Morgunblaðið - 24.03.2021, Side 11

Morgunblaðið - 24.03.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2021 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Kjólar • Tunikur Blússur • Peysur Bolir • Jakkar • Vesti Verið velkomin Nýjar töskur Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Saksóknarar í Boulder í Colorado- ríki ákærðu í gær hinn 21 árs gamla Ahmad Alissa fyrir morð á tíu manns, en maðurinn hóf skotárás í kjörbúð í fyrrinótt. Átti fólk fótum fjör að launa áður en árásarmað- urinn var loks yfirbugaður af lög- reglunni og dvaldist hann á sjúkra- húsi í gær, undir eftirliti, vegna skotsára sem hann hlaut í viðskipt- um sínum við lögreglumenn. Fórnarlömbin voru á aldrinum 20 til 65 ára, og var einn þeirra, Eric Talley, lögregluþjónn og sjö barna faðir. Lögreglan í Boulder sagði í gær að enn væri óvíst um ástæður þess að Alissa lét til skarar skríða. Þetta er önnur stóra skotárásin í Bandaríkjunum í einni viku, og hafa árásirnar opnað enn á ný viðkvæma umræðu um byssulöggjöf sem geis- að hefur til margra ára í Bandaríkj- unum. Dómsmálanefnd öldunga- deildarinnar hugðist þegar halda fund um leiðir til þess að fækka skotárásum í gær, en þingmenn hafa skipst í tvö horn eftir flokks- línum. Demókratar hafa kallað eftir strangari löggjöf, sem meðal annars feli í sér að bakgrunnur allra sem kaupi sér skotvopn sé kannaður í þaula áður en kaupin séu samþykkt. Repúblikanar hafa hins vegar talið að fara verði gætilega í slíkar ráð- stafanir, þar sem 2. viðbót stjórn- arskrárinnar kveði sérstaklega á um að ekki megi skerða rétt Banda- ríkjamanna til þess að búa sig vopn- um. Óþarft að bíða „mínútu lengur“ Nancy Pelosi, forseti fulltrúa- deildar Bandaríkjaþings og leiðtogi demókrata í deildinni, sagði í yfir- lýsingu sinni að aðgerða væri þörf þegar í stað til þess að koma í veg fyrir áframhaldandi „faraldur skot- árása“, sem væri að hrella banda- rískt samfélag. Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóð sína í gærdag vegna árásarinnar, og kallaði þar eftir því að þingið samþykkti bann gegn svo- nefndum árásarvopnum. Sagði Biden að hann þyrfti ekki „að bíða mínútu lengur, hvað þá klukku- stund, til að stíga skref til almennr- ar skynsemi sem muni bjarga mannslífum í framtíðinni og til að hvetja kollega mína í fulltrúa- og öldungadeild til aðgerða.“ Sagði Biden að hægt væri að banna aftur árásarvopn og skot- hylkjahólf sem geti geymt fjölmörg skothylki, en Bandaríkjaþing sam- þykkti árið 1994 bann til tíu ára á slík vopn. „Þetta er ekki og ætti ekki að vera flokkspólitískt mál. Þetta er bandarískt mál. Það mun bjarga mannslífum, bandarískum lífum, og við verðum að grípa til aðgerða,“ sagði Biden í ræðu sinni. Skoðanakannanir benda til þess að mikill meirihluti Bandaríkja- manna styðji hertari byssulöggjöf, og lýsti Biden því yfir í síðasta mán- uði að hann vildi að þingið sam- þykkti lög um að kanna bakgrunn allra sem kaupa skotvopn. Sagði hann þá að ríkisstjórn sín myndi ekki bíða eftir næstu stóru skotárás til þess að grípa til aðgerða. Reynt að loka glufum Fulltrúadeildin samþykkti fyrr í mánuðinum tvö frumvörp um kann- anir á bakgrunni fólks, en með þeim var stefnt að því að loka fyrir glufu í gildandi lögum, þar sem þeir sem keyptu sér skotvopn á byssusýning- um gátu fengið það afhent án tafa. Var sú glufa talin hafa átt þátt í skotárás árið 2015 á kirkju í Charle- ston. Frumvörpin tvö munu hins vegar ekki að óbreyttu ná í gegnum öld- ungadeildina, þar sem 60 atkvæði af 100 þarf fyrir flesta almenna laga- setningu til að ná í gegn. Flokkarnir tveir hafa nú hvor um sig fimmtíu þingsæti. Chuck Schumer, leiðtogi demó- krata í öldungadeildinni, sagðist hins vegar staðráðinn í að leggja frumvörpin fyrir deildina, þannig að þingmenn hennar gætu rökrætt og reynt að taka á ógninni sem stafaði af síendurteknum skotárásum. AFP Skotárás Heilbrigðisstarfsfólk sést hér yfirgefa kjörbúðina í Boulder þar sem tíu létust í skotárás í fyrrinótt. Þingið taki á skotárásum - Tíu manns látnir eftir skotárás í Boulder í Colorado-ríki - Biden kallar eftir banni við árásarrifflum og skothylkjageymslum sem geta borið mikið magn Angela Merkel Þýskalandskanslari tilkynnti í gær að samkomutakmark- anir þar yrðu hertar í fimm daga yfir páskahátíðina, frá 1.-5. apríl, í þeirri von um að þannig mætti stöðva þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins, sem nú er í miklum uppgangi á meginlandi Evrópu. Þá verða núgildandi sótt- varnareglur framlengdar til 18. apríl. Þetta var ákveðið á fundi Merkel með héraðsstjórum sambandsland- anna, en upphaflega var boðað til fundarins til þess að ræða afléttingar á takmörkunum. Aðstæður hafa hins vegar breyst fljótt, og sagði Merkel að landið glímdi nú við „nýjan farald- ur“ vegna breska afbrigðisins svo- nefnda, sem kanslarinn sagði að væri í raun eins og ný veira. „Hún er ban- vænni, meira smitandi og smitar frá sér yfir lengra tímabil,“ sagði Merkel. Tók Merkel undir með Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins, sem hefur hótað útflutningsbanni á bólu- efni AstraZeneca til Bretlands, og sagði Merkel vitað að „vandamál“ hefðu komið upp í samskiptum við fyrirtækið og Breta. Stjórnvöld í Hollandi ákváðu einnig í gær að framlengja samkomubann sitt til 20. apríl næstkomandi vegna stöðunnar í faraldrinum, en á móti yrði umdeilt útgöngubann stytt um klukkutíma á kvöldin, þannig að það hefjist kl. 22 en ekki kl. 21. Hörð mót- mæli spruttu upp í nokkrum af helstu borgum Hollands gegn útgöngubann- inu þegar það var sett á í janúar. Frönsk sjúkrahús að springa Emmanuel Macron Frakklands- forseti lýsti því yfir í gær að frönsk stjórnvöld spýta í lófana í bólusetn- ingum, og að bólusetja yrði fólk „á morgnana, í hádeginu og á kvöldin.“ Nokkur gagnrýni hefur heyrst í Frakklandi á hversu treglega bólu- setningar þar hafa gengið, og lofaði Macron að betri gangur yrði kominn í þær um miðjan apríl í síðasta lagi. Loforð Macrons kom sama dag og Frederic Valletoux, yfirmaður spít- alamála í Frakklandi, varaði við því að sjúkrahús landsins væru komin að þolmörkum. Sagði Valletoux að kerfið myndi verða fyrir „fordæmalausu áfalli“ innan þriggja vikna, ef ekki tækist að hemja þriðju bylgjuna. Um 30.000 tilfelli greinast nú í Frakklandi á hverjum degi, og hefur tilfellum fjölgað mjög síðustu daga. Þýskalandi lok- að yfir páskana - Macron lofar fleiri bólusetningum Fimmtán manns létust og 400 til við- bótar er saknað eftir að eldur kom upp í flóttamannabúðum róhingja í Bangladess. Búðirnar eru sagðar stærstu flóttamannabúðir heims, en að minnsta kosti 50.000 manns eru nú á vergangi eftir brunann. Áætlað hefur verið að tæplega ein milljón manns búi í flóttamannabúð- um við landamærin að Búrma, einn- ig Mjanmar, en róhingjar flúðu það- an unnvörpum árið 2017 þegar herinn hóf aðgerðir gegn minni- hlutahópnum í Rakhín-héraði. Eldurinn braust út í fyrradag og dreifði sér fljótt um búðirnar, en þær samanstóðu einkum af tjöldum úr bambus og segldúkum. Stjórn- völd í Bangladess hafa fyrirskipað rannsókn á upptökum eldsins. BANGLADESS AFP Eldsvoði Fjöldi er nú á vergangi eftir brunann, sem lagði búðirnar í rúst. 15 látnir og 400 saknað í eldsvoða Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, og eig- inmaður hennar, Sindre Finnes, hafa nú bæði stöðu grunaðra í afmælismálinu svokalla, en það snýst um meint brot á sótt- varnalögum þegar Solberg hélt upp á sextugsafmæli sitt í lok febrúar. Voru 13 viðstaddir fyrri daginn og 14 hinn síðari, en einungis tíu máttu koma saman á þessum tíma. Solberg hefur beðið þjóð sína for- láts í viðtölum og sagst þar ekki eiga sér neinar málsbætur. Hyggist hún greiða þá sekt sem henni ef til vill verði gerð vegna veislunnar. atlisteinn@mbl.is NOREGUR Hefur stöðu grun- aðs í afmælismálinu Erna Solberg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.