8 4 53:32 50 Leicester 26 15 4 7 45:30 49 West Ham 26 13 6 7 40:31 45 Chelsea 26 12 8 6 41:25 44 Liverpool 26 12 7 7 47:34 43 Everton 25 13 4 8 38:33 43 Tottenham 25 11 6 8 41:27 39 Aston Villa 24 12 3 9 38:26 39 Holland B-deild: Excelsior – Jong Ajax ............................. 5:1  Elías Már Ómarsson lék fyrstu 77 mín- úturnar með Excelsior. Rúmenía CFR Cluj – Arges..................................... 5:0  Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik- mannahópi CFR. Grikkland Volos – Olympiacos ................................. 1:2  Ögmundur Kristinsson var varamark- vörður Olympiacos. Danmörk SönderjyskE – Lyngby ........................... 1:4  Frederik Schram var varamarkvörður Lyngby. Ítalía B-deild: Venezia – Reggiana ................................ 2:1  Bjarki Steinn Bjarkason var varamaður hjá Venezia og kom ekki við sögu en Óttar Magnús Karlsson er meiddur. Svíþjóð Bikarkeppnin, riðlakeppni: GAIS – Malmö .......................................... 1:0  Arnór Ingvi Traustason kom inn á hjá Malmö á 65. mínútu.  Olísdeild karla Haukar – Grótta ................................... 27:15 Þór – Afturelding ................................. 24:36 Valur – FH ............................................ 33:26 Staðan: Haukar 12 9 1 2 342:290 19 FH 12 7 2 3 353:327 16 ÍBV 13 7 1 5 384:355 15 Selfoss 12 7 1 4 312:297 15 Valur 12 7 1 4 351:327 15 Afturelding 12 7 1 4 312:310 15 KA 12 5 4 3 312:295 14 Stjarnan 12 5 2 5 328:322 12 Fram 12 5 2 5 299:302 12 Grótta 12 3 3 6 285:296 9 Þór Ak. 12 2 0 10 267:322 4 ÍR 13 0 0 13 302:404 0 Grill 66-deild kvenna Grótta – Valur U................................... 22:31 Staðan: Fram U 11 9 0 2 328:264 18 Afturelding 10 7 0 3 243:218 14 Valur U 10 7 0 3 291:247 14 Grótta 11 6 0 5 268:269 12 ÍR 10 6 0 4 249:221 12 HK U 11 6 0 5 291:288 12 Fjölnir-Fylkir 11 3 0 8 251:298 6 Víkingur 11 2 0 9 249:297 4 Selfoss 11 2 0 9 249:317 4   Dominos-deild karla Þór Þ. – Njarðvík.................................. 91:89 Keflavík – Höttur ................................. 93:73 Grindavík – Valur ................................. 97:85 Stjarnan – Tindastóll ........................... 98:93 Staðan: Keflavík 11 9 2 1007:888 18 Þór Þ. 11 8 3 1075:965 16 Stjarnan 11 8 3 1050:972 16 KR 11 7 4 1006:1013 14 Grindavík 11 6 5 971:996 12 Njarðvík 11 5 6 951:963 10 ÍR 11 5 6 970:987 10 Tindastóll 11 5 6 1015:1024 10 Valur 11 4 7 898:936 8 Höttur 11 3 8 961:1034 6 Þór Ak. 10 3 7 876:934 6 Haukar 10 2 8 833:901 4   KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: Sauðárkrókur: Tindastóll – Grindavík 19.15 MG-höllin: Stjarnan – Hamar/Þór...... 19.15 Njarðtaksgryfjan: Njarðvík – ÍR ....... 19.15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Grill 66-deildin: Dalhús: Fjölnir – Selfoss U ...................... 20 Í KVÖLD! KÖRFUBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Keflavík, Þór frá Þorlákshöfn og Stjarnan, þrjú efstu lið Dominos- deildar karla í körfubolta, fögnuðu öll sigri á liðum neðar í töflunni í gærkvöldi. Keflavík er því enn með tveggja stiga forskot á Þór og Stjörnuna á toppnum. KR vann ÍR í gær og er tveimur stigum á eftir Stjörnunni og Þór. Ekki er ólíklegt að liðin sem skipa fjögur efstu sætin sem stendur verði þar til loka deild- arkeppninnar og því með heimavall- arrétt í úrslitakeppninni. Keflavík átti ekki í teljandi vand- ræðum með að vinna 93:73-sigur á Hetti á heimavelli. Keflavík sýndi með sigrinum að tapið gegn Val í síð- ustu umferð var aðeins slys. „Keflvíkingar voru smá tíma að koma sér í gang eftir lands- leikjahléið og framan af leik voru þeir mjög værukærir í sínum leik. Þegar þeir hnykluðu varnarvöðva sína virtust Hattarmenn ekki eiga nokkurn séns í að koma stigum á töfluna. Deane Williams fagnaði þessu kvöldi vel og innilega þar sem fyrstu áhorfendur voru leyfðir aftur til leiks. Williams, líkt og björg- unarsveitirnar í lok árs, setti upp ansi huggulega flugeldasýningu og tróð boltanum með tilþrifum hvað eftir annað í gegnum leikinn. Willi- ams maður leiksins í kvöld með 26 stig,“ skrifaði Skúli B. Sigurðsson m.a. um leikinn á mbl.is. Keflavík hefur leikið fimm leiki á heimavelli, unnið þá alla og er eina liðið með fullt hús stiga á sínum heimavelli. Tveir sigrar, eitt tap Þemað hjá Stjörnunni hingað til á tímabilinu er að vinna tvo leiki í röð og tapa svo þriðja. Það hélt áfram í gær en Stjarnan lagði Tindastól á heimavelli, 98:93, eftir tap gegn KR í síðustu umferð. Eftir glæsilega byrjun hjá Stjörnunni og flott áhlaup hjá Tindastóli í kjölfarið var leikurinn jafn og spennandi, en Stjarnan var alltaf líklegri til að vinna, með reynslumikið og gott lið. Stjarnan er búin að vera við toppinn síðustu ár og kann að landa sigri í jöfnum leikjum. Enginn einn leik- maður skaraði fram úr hjá Stjörn- unni, heldur var um mikla liðs- frammistöðu að ræða. Enginn leikmaður skoraði 20 stig eða meira. Fimm leikmenn skoruðu hins vegar tíu stig eða meira og Hlynur Bær- ingsson skoraði níu. Stjörnuliðið er gríðarlega vel mannað og haldi leik- menn áfram að deila ábyrgðinni líkt og í gær, er Stjarnan líkleg til af- reka. Tindastóll hefur aldrei komist almennilega af stað á leiktíðinni og vantar stöðugleika í Skagfirðinga. Shawn Glover skoraði 29 stig, en þau dugðu skammt. Þór vinnur og vinnur Þór frá Þorlákshöfn heldur áfram að koma á óvart en liðið vann sinn sjöunda leik í síðustu átta er liðið lagði Njarðvík á heimavelli, 91:89. Fáir áttu von á miklum afrekum frá Þórsliðinu í vetur, en það hefur leikið virkilega vel og þrátt fyrir að mun- urinn hafi aðeins verið tvö stig þegar lokaflautið gall, voru Þórsarar með fínt forskot nánast allan leikinn og alltaf líklegri gegn óstöðugu Njarð- víkurliði sem hefur tapað fjórum af síðustu fimm. Hinn 19 ára gamli Styrmir Snær Þrastarson, nýjasti landsliðsmaður Íslands, fór á kost- um og skoraði 19 stig og tók 11 frá- köst. Það er skemmtilegt að sjá ung- an íslenskan leikmann skara fram úr í deild þar sem erlendir leikmenn stela oftar en ekki senunni. Larry Thomas skoraði 20 stig fyrir Þór, en Styrmir var með flesta framlags- punkta, eða 23. Þórsarar ætla sér að vera í toppbaráttunni allt til loka. Áfram vonbrigði hjá Val Eftir fimm tapleiki í síðustu sex fögnuðu Grindvíkingar vel er þeir unnu Val, 97:85, á heimavelli. Grindavík var allan tímann með und- irtökin og var sigurinn sannfærandi að lokum. Grindavík er í fimmta sæti með 14 stig, en meiri stöðugleika þarf í Grindavíkurliðið til að stríða liðunum fyrir ofan, þrátt fyrir sig- urinn í gær. Valur heldur áfram að vera mesta vonbrigðalið deild- arinnar. Línur eru að skýrast á báð- um endum  Keflavík áfram á toppnum  Þór á miklu flugi  Heimasigur Stjörnunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Garðabær Skagfirðingurinn Pétur Rúnar Birgisson reynir að stöðva Stjörnumanninn Ægi Þór Steinarsson í leiknum í gærkvöld. var til mikillar fyrirmyndar,“ skrif- aði Gunnar Egill Daníelsson m.a. um leikinn á mbl.is. Afturelding stakk af Líkurnar á að Þór nái að halda sæti sínu í deildinni fara minnkandi með hverjum leik. Tíunda tapið í fyrstu tólf leikjunum leit dagsins ljós á heimavelli í gærkvöld þegar Afturelding kom í heimsókn í Ak- ureyrarhöllina og vann afar örugg- an sigur, 36:24. Fyrri hálfleikur var tiltölulega jafn og staðan 18:15 fyrir Mosfell- inga að honum loknum en Aftureld- ing hreinlega stakk af fjótlega í þeim síðari. „Heimamenn minnkuðu muninn í tvö mörk í upphafi seinni hálfleiks en eftir það sáu þeir varla til sólar. Sóknarleikurinn gekk afar brösug- lega eins og svo oft áður í vetur. Varnarleikur heimamanna gekk einnig illa og Afturelding raðaði inn mörkunum,“ skrifaði Baldvin Kári Magnússon m.a. um leikinn á mbl.is. Blær Hinriksson skoraði 9 mörk fyrir Aftureldingu og Gunnar Malmqvist Þórsson 8. Guðmundur Bragi Ástþórsson átti 11 stoðsend- ingar. Ihor Kopyshynskyi skoraði 6 mörk fyrir Þór og Sigurður Krist- ófer Skjaldarson 5. Skoruðu bara 15 mörk Gróttumenn hafa komið heldur betur á óvart að undanförnu og höfðu lagt Selfyssinga og Framara að velli í tveimur síðustu leikjum. En þeir rákust á vegg á Ásvöllum í gærkvöldi, skoruðu bara fimmtán mörk gegn Haukum og máttu þola stórtap gegn toppliðinu, 27:15. Björgvin Páll Gústavsson var Seltirningum sérstaklega erfiður og var með 56 prósent markvörslu en hann varði þrettán skot, þar af tvö vítaköst. Adam Haukur Baumruk var markahæstur Hauka með 8 mörk en þeir Daníel Örn Griffin, Birgir Steinn Jónsson og Ólafur Brim Stefánsson gerðu 3 mörk hver fyrir Gróttu. Valsmenn komnir á flug  Stungu FH-inga af í seinni hálfleiknum á Hlíðarenda  Afturelding vann tólf marka sigur á Þór fyrir norðan  Stórsigur Hauka og þriggja stiga forysta Morgunblaðið/Árni Sæberg Færi Þorgeir Bjarki Davíðsson Valsmaður reynir að skora hjá Phil Döhler, markverði FH. Þorgeir skoraði fjögur mörk og Döhler varði níu skot. HANDBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Valsmenn hafa heldur betur hrist af sér „slæma kaflann“ sem þeir gengu í gegnum fyrir ekki svo löngu. Þeir fylgdu eftir frábærri frammistöðu gegn Aftureldingu á dögunum með því að skilja FH-inga gjörsamlega eftir í rykinu í seinni hálfleik liðanna á Hlíðarenda í gær- kvöld og þeir unnu leikinn á sann- færandi hátt, 33:26. FH-ingar halda þó öðru sætinu í Olísdeild karla en eru nú þremur stigum á eftir Haukum. Valsmenn lyftu sér upp í fimmta sætið. Tumi Steinn Rúnarsson skoraði 10 mörk fyrir Val og Vignir Stef- ánsson 6 og Martin Nagy varði 18 skot í marki liðsins en hann var með rúmlega 40 prósent markvörslu. Einar Örn Sindrason skoraði 7 mörk og Ágúst Birgisson 5 fyrir FH. „Í síðari hálfleiknum mættu Vals- menn afar ákafir til leiks og tóku fljótt öll völd. Eftir að hafa komist fjórum mörkum yfir, 22:18, litu þeir aldrei til baka. Vörnin stóð vaktina afar vel og Nagy hélt áfram að verja vel á mikilvægum augnablik- um, auk þess sem sóknarleikurinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.