Morgunblaðið - 02.03.2021, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021
» Í Ásmundarsal var
á laugardag opnuð
sýning Eddu Jóns-
dóttur, Hægra/vinstra,
og þá var líka opnuð á
Mokka sýning með
verkum hennar undir
heitinu Vinstra/hægra.
Eru þetta fyrstu sýn-
ingar Eddu síðan 1994
en þá stofnaði hún i8
galleríið. Á sýningunum
eru fjölbreytileg verk
unnin á löngum tíma.
Tvær sýningar á verkum Eddu Jónsdóttur voru opnaðar um helgina
Morgunblaðið/Eggert
Sýningarstjórar Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Auður Jörundsdóttir, Edda og Hildigunnur Birgisdóttir.
Á spjalli Örn Jóhannsson, eiginmaður Eddu, og Sigurður Gísli Pálmason.
Listunnandi Greipur Gíslason skoðar verk Eddu í Ásmundarsal.
Listakonan Edda og Sigurbjörn Þorkelsson ræða málin.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þetta er mikill heiður og frábært
tækifæri,“ segir Íris Björk Gunn-
arsdóttir sem syngur á hádegistón-
leikum í Hafnarborg í dag, þriðju-
dag. „Ég hef oft mætt á þessa
tónleika og vonast til að fá einhvern
tímann símtal með boði um að koma
fram á þeim.“
Og nú kom boðið frá Antoníu Hev-
esi píanóleikara og listrænum
stjórnanda tónleikaraðarinnar, og
það með stuttum fyrirvara – Íris
Björk hljóp í gær í skarðið fyrir Þóru
Einarsdóttur, sem auglýst hafði ver-
ið að kæmi fram en hún forfallaðist.
Dagskrá tónleikanna samanstendur
af aríum eftir Mozart, Puccini, Verdi
og Bizet og gáfu þær Íris og Antonía
efnisskránni heitið Ástarsögur.
Íris Björk hóf söngnám 21 árs
gömul við Söngskóla Sigurðar Dem-
etz. Vorið 2017 lauk hún framhalds-
prófi og nemur nú söng við Lista-
háskólann undir leiðsögn Þóru,
Hönnu Dóru Sturludóttur, Kristins
Sigmundssonar, Ólafar Kolbrúnar
Harðardóttur og Stuarts Skeltons.
Í byrjun árs 2018 hreppti Íris
Björk fyrsta sæti í Vox Domini,
söngkeppni á vegum Félags ís-
lenskra söngkennara. Hún hlaut
einnig titilinn „Rödd ársins 2018“ og
hluti af verðlaunum var að halda tón-
leika í Kaldalóni í Hörpu. Haustið
2019 hélt Íris Björk til Stokkhólms
þar sem hún stundaði nám við Óp-
eruháskólann í eitt ár. Þar söng hún
meðal annars í barnasýningu og á
nýárstónleikum Konunglegu óper-
unnar í Stokkhólmi.
„Sem söngkona er maður alltaf að
æfa sig. Ég er ennþá í námi og alltaf
með einhver verk tilbúin til flutn-
ings,“ segir Íris Björk og bætir við
að það að stökkva með litlum fyrir-
vara inn í tónleikaröðina sé
skemmtileg áskorun. „Og það er
mikill heiður að fá að fylla þetta
stóra skarð Þóru. Hún hefur kennt
mér lengi, ég hef lært mikið af henni
og okkar samstarf hefur alltaf verið
mjög gott.“
Þegar Íris Björk er spurð hvort
hún líkist Þóru eitthvað sem söng-
kona svarar hún að það geti vel ver-
ið, að einhverju leyti. „Við erum jú
báðar sópransöngkonur!“ segir hún
og hlær. „En það á eftir að koma í
ljós hvort ég á eftir að syngja sömu
hlutverk og hún hefur sungið á sín-
um ferli.“
– Bjugguð þið Antonía til nýja efn-
isskrá með þessum litla fyrirvara,
með áherslu á ástarsögur í óperum?
„Já. Við Antonía höfum þekkst í
mörg ár og hún hefur spilað stund-
um með mér í mínu námi. Við völd-
um aríur sem við báðar kunnum og
gátum undirbúið með frekar stuttum
fyrirvara. Og eru ekki allar óperur
ástarsögur?“
– Að minnsta kosti ef þið sópran-
söngkonur eigið í hlut.
„Nákvæmlega! Hvort sem end-
irinn er góður eða ekki. Og hvort
sem þær fjalla um endurgoldna ást
eða ekki.
Þetta eru allt aríur sem ég er með
í bakpokanum.“
Eina af aríunum hefur Íris Björk
undirbúið sérstaklega vel undan-
farna mánuði því hún flutur hana
með Sinfóníuhljómsveit Íslands í maí
næstkomandi eftir að hafa nýlega
borið sigur úr býtum í árlegri keppni
Ungra einleikara. Og fleiri stór-
tónleikar eru fram undan hjá Írisi
því á sunnudaginn kemur syngur
hún sópranhlutverkið í flutningi
Kórs Langholtskirkju á Jóhann-
esarpassíu J.S. Bachs.
„Það er gaman á þessum tímum að
hafa svona margt að stefna að,“ segir
hún en í júní mun hún útskrifast með
bakkalárgráðu frá Listaháskólanum
og stefnir í mastersnám í óperusöng
erlendis næsta haust. „Og ég er
þakklát fyrir að fá yfir höfuð að
koma fram, þar sem við erum á þetta
góðum stað með veirufaraldurinn.
Eftir að hafa ekkert komið fram í
marga mánuði syng ég tvisvar á tón-
leikum í þessari viku og hlakka mikið
til.“
Vegna samkomutakmarkana er
takmarkað sætaframboð á tón-
leikana sem hefjast kl. 12 í dag og
nauðsynlegt er að bóka sæti í síma
585-5790. Þá verður tónleikunum
streymt í beinni útsendingu á netinu,
auk þess sem upptakan verður að-
gengileg áfram að tónleikunum lokn-
um, bæði hér á heimasíðu Hafn-
arborgar og á facebook-síðu
safnsins.
Heiður og frábært tækifæri
Íris Björk Gunnarsdóttir syngur á hádegistónleikum í Hafnarborg Eftir að
hafa ekkert komið fram lengi syngur hún á tvennum ólíkum tónleikum í vikunni
Ljósmynd/Áslaug Íris Friðjónsdóttir
Listakonurnar Íris Björg Gunnarsdóttir sópransöngkona og Antonía
Hevesi píanóleikari eftir æfingu á efnisskránni í Hafnarborg í gær.
Aðkoman að fundarsal öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna í New
York hefur tekið breytingum því
eftir að hafa verið þar til sýnis í
35 ár hefur nær átta metra breitt
veggteppi ofið eftir hinu fræga
stíðsádeiluverki Pablos Picassos,
Guernica, verið tekið niður að
ósk eigendanna, Rockefeller-
fjölskyldunnar, og afhent þeim.
Picasso málaði verkið árið 1935
en auðkýfingurinn og sendiherr-
ann Nelson A. Rockefeller fékk
árið 1955 leyfi frá listamanninum
til að láta vefa teppið eftir að Pi-
casso hafði neitað að selja honum
málverkið sem nú er í Reina
Sofía-safninu í Madríd. Rockefell-
er lánaði Sameinuðu þjóðunum
veggteppið 1984 og var það
frumsýnt þar ári síðar.
Guernica Veggteppið áhrifamikla.
Guernica-vegg-
teppið tekið niður
Vandræðaskáld-
in Sesselía Ólafs-
dóttir og Vil-
hjálmur B.
Bragason halda í
dag, þriðjudag,
kl. 17 til 17.40
fyrirlestur í
Listasafninu á
Akureyri undir
yfirskriftinni
„Að virkja listina
og skáldskapinn til vandræða“. Þar
munu þau fara yfir ferilinn sem
listamenn, samstarf Vandræða-
skálda og gefa almenn heilræði um
að sá vandræðum og óskunda í tali
og tónum.
Vandræðaskáld hafa starfað
saman í rúm 5 ár og vakið mikla at-
hygli fyrir kolsvart skopskyn sitt.
Þau eru bæði í atvinnuleikhópnum
Umskiptingum.
Vilhjálmur
og Sesselía.
Fyrirlestur
Vandræðaskálda