Morgunblaðið - 24.03.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.03.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2021 Í baráttu við COVID-19 býður Donnamaska, grímur og andlitshlífar sem eru gæða vara frá DACH og notuð um allan heim. Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Öryggið í fyrirrúmi fyrir lærða sem leika Sími 555 3100 www.donna.is Heildsöludreifing Type II 3ja laga medical andlitsgríma FFP3 Respirator Comfort andlitsgríma með ventli FFP3 High-Risk andlitsgríma Andlitshlíf móðufrí C-gríma Pandemic Respirator andlitsgríma Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Samkeppniseftirlitið átalið - Framkvæmdastjóri SI telur vantraust hafa grafið um sig milli atvinnulífs og SKE - Mikið þurfi til svo atvinnurekendur leggi í að gagnrýna eftirlitið opinberlega Andrés Magnússon andres@mbl.is „Það ríkir vantraust atvinnulífsins í garð Samkeppniseftirlitsins,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, í viðtali í Dagmálum, sem birt er í dag. Hann segir að það sé á suman hátt gagn- kvæmt, því Samkeppniseftirlitið (SKE) virðist vantreysta atvinnulíf- inu. „Þetta vantraust er samfélaginu stórkostlega dýrkeypt.“ Sigurður tæpti á ýmsum þeim málum, sem upp hafa komið vegna Samkeppniseftirlitsins, fjölmiðlaum- fjöllun og nýlegri gagnrýni forystu- manna í atvinnulífi í þess garð. Hann minnti á að það gerðu menn ekki að gamni sínu, enda veigruðu margir sér við að ýfa stofnunina, það væri of mikið í húfi fyrir þau. „Það er erfitt að sjá lausnina á þessu, en það verður ekki gert með því einu að atvinnulífið líti í eigin barm, eins og ætla má af orðum [Páls Gunnars Pálssonar] forstjóra Sam- keppniseftirlitsins,“ segir Sigurður og gagnrýnir hann fyrir skoðana- gleði í fjölmiðlum. Sigurður telur yfirstjórn stofnun- arinnar hafa farið út af sporinu. „Einhvern veginn virðist það vera þannig að Samkeppniseftirlitið nær ekki að gera sig skiljanlegt, því að forstjóri þess þarf að koma fram æ ofan í æ og lýsa því yfir að einhver misskilningur sé á ferðinni í hverju málinu á fætur öðru.“ Viðtekin venja Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, sem einnig var rætt við í þættinum, tekur í sama streng. Hún benti á að það hefði þegar kostað Festi 80 millj- ónir króna að geta ekki selt verslun á Suðurlandi líkt og sátt við eftirlitið kveður á um, en það ætti einnig þátt í því að koma í veg fyrir sölu hennar, svo nú stefnir allt í að henni verði lokað í komandi mánuði. Svanhildur telur raunar forstjóra Samkeppniseftirlitsins ekki einan um að fara út fyrir þann ramma, sem embættismönnum er ætlaður. „Hér á landi virðist það orðin viðtekin venja frekar en hitt,“ segir Svanhild- ur. „Það virðist vera vinsælt hjá rík- isstofnunum að útdeila skoðunum.“ Sigurður Hannesson Svanhildur Hólm Valsdóttir Tveimur deildum í leikskólanum Austurkór í Kópavogi hefur verið lok- að vegna myglu í klæðningu á útvegg, sem er á suðvesturhlið leikskólans. Lokunin er gerð í varúðarskyni til þess að vernda starfsmenn og nem- endur, segir í tilkynningu frá Kópa- vogsbæ. Deildirnar hafa ekki verið nýttar í daglegu starfi en nýttar til sérkennslu fyrir litla hópa. Því hefur lokunin tak- mörkuð áhrif á leikskólastarf í Aust- urkór. Alls eru 76 börn í skólanum. Myglan greindist í kjölfar einkenna starfsmanns sem grunur lék á um að rekja mætti til mygluskemmda. Verkfræðistofan Mannvit var fengin til að taka sýni og senda til greiningar hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Ekki fannst mygla í þeim sýnum. Einnig voru tekin sýni úr einangr- un útveggjar og gifsklæðningu á suð- vesturhlið, þar sem vart hafði orðið við leka. Niðurstaða úr þeirri grein- ingu, sem kom frá Náttúrufræði- stofnun, sýnir myglu í útvegg. Fjarlægja einangrun Viðgerðir á Austurkór eru þegar hafnar. Til stendur að fjarlægja ein- angrun innandyra og klæða húsið að utan á sambærilegan hátt og á norð- urhlið hússins. Fundað hefur verið með foreldraráði og starfsfólki skól- ans og þá hafa foreldrar í leikskól- anum verið upplýstir um stöðu máls- ins, að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá bænum. Einkenni vöktu réttilega grun um myglu í húsnæði - Mygla fannst í klæðningu á vegg í leikskóla í Kópavogi Ljósmynd/Kópavogsbær Austurkór Húsnæði leikskóla í Kópavogi reyndist myglað. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra minnisblaði vegna hertra aðgerða á landamær- um. Eitt kórónuveirusmit greindist innanlands í fyrradag og var við- komandi í sóttkví við greiningu. Nokkrir nemendur í 6. bekk Laugarnesskóla greindust með veir- una í gær og voru þeir allir í sóttkví við greiningu. Áður hafði einn nem- andi og kennari við skólann greinst með veiruna. „Ég held að við séum ekkert kom- in út úr þessu. Ég held að við getum ekkert fullyrt um það hvort við fáum einhver fleiri smit eða hvernig það verður, við verðum bara að sjá hvernig þetta þróast frá degi til dags,“ sagði Þórólfur í samtali við mbl.is í gær. Enginn fengið nóg bóluefni Anna Sigrún Baldursdóttir, að- stoðarmaður forstjóra Landspítala, segir að skortur sé á bóluefni gegn Covid-19 hjá spítalanum eins og annars staðar. Enn á eftir að bólu- setja einhverja starfsmenn sem eru mjög framarlega í þjónustu spít- alans. Um helmingur starfsfólks Landspítala hefur fengið bólusetn- ingu gegn Covid-19. Enn á eftir að bólusetja um 2.500 starfsmenn spít- alans sem starfa í klínískri þjónustu. „Eftir því sem bóluefnið hefur borist er reynt að koma þessu eins hratt út og mögulegt er,“ sagði Anna Sigrún í samtali við mbl.is í gær. Spurður hvort Landspítalinn hefði fengið nægilega mikið magn af bóluefni sagði Þórólfur: „Ég held að enginn hafi fengið nóg bóluefni, ég held að allir myndu vilja fá meira bóluefni. Það gildir um Landspítala eins og aðra. Takmark- andi þátturinn er magnið af bóluefni sem við fáum fyrir þá sem eru í framlínunni og vilja bóluefni.“ Áfram greinast ný smit Þórólfur Guðnason - Minnisblað um hertar aðgerðir Anna Sigrún Baldursdóttir Allir nemendur Fossvogsskóla hefja nám í Korpuskóla frá og með deginum í dag á meðan reynt er að ráða fram úr mygluvanda í Fossvogs- skóla. Þetta er í annað sinn á nokkrum árum sem starfsemi skólans er færð vegna myglu. Unnið var að því í gær að búa húsnæði nýja skólans undir komu nemenda. Það krafðist margra handtaka og mikilla þrifa, enda húsnæði skólans ekki verið í notkun um nokkra hríð. Mikið verk að færa heilan skóla um set Morgunblaðið/Arnþór Birkisson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.