Morgunblaðið - 24.03.2021, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2021
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
544 5151tímapantanir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
Sérhæfð þjónusta fyrir
Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR
Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna
aðgerðir ríkisstjórnarinnar
ALLIR VINNA sem felur í sér
endurgreiðslu á VSK
af vinnulið einkabifreiða
Förum yfir bifreiðar fyrir aðalskoðun/endurskoðun
og förum með bifreiðina í skoðun
Þjónustuaðilar IB Selfossi
ELDGOS Í FAGRADALSFJALLI
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ef flæðigosið í Geldingadölum held-
ur áfram af sama krafti og um langa
hríð getur orðið til nýtt fjall. Dr. Ár-
mann Höskuldsson eldfjallafræð-
ingur segir að kvikustreymið í Geld-
ingadölum sé af svipaðri
stærðargráðu og það var í Surtsey að
meðaltali yfir gostímann þar.
Minnir á stóru dyngjurnar
Aðfærslurás eldgossins í Geld-
ingadölum nær alveg niður á botn
jarðskorpunnar og upp um hana
streymir frum-
stæð kvika úr
bráðnum möttli
jarðar. „Þetta er
svipað berg og er
í Fagradalsfjalli
og í dyngjunni
Þráinsskildi,“
sagði Ármann.
Hann sagði að á
Reykjanesskaga
væru bæði stórar
og litlar dyngjur.
Einkenni dyngju er að hún hefur
bara eitt gosop. Þær stóru eru t.d.
Sandfellshæð, Þráinsskjöldur,
Hrútagjárdyngja og Heiðin há. Svo
eru smærri dyngjur á Reykjanes-
skaga, eins og t.d. Háleyjabunga,
sem ekki gusu jafn lengi og þær
stóru.
Ármann sagði að kvikan í Geld-
ingadölum sé dæmigert ólivín-þóleiít.
Í því er mikið af ólivínkristöllum og
minnir kvikan meira á hraunin úr
stóru dyngjunum á skaganum en úr
þeim minni. Í hraununum úr minni
dyngjunum er meira pikrít.
Svipað kvikuflæði og í Surtsey
„Kvikan vellur jafnt og þétt upp í
Geldingadölum og hefur gert það frá
því á föstudagskvöld. Það sést ekkert
lát á þessu,“ sagði Ármann.
„Sprungugos byrja með meiri látum
og eru oft snögg að ljúka sér af. Gos-
in í Kröflu voru t.d. snögg í byrjun.
Það gaus á sprungum sem gátu verið
hundruð metra að lengd og upp í
nokkra kílómetra. Í Geldingadölum
var sprungan um 180 metra löng sem
er mjög stutt. Nú gjósa 3-4 gígar á
þröngu svæði. Þar streyma upp 5-10
rúmmetrar af kviku á sekúndu. Með-
al-rúmflæðið í Surtsey var alveg
sambærilegt við það, þótt sumir segi
að Surtseyjargosið hafi byrjað af
meiri krafti. Flæðið í Surtsey var 7-
10 rúmmetrar á sekúndu ef tekið er
meðaluppstreymi kviku þau tæpu
fjögur ár sem Surtseyjargosið stóð,“
sagði Ármann.
Hann sagði að Surtsey hefði orðið
dyngja ef hún hefði ekki byrjað sem
neðansjávareldgos. Vegna sjávarins
tættist kvikan og eyjan byggðist
hratt upp.
Ármann sagði að dyngjur væru
um allt land en dyngjugos hefði ekki
komið mjög lengi á Íslandi. Síðast
gaus Lambahraunsdyngja fyrir um
3.500 árum. „Gosið í Geldingadölum
getur hætt fjótlega eða haldið áfram
árum saman. Svona göt niður í mött-
ul eru víða til í heiminum og þar eru
eldfjöll sem hafa gosið mjög lengi.
Það sullast kvika upp úr þessum göt-
um og ef það heldur áfram í mörg ár
þá hleður dyngjan sig upp hægt og
rólega, hraunið nær að renna lengra
og lengra og þarna verður til fjall.“
Spennandi atburðarás
Ármann sagði að atburðarásin í
Geldingadölum væri mjög spenn-
andi. „Þetta er eitthvað sem við höf-
um aldrei séð gerast áður. Þetta er
ekkert í líkingu við Kröfluelda eða
Fimmvörðuháls. Ef eitthvað er líkt
þessu þá er það hugsanlega Surts-
ey,“ sagði Ármann.
Ólíkt öðrum eldgosum í seinni tíð
- Kvikustreymið í Geldingadölum svipað og það var í Surtsey - Haldi eldgosið lengi áfram verður
til nýtt fjall - Kvikan líkist berginu sem er að finna í stóru dyngjunum á Reykjanesskaganum
Dyngjur á Reykjanesi
Dyngjugos
Geldingadalir
GosrásBerglög Berggangur
Hrauná
Gígur Hrauntjörn
Gosop
Hraunlag
Selvogsheiði
Heiðin há
Leitin
Hrútagjá
Þráinsskjöldur
Sandfellshæð
Háleyjabunga
Langhóll
KEFLAVÍK
GARÐUR
REYKJAVÍK
GRINDAVÍK
Mynd:Wikimedia
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Geldingadalir Kvikan kemur upp af 17-20 km dýpi og virðist ekki vera neitt
lát á streyminu. Vísindamenn hafa ekki áður séð svona eldgos hér á landi.
Ármann
Höskuldsson
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
„Þetta gas sem er að koma upp
hérna er vatnssnautt gas. Þetta er
eiginlega bara vatn sem kemur frá
kvikunni, en ekkert grunnvatn. Svo
er hátt hlutfall á milli koltvíoxíðs
(CO2) og brennisteinsoxíðs (SO2),“
sagði Andri Stefánsson, prófessor
hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Ís-
lands, í samtali við Morgunblaðið
þar sem hann stóð norðaustan megin
við gíginn og mældi hlutföll gasteg-
unda í loftinu í Geldingadölum í gær,
en búist var við mikilli gasmengun á
svæðinu.
Beint úr möttli
Andri sagði einnig að slíkt gas sé
ekki hægt að mynda nema kvikan
komi af 10 til 15 kílómetra dýpi, nær
15 kílómetrum. „Og hún er ekkert að
stoppa á leiðinni að neinu ráði. Þá er-
um við að segja að hún er ekki stopp
í áratugi eða neitt slíkt. Hún er bara
að koma beint upp úr möttli, þar sem
kvika verður til, og kemur svo bara
hérna í gegnum sprunguna.“
Spurður hvernig hægt sé að meta
hvort kvikan stöðvist ekki á leiðinni
segir hann að gasið hefði öðruvísi
samsetningu hefði kvikan stöðvað að
einhverju ráði á leiðinni. „Þetta er
eina leiðin til að búa til svona gas.
Einnig er hægt að styðjast við sam-
setninguna á berginu,“ sagði Andri.
„Það er magnesíumríkt og títan-
snautt og þetta þýðir bara að það er
mjög frumstæð bráð sem kemur.“
Kvikugangur eins og strompur
Hann segir kvikuganginn sem
leiðir að gosinu ekki vera stóran,
heldur langan og mjóan, frekar eins
og stromp í laginu. „Hversu lengi
ástandið mun vara fer eftir því
hversu stór þessi kvikupoki, á miklu
dýpi, er,“ sagði Andri.
„Ef hann er töluvert stór gæti
gosið varað í nokkurn tíma. Við er-
um að tala um mánuði eða ár. En ef
hann er ekki stór gæti þetta dáið út á
morgun. Við vitum ekkert hvað hann
er stór en við vitum að hann er á
miklu dýpi.“ Með Andra í för voru
nemar við jarðfræði og jarðeðl-
isfræði við Háskóla Íslands. Öll
kennsla í þeim greinum fór fram á
gossvæðinu í gær.
Samsetning gass segir til
um af hvaða dýpi kvikan er
- Lengd gossins ræðst af stærð kvikupoka á miklu dýpi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gasmælingar Andri Stefánsson, prófessor hjá Jarðvísindastofnun Háskóla
Íslands, ásamt nemendum við mælingar m.a. á samsetningu gastegunda.
Dæmigert íslenskt vorveður var á
gossvæðinu í Geldingadölum í gær
þar sem skiptust á skin og skúrir.
Eina stundina gerði mikla úrkomu
og skyggni lítið en hægt var að
treysta á að það varði ekki lengi og
stytti upp áður en langt um leið.
Leikurinn endurtók sig mörgum
sinnum yfir daginn og hélt fólk varla
í við að setja upp sólgleraugun og
taka þau aftur niður. Í gær fékkst
reynsla á stikaða leið sem björg-
unarsveitin Þorbjörn útbjó.
Viðmælendur Morgunblaðsins
voru samhljóma um að leiðin væri
aðgengileg og góð. Ekki væri mikið
mál að ganga en mikilvægt að vera
vel búinn, nestaður og í góðum
skóm. Gönguferðin tók fólk allt frá
klukkustund að rúmum tveimur tím-
um að gosstöðvunum. Allur gangur
var á hvort fólk var búið gasgrímu
en gert var ráð fyrir mikilli gas-
mengun í gær. Mikill fjöldi bíla safn-
aðist saman á Suðurstrandarvegi í
gær og myndaði langa bílaröð.
Blaðamaður á vettvangi
Nýstikuð leið reyndist vel