Morgunblaðið - 24.03.2021, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2021
✝
Jóna Guðný
Jónsdóttir
fæddist í Skálholts-
vík í Hrútafirði 24.
janúar 1923. Hún
lést á Landspítalan-
um 15. mars 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Guðrún
Lýðsdóttir frá Skál-
holtsvík, f. 5. sept-
ember 1886, d. 23.
janúar 1984, og Jón
Andrésson frá Valdasteins-
stöðum, f. 25. mars 1863, d. 11.
október 1935.
Hálfsystkini hennar voru:
Ágúst Sigurjón Jónsson, f. 1893,
dó fyrir tvítugt; Guðlaug Stef-
anía Jónsdóttir, f. 1894, d. 1978;
Páll Jónsson f. 1897, d. 1973;
Ingibjörg Jónsdóttir, f. 1899, d.
1983.
Hinn 1. desember 1946 giftist
Jóna Guðný Benedikt Finnboga
Þórðarsyni frá Klúku í Miðdal,
Steingrímsfirði. Foreldrar hans
voru Þórður Þórðarson bóndi á
Klúku, f. 9. desember 1883, d. 17.
ágúst 1954, og kona hans Guðrún
Finnbogadóttir, f. 10. febrúar
1885, d. 26. nóvember 1972. Jóna
syni, sonur a) Erlendur Magnús, í
sambúð með Eydísi Sigrúnu Jóns-
dóttur. 5) Þórður, f. 27. apríl 1961,
maki Kristín Unnur Þórarins-
dóttir, börn þeirra a) Benedikt
Finnbogi, í sambúð með Rakel
Önnu Knappett. b) Erla Guðrún,
kærasti hennar er Pálmi Guð-
mundsson.
Jóna Guðný ólst upp í
Skálholtsvík með móður sinni.
Hún var í farskóla og síðar fór
hún í Reykjaskóla. Á unglings-
árum sínum var hún í kaupa-
vinnu víða í Hrútafirði og í Húna-
vatnssýslum. Hún var í vist í
Reykjavík og síðar kaupakona í
Heiðarbæ í Steingrímsfirði. Á
þeim tíma kynntist hún eigin-
manni sínum og giftust þau 1946.
Þau hófu búskap á Akranesi og
fluttu síðan til Reykjavíkur 1948
og bjuggu þar upp frá því. Guðný
vann við afgreiðslustörf í mjólk-
urbúðum sem þá voru, á barna-
heimilinu Barónsborg og barna-
heimilinu Hamraborg og við
ræstingar hjá Landsímanum auk
hefðbundinna húsmóðurstarfa.
Benedikt Finnbogi lést árið 1994.
Útför Jónu Guðnýjar fer fram
frá Kópavogskirkju í dag, 24.
mars 2021, og hefst athöfnin
klukkan 15. Athöfninni verður
streymt á:
https://liveestream.com/luxor/jona
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Guðný og Benedikt
eignuðust fimm
börn, barnabörnin
eru átta og barna-
barnabörnin 12. 1)
Jón Ágúst, f. 29.
september 1947, d.
5. mars 1948. 2) Að-
alheiður, f. 31. jan-
úar 1951, gift Herði
Árnasyni. Sonur
þeirra a) Guðlaugur
Ingi, í sambúð með
Lilju Eggertsdóttur, börn þeirra
Aðalheiður Fríða og Hlynur Elís,
látinn. 3) Jón Ágúst, f. 18. sept-
ember 1954, kvæntur Jónínu
Sigurðardóttur, börn þeirra a)
Sigurður Ásgeir, börn hans Krist-
ófer Páll og Elísabet Nína Mary.
b) Benedikt Freyr, kvæntur Guð-
rúnu Theódóru Hrafnsdóttur,
börn þeirra Grímur Ingi, Hrafn
Darri, Embla Rún og Nína Björg.
c) Jóna Guðný, í sambúð með
Kristófer Kristóferssyni, barn
þeirra Nökkvi Snær. d) Fyrir átti
Jón, með Ástu Mörtu Sívertsen,
Jenný Maríu, gift Þorsteini Sigur-
vinssyni, börn þeirra Ársól, Axel
Ingi og Emilía. 4) Guðrún Þóra, f.
14. apríl 1957, gift Hirti Erlends-
Elsku mamma, nú er komið að
kveðjustund og við erum svo
þakklát fyrir að hafa verið hjá þér
þegar þú kvaddir og nú hugsum
við um allar minningarnar sem við
eigum um þig, sem við munum
aldrei gleyma.
Takk fyrir allt sem þú gerðir
fyrir okkur og alla umhyggjuna
fyrir okkur, barnabörnum þínum
og barnabarnabörnum.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Hvíldu í friði, elsku mamma.
Þinn sonur og tengdadóttir,
Jón og Nína.
Elsku besta amma mín og vin-
kona.
Mikið er sárt að kveðja.
Þú varst og verður mér alltaf
svo mikilvæg.
Umhyggjan og hlýjan sem þú
gafst frá þér var engu lík og þú
varst engri lík. Svo lífsglöð, já-
kvæð og kraftmikil.
Hvar sem þú komst eða hvern
sem þú hittir, það elskuðu þig allir.
Þú sýndir það svo sannarlega að
aldur er bara einhver tala.
Við eigum svo margar minning-
ar saman, ótal göngutúrar, sund-
ferðir, bústaðaferðir, utanlands-
ferðir og svo margt fleira. Mér er
svo minnisstætt þegar við fórum
saman í Vesturbæjarlaug einn
sumardaginn, gleðin var svo mikil
hjá þér að ég klökknaði þegar ég
fylgdist með þér. Þetta gaf þér svo
mikið.
Ég gleymi ekki spenningnum
þegar vegabréfið kom í hús og við
fórum saman öll fjölskyldan til
Spánar að fagna 95 ára afmælinu
þínu, þú ætlaðir sko að fá bikiní
fyrir þessa ferð, enga sólarvörn,
takk, það var sett á mig í gær kom
upp þegar átti að bera á þig. Sól-
arinnar var notið í botn á daginn
og svo dressað sig upp í kjól og út
að borða á kvöldin. Þú varst svo
mikill töffari.
Það var alltaf svo gott að koma í
Álftamýrina, ef maður borðaði
nóg og lagði sig í litla sófanum þá
varstu ánægð.
Ég er svo þakklát fyrir að
Nökkvi Snær, litli maðurinn eins
og þú kallaðir hann, hafi fengið að
kynnast langömmu sinni, hann
elskaði að hitta þig. Hann ljómar
allur þegar hann sér myndir og
vídeó af þér. Ég hef svo margar
sögur að segja honum af ömmu og
afa í Álftamýri í framtíðinni.
Elsku amma mín, ég kveð þig
með trega en ég veit að þú verður
alltaf hjá mér.
Ég elska þig.
Þín
Jóna Guðný.
Elsku amma, þó svo aldurinn
hafi verið hár þá fannst manni þú
vera eilíf.
Og orka þín og sál mun alltaf af
vera með manni því það er svo
margt sem minnir á þig.
Ég var heppinn að fá að vera
mikið með þér og afa á yngri ár-
um, því væntumþykja og hlýja var
eitthvað sem þið áttuð mikið af.
Það var alltaf pláss fyrir leik,
spil og útiveru og maður var ávallt
velkominn til ykkar og engin vog-
aði sér út frá þér með tóman
maga.
Ekta amma eins og Kristófer
frændi sagði. Það lýsir þér vel.
Ég á margar sterkar gleði-
minningar úr Álftamýri frá barn-
æsku til fullorðinsára. Heimili
ömmu og afa var miðpunktur fjöl-
skyldunnar.
Amma var kjarnakona, blíð,
lífsglöð og passaði vel upp á sína.
Henni var umhugað um litla
manninn og hélt ósjaldan með tap-
liðinu er hún fylgdist vel með öll-
um helstu íþróttamótum.
Amma elskaði ferðalög með
fjölskyldunni og naut sín best með
fólkinu sínu í sumarbústað og ná-
lægt æskuslóðum sínum í nátt-
úrunni.
Þegar hún var 95 ára fórum við
öll fjölskyldan saman til Spánar og
hún yngdist um 50 ár.
Hún elskaði sól, samveru, og
fjölskyldu.
Öll börn löðuðust að ömmu. Og
hún að þeim, hún var alveg einstök
með þeim.
Það áttu allir einkataug hjá
henni eins og Siggi bróðir orðaði
það.
Það var erfitt að kveðja þig
amma, en ég veit að þú ert komin á
góðan stað.
Ég kveð þig að sinni og þangað
til næst. Takk fyrir allt sem þú
hefur gert fyrir mig og fjölskyldu
mína.
Þú varst yndisleg í alla staði.
Benedikt (Benni),
Guðrún og börn.
Í dag kveðjum við elskulega
tengdamóður mína, Jónu Guðnýju
Jónsdóttur, eftir langt og farsælt
líf en hún náði því að verða 98 ára
fyrr í ár. Hún fæddist í Skálholts-
vík sem er við mynni Hrútafjarðar
og bjó þar með móður sinni fram á
unglingsárin. Þá fór hún í vist á
öðrum bæjum og í Reykjavík þar
til hún gerðist kaupakona í Heið-
arbæ í Steingrímsfirði. Á þeim
tíma kynntist hún verðandi eigin-
manni sínum, Benedikt Þórðar-
syni frá Klúku í Miðdal. Þau gift-
ust árið 1946 og fluttu skömmu
síðar suður og settust að á Akra-
nesi. Þar eignuðust þau son sem
þau misstu fimm mánaða gamlan
og eftir það fluttust þau til
Reykjavíkur þar sem þau bjuggu
æ síðan. Þar eignuðust þau fjögur
góð og vönduð börn og lögðu
grunninn að stórri og samhentri
fjölskyldu sem nú telur þrjátíu og
fjóra með börnum og barnabörn-
um.
Ég kynntist þeim hjónunum ár-
ið 1978 þegar ég var að eltast við
Guðrúnu, dóttur þeirra, og var
strax afskaplega vel tekið í Álfta-
mýrinni enda var Guðný afar
mannblendin og gestrisin og hafði
gaman af að hitta fólk. Þar kynnt-
ist ég einnig móður hennar, Guð-
rúnu Lýðsdóttur, sem þá var orðin
háöldruð og hef metið þau kynni
mikils ætíð síðan.
Eftir að Benedikt lést 1994 bjó
Jóna Guðný áfram í Álftamýrinni
og varð miðpunktur stórfjölskyld-
unnar sem lét sér afar annt um
hana og nánast leið ekki sá dagur
að einhver ætti ekki leið framhjá
til að líta við í kaffi eða mat. Fátt
gladdi tengdamóður mína meira
en að fá einhvern í heimsókn og
bjóða kaffi og kökur og hún var
ekki til friðs fyrr en á öllu hafði
verið smakkað og hún fullviss um
að gesturinn væri saddur.
Jóna Guðný hafði yndi af úti-
veru og ferðalögum bæði innan-
lands og utan. Hún var afar fróð
um Strandasýsluna þar sem hún
ólst upp og þekkti hvern bæ og
það fólk sem þar bjó eða hafði búið
og gat rakið ættir þeirra langt aft-
ur og tengt þær saman. Hún var
ræktarsöm og hélt alltaf góðu
sambandi við uppeldissystkini sín
og tengslafólk og fátt fannst henni
skemmtilegra en að koma á
Strandirnar að sumarlagi. Þá var
gjarnan gist í Strandaseli og
Orkuseli við Hólmavík því einn
bústaður rúmaði ekki alla þá sem
vildu slást í för norður.
Seinni árin bættust við ferðir til
Kanarí og Spánar með stórfjöl-
skyldunni og þar naut hún sín til
hins ýtrasta og gaf ungu stelpun-
um í fjölskyldunni ekkert eftir í
tísku og sólböðum. Hún hafði
gaman af skoðunarferðum og veit-
ingahúsaheimsóknum og aldurinn
þvældist lítið fyrir henni þótt hún
væri orðin 95 ára í síðustu ferð-
inni.
Það er einmitt það sem kemur
upp í hugann þegar ég minnist
hennar hversu lífsglöð hún var
alla tíð og hversu lánsöm hún var
með börnin sín sem báru hana allt-
af á höndum sér og gættu hennar
vel. Hún lést í faðmi fjölskyldunn-
ar í glaðlegu skvaldri eins og hún
kunni best við sig í og umvafin ást
og umhyggju barna og barna-
barna, södd lífdaga.
Öllum sem tengdust Jónu Guð-
nýu sendi ég mínar innilegustu
samúðarkveðjur og þá sérstak-
lega börnum, tengdabörnum og
barnabörnum og þakka henni
þann hlýhug og þá velvild sem hún
ávallt sýndi mér og mínum.
Hjörtur Erlendsson.
Jóna Guðný
Jónsdóttir
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
LOVÍSA HANNA GUNNARSDÓTTIR
frá Dilksnesi,
lést fimmtudaginn 18. mars á
hjúkrunarheimilinu Skjólgarði í Hornafirði.
Útförin fer fram frá Hafnarkirkju laugardaginn 27. mars klukkan
11. Vinir og aðstandendur velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Gestir eru vinsamlega beðnir um að hafa með sér á blaði nafn,
kennitölu og símanúmer. Athöfninni verður einnig streymt á vef
Hafnarkirkju.
Gunnar Þór Þórarnarson Guðný Björg Jensdóttir
Lovísa Þóra Gunnarsdóttir Finnur Eiríksson
Eyþór Jens Gunnarsson
Sævar Þór, Dagmar Hekla og Kolbrún Katla
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför
elskulegs sonar, bróður, mágs og frænda,
KORMÁKS JÓNSSONAR
húsasmiðs,
Hólavegi 2, Laugum.
Áslaug Kristjánsdóttir
og aðrir aðstandendur
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útfarir
EIRÍKS ÞORKELSSONAR
bifvélavirkjameistari
09.10.1932 – 1.2.2021
og
ÁSGERÐAR PÁLSDÓTTUR
frá Bakka á Skagaströnd
01.12.1931 – 27.02.2015
Blessuð sé minning þeirra hjóna.
Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn.
Yndislega móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN ÞORKELSDÓTTIR,
Dúna,
Seglbúðum,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu
Klausturhólum 21. mars, verður jarðsungin frá Prestbakkakirkju
á Síðu laugardaginn 27. mars klukkan 13.
Vegna aðstæðna eru jarðarfarargestir beðnir að vera með nafn,
kennitölu og símanúmer á miða og afhenda við inngang.
Þeim sem vilja minnast Dúnu er bent á velunnarasjóð
Klausturhóla.
Helga Dúnu Jónsdóttir Þórarinn Bjarnason
Bjarni Þorkell Jónsson Gréta Rún Árnadóttir
Björn Sævar Einarsson Guðrún Marta Torfadóttir
barnabörn og langömmubörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
JÓNÍNA SALNÝ STEFÁNSDÓTTIR,
Didda,
frá Mýrum í Skriðdal,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju
fimmtudaginn 25. mars klukkan 15. Blóm og kransar eru
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
minningarsjóð Sunnuhlíðar. Streymt verður á slóðinni:
www.exton.is/streymi
Stefán Þórarinn Ingólfsson Margrét B. Einarsdóttir
Páll Rúnar Ingólfsson Eydís G. Sigurðardóttir
Hafdís Odda Ingólfsdóttir Ingjaldur H. Ragnarsson
Ingvi Ingólfsson Stefanía L. Óladóttir
Fanney Ingólfsdóttir Birgir Vignisson
Sigurður K. Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma
FANNEY HELGADÓTTIR,
Ystahvammi, Aðaldal,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
laugardaginn 13. mars.
Útförin fer fram frá Grenjaðarstaðarkirkju laugardaginn
27. mars klukkan 14. Streymt verður frá útförinni á
https://www.twitch.tv/borgarthorarins. Hlekk á streymi
má finna á mbl.is/andlat
Baldur Jónsson
Sigríður Helga Olgeirsdóttir Eiríkur Jóhannsson
Halldór Olgeirsson Elín Maríusdóttir
Kristín Baldursdóttir Kristján Halldórsson
Sigþóra Baldursdóttir Sigurður Kristjánsson
Böðvar Baldursson Linda Hrönn Arnþórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
STEINN HANSSON,
Hjarðartúni 3a,
lést á dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík
19. mars. Hann verður jarðsunginn frá
Ólafsvíkurkirkju föstudaginn 26. mars klukkan 14.
Vegna aðstæðna eru jarðarfarargestir beðnir að skrá sig á
kirkjanokkar.is eða vera með nafn, kennitölu og símanúmer á
miða og afhenda við inngang. Útförinni verður streymt á
vefsíðunni streyma.is.
Jóhann Steinsson Erla Hrönn Snorradóttir
Elísabet S. Steinsdóttir Hreinn Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn