Morgunblaðið - 02.03.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.03.2021, Blaðsíða 32
Barítónsöngvarinn Oddur Arnþór Jónsson kemur fram á tónleikum í Salnum í Kópavogi í kvöld kl. 20 ásamt Guðrúnu Dalíu Salómonsdóttur píanóleikara. Flytja þau vinsælan og dáðan ljóðaflokk Róberts Schumanns, Ljóðasveig op. 39, ásamt ljóðaflokkum eftir Hans Pfitz- ner og Richard Strauss. Efnisskráin hverfist um verk ljóðskáldsins Josephs Freiherr von Eichendorff (1788- 1857) sem tónskáldin sömdu lög sín við, en hann var eitt helsta skáld þýsku rómantíkurinnar. Oddur Arnþór og Guðrún Dalía flytja ljóðaflokka í Salnum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Öfl náttúru landsins fara jafnan sínar eigin leiðir. Vísindamanna er að fylgja þeim eftir, lesa í þróun mála og reyna að segja til um fram- vinduna út frá þekkingu. Atburðir síðustu daga á Reykjanesskaganum eru mjög áhugaverðir og þó allir voni auðvitað að ekki verði skemmd- ir af völdum jarðskjálfta eða að eld- gos brjótist út er afar spennandi að mæta á vaktina nú,“ segir Salóme Jórunn Bernharðsdóttir jarðeðlis- fræðingur. Hún er einn náttúruvár- sérfræðinga Veðurstofu Íslands, fólks sem staðið hefur í eldlínunni síðan jarðhræringar í nágrenni Grindavíkur hófust sl. miðvikudag. Allir skjálftar jarðar koma inn á mæla Veðurstofunnar, þar sem upp- lýsingar um þá eru reiknaðar niður í rót og málin greind. Sérfræðingar í náttúruvá, sem eru á sólarhrings- vakt, fylgjast, auk jarðhræringa, með vatnsmagni í ám og vötnum. Einnig er þeirra að gera á þriggja klukkustunda fresti veðurathuganir þar sem meðal annars er lesið af mælitækjum sem standa skammt frá Veðurstofuhúsinu við Bústaða- veginn. Þetta er líka fólkið sem les veðurfregnir í útvarpi. Eldsumbrot ekki útilokuð „Jarðhræringarnar á Reykjanes- skaganum núna eru vegna hreyfinga á jarðflekunum miklu. Auðvitað er ekkert hægt að fullyrða um fram- haldið, en stóran skjálfta í Brenni- steinsfjöllum eða eldsumbrot er ekki hægt að útiloka. Í atburðarás eins og núna er dýrmætt að hafa sérfræð- inga Veðurstofunnar, hvern af sínu sviði, til að lesa í stöðuna, þó sam- vinna sé lykilatriði við aðstæður eins og nú,“ segir Salóme Jórunn, sem hefur starfað á Veðurstofunni frá árinu 2015. Síðustu daga hefur henni aðeins brugðið fyrir í fjölmiðlum en þar hefur hún lýst atburðarás og skjálftavirkni. Þá fræðir hún land- ann um atburði sem allir hafa áhuga á. „Ég var í fríi um helgina og reyndi að kúpla mig frá skjálftavirkninni. Það er því í raun tilhlökkunarefni að koma aftur á vaktina síðdegis á mánudegi og sjá hvernig landið ligg- ur,“ segir Salóme. Steinar eru ekki sakir „Í menntaskóla lágu raungreinar vel fyrir mér og ung fór ég gjarnan með móður minni í fjallgöngur. Áhugi minn á náttúru landsins og jarðfræði kom því fljótt. Áhugi á því að fjöll, klettar og steinar eru ekki stakir, heldur hluti af því hvernig landið og náttúran hafa mótast á löngum tíma. Því hef ég afar gaman af allri útiveru. Margt áhugavert er að sjá og skoða á Reykjanesinu, en eldfjöllin heilla mig mest. Herðu- breið er stórbrotin, móbergsstapi sem myndaðist undir íshellu, og svo hef ég líka mikinn áhuga á Heklu, Kverkfjöllum og Öskju; allt stór- brotnir staðir.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Jarðeðlisfræðingur Atburðir á Reykjanesskaganum núna eru áhugaverðir, segir Salóme Jórunn um stöðu mála. Jarðfræði er spennandi  Náttúruvár- sérfræðingur er á skjálftavaktinni Morgunblaðið/Árni Sæberg Keilir Áhugi og augu almennings beinast nú að Reykjanesskaganum. Íslenskur ís úr öllum landshlutum 100% íslenskt • beint frá bónda Flatahrauni 27 • 220 Hafnarfjörður sími 788 3000 • gottogblessad.is Opið virka daga 11-18 / laugardaga 11-15 SVANSÍS • SUÐURLANDI súkkulaði • hindber • vanilla jarðarber • bláber • o.fl. SKÚTAÍS • MÝVATNI kókos og súkkulaði • karamella • vanilla • rabarbara- og jarðarberja • o.fl. ERPSSTAÐAÍS • dalasýslu saltkaramella • piparmynta • banana- og súkkulaðibitar • mokka • o.fl. HOLTSELSÍS • EYJAFIRÐI saltkaramella með söltu smjöri og karamellubitum • nutella • Ferrero Rocher • vanilla Madagaskar • o.fl. ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 61. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Valsmenn unnu sjö marka sigur á FH í stórleik gær- kvöldins á Íslandsmóti karla í handknattleik. Þar með náðu Haukar þriggja stiga forskoti á FH á toppi deild- arinnar eftir að hafa unnið auðveldan tólf marka sigur á Gróttu á Ásvöllum. Á Akureyri munaði líka tólf mörkum þegar Afturelding stakk Þórsara af í seinni hálfleik lið- anna. »26 Sjö marka sigur Valsmanna ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.