Morgunblaðið - 02.03.2021, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
• Wrong Turn
- The Foundation
• The Little Things
• The Witches
• Wonder Woman 1984
Aðrar myndir
í sýningu:
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
VA R I E T Y C H I C AG O S U N
T I M E S
I N D I E W I R E T H E T E L E G R A P H
FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
frumsýnd 5. mars – forsala hafın
sýnd með íslensKu, ensKu og pólsKu talı
Skáldið og rithöfundurinn Sjón var á
laugardaginn var sæmdur hinni
frönsku heiðursorðu lista og bók-
mennta, L’Ordre des Arts et des
Lettre, sem er ein æðsta viðurkenn-
ing sem veitt er af hálfu hins opinbera
í Frakklandi á sviði menningar og
lista. Er orðan veitt til þess að heiðra
þá sem skara fram úr í list- eða bók-
menntasköpun jafnt í Frakklandi
sem annars staðar.
Sendiherra Frakklands, Graham
Paul, afhenti Sjón orðuna að við-
stöddum vinum og fjölskyldu skálds-
ins.
Sigurjón Birgir Sigurðsson – Sjón
hóf rithöfundarferil sinn ungur sem
ljóðskáld, fyrsta ljóðabók hans, Sýnir,
kom út 1978 en fyrr sama ár gaf hann
út einblöðung með þremur ljóðum.
Sjón var einn af stofnendum súrreal-
istahópsins Medúsu og einn af stofn-
endum útgáfufélagsins Smekkleysu.
Hann hefur sent frá sér fjölda ljóða-
bóka og skáldsögur, hefur skrifað
leikrit og gefið út efni fyrir börn.
Samhliða rithöfundarferlinum hefur
Sjón tekið þátt í myndlistarsýningum
og tónlistarviðburðum af ýmsum
toga. Hann hefur meðal annars starf-
að lengi með Björk.
Tvær ljóðabóka Sjóns hafa verið
þýddar á frönsku, Myrkar fígúrur var
þýdd af Catherine Eyjólfsson og
Gráspörvar og ígulker af Severine-
Daucourt-Friðriksson. Fjórar prósa-
bóka hans verið þýddar á frönsku af
Éric Boury: Skugga-Baldur, Augu
þín sáu mig, Mánasteinn og Dreng-
urinn sem aldrei var til.
Sjón hlaut franska
heiðursorðu
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Orðaður Sendiherra Frakklands, Graham Paul, festi orðuna á Sjón.
Hyllir framúrskarandi listamenn
Ávarp Sjón mælir til gesta sem voru viðstaddir afhendinguna.
Golden Globe-verðlaunin voru af-
hent um helgina og fóru hátíðar-
höldin að stóru leyti fram á netinu
vegna Covid-19. Þau tímamót urðu
hjá Golden Globe í ár að konur voru
í meirihluta tilnefndra kvikmynda-
leikstjóra og hlaut ein þeirra, Chloé
Zhao, verðlaunin fyrir Nomadland
en Zhao er önnur konan í sögu Gol-
den Globe til að hljóta þau verðlaun
og fyrsta konan af asískum upp-
runa. Kvikmyndin hlaut einnig verð-
laun sem sú besta dramatíska.
Tæknilegir örðugleikar komu oft
við sögu, truflanir á netsambandi og
vandræðagangur með Zoom-
netfundaforritið og líkt og oft áður
voru verðlaunin gagnrýnd fyrir
einsleitni þegar kemur að þeim sem
greiða atkvæði, Samtökum erlendra
fjölmiðlamanna í Hollywood, Holly-
wood Foreign Press Association
(HFPA). Af þeim 87 sem greiddu at-
kvæði var enginn þeldökkur og var
það gagnrýnt harðlega á samfélags-
miðlum af þekktum listamönnum á
borð við Ava DuVernay, Shondu
Rhimes, Amy Schumer, Sterling K
Brown og Judd Apatow undir
myllumerkinu #TimesUpGlobes og
með myndefni frá Time’s Up, sam-
tökum í Hollywood sem stofnuð
voru í kjölfar #MeToo-hreyfing-
arinnar og kalla eftir umbótum hjá
HFPA.
Bretar fengsælir
Líkt og svo oft áður voru breskir
listamenn atkvæðamiklir á Golden
Globe í ár. Í flokki sjónvarpsþátta
stóð Netflix-þáttaröðin The Crown
uppi sem sigurvegari, hlaut verð-
laun sem besta dramatíska þátta-
röðin og leikarar úr þáttunum voru
verðlaunaðir, þau Josh O’Connor,
Emma Corrin og Gillian Anderson.
Af öðrum Bretum má nefna að
Daniel Kaluuya hlaut verðlaun sem
besti aukaleikari fyrir leik sinn í Ju-
das and the Black Messiah og John
Boyega hlaut verðlaun sem besti að-
alleikari fyrir leik sinn í einni af
kvikmyndum Small Axe-bálksins
sem RÚV hefur sýnt undanfarið.
Streymisveitan Netflix var at-
kvæðamikil líkt og í fyrra og hlaut
þáttaröðin The Queen’s Gambit
meðal annars verðlaun fyrir bestu
stuttu þáttaröð og Anya Taylor-Joy,
aðalleikkona þáttanna, hlaut einnig
verðlaun.
Cohen spaugar með Trump
Enski grínistinn og leikarinn
Sacha Baron Cohen hlaut verðlaun
fyrir bestu gamanmynd, Borat
Subsequent Moviefilm, og þakkaði
fyrir sig með því að segja að Donald
Trump drægi í efa réttmæti þeirra
úrslita og héldi því fram að margir
látnir einstaklingar hefðu greitt at-
kvæði. Cohen hlaut einnig verðlaun
sem besti aðalleikari í gamanmynd.
Besti aðalleikari í dramatískri
kvikmynd þótti Chadwick Boseman
heitinn fyrir leik sinn í Netflix-
myndinni Ma Rainey’s Black Bott-
om og í flokki kvenna var það Andra
Day fyrir The United States vs Bil-
lie Holiday. Besta aðalleikkona í
gamanmynd þótti hin enska Rosa-
mund Pike fyrir I Care a Lot sem
gagnrýnd var hér í Morgunblaðinu í
gær og hlaut Pike mikið lof í þeirri
rýni.
Kynnar kvöldsins voru gaman-
leikkonurnar Tina Fey og Amy Poe-
hler og skutu þær föstum skotum að
HFPA og einsleitninni í röðum sam-
takanna. Og heiðursverðlaunahafi
kvöldsins, Jane Fonda, hvatti einnig
til fjölbreytni þegar kemur að um-
fjöllunarefnum kvikmynda Holly-
wood. helgisnaer@mbl.is
AFP
Tímamót Chloé Zhao er kínverskur kvikmyndaleikstjóri og fyrsta asíska
konan sem hlýtur leikstjórnarverðlaun Golden Globe-verðlaunanna.
Fyrst asískra kvenna til að
hljóta leikstjórnarverðlaun
Chloé Zhao hlaut Golden Globe fyrir Nomadland
Andra
Day
Sacha Baron
Cohen
Chadwick
Boseman
Rosamund
Pike