Morgunblaðið - 24.03.2021, Síða 21

Morgunblaðið - 24.03.2021, Síða 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 2021 renna sér með þeim á skíðum og reynum við að nýta hverja helgi til þess yfir vetrarmánuðina. Golf- dellan náði mér á yngri árum en hefur verið í fríi á meðan börnin hafa verið lítil og bíður betri tíma. Þessu til viðbótar fékk ég mikinn veiðiáhuga á síðasta ári enda kom maríulaxinn á land og fyrsta rjúp- an var skotin.“ Fjölskylda Eiginkona Gauta er Sigríður Vala Halldórsdóttir, f. 24.4. 1983, verkfræðingur. Þau eru búsett í Akrahverfi í Garðabæ. Foreldrar Sigríðar eru hjónin Halldór Jó- hannsson, 9.5. 1948, verkfræðingur og Nína Björg Ragnarsdóttir, f. 24.6. 1949, hárgreiðslukona. Þau eru búsett í Reykjavík. Börn Gauta og Sigríðar: Thelma, andvana fædd 12. sept- ember 2011; Edda Björk, f. 20. október 2012, og Halldór, f. 3. júlí 2014. Systkini Gauta eru Guðrún Reynisdóttir (Gunna Kilian), f. 1.10. 1967, verkefnastjóri hjá Há- skólanum í Minnesota, býr í Lake- ville í Minnesota í Bandaríkjunum, og Gísli Reynisson, f. 24.3. 1972, framkvæmdastjóri Spildu fast- eignafélags. Foreldrar Gauta: Reynir Ragn- arsson, f. 6.12. 1947, d. 22.10. 2016, starfaði sem löggiltur endurskoð- andi frá 1975 til dánardags, lengst af sem eigandi Þrepa ehf. endur- skoðunar, og Halldóra J. Gísla- dóttir, f. 14.11. 1947, starfaði sem grunnskólakennari. Þau gengu í hjónaband 15.6. 1968 og voru í hjúskap allt til dánardags Reynis. Arnar Gauti Reynisson Halldóra Guðrún Ívarsdóttir ráðskona í Reykjavík, f. á Skeggjastöðum á Skagaströnd Níels Hafsteinn Sveinsson bóndi á Kóngsbakka í Helgafellssveit, f. á Læk á Skagaströnd Ingibjörg Jónína Níelsdóttir húsfreyja og saumakona í Reykjavík Gísli Gíslason verslunarmaður í Reykjavík Halldóra J. Gísladóttir kennari í Reykjavík Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Haugi, f. í Tungu í Gaulverjabæjarhr. Gísli Brynjólfsson bóndi á Haugi í Gaulverjabæjarhreppi, f. á Sóleyjarbakka í Ytrihr. Jónína Guðjónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. í Unnarholti í Ytrihreppi, Árn. Reynir Snjólfsson verslunarmaður í Reykjavík, f. á Strýtu í Ölfusi Guðrún Reynisdóttir húsfreyja og fulltrúi í Reykjavík Ragnar Þorsteinsson gjaldkeri í Reykjavík Anna Kristín Aradóttir húsfreyja í Reykjavík, f. á Heyklifi í Stöðvarfirði Þorsteinn Sigurður Stefánsson kaupmaður í Reykjavík, f. á Desjarmýri á Borgarfirði eystra Úr frændgarði Arnars Gauta Reynissonar Reynir Ragnarsson löggiltur endurskoðandi í Reykjavík Góð þjónusta í tæpa öld 10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞÚ ÆTTIR AÐ DRÍFA Í AÐ ÁKVEÐA ÞIG. ÁBYRGÐIN RENNUR ÚT EFTIR KORTÉR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að umbera málgleði. ÉG PLANA TIL FRAMTÍÐAR ÞETTA GERIST EKKI AF SJÁLFU SÉR ÞÚ SAGÐISTÆTLA AÐ KOMA HEIM AF KRÁNNI FYRIR SJÖ! ÉG ER KOMINN HEIM FYRIR SJÖ! ÉG FÉKK MÉR SEX BJÓRA OG KOM SVO HEIM! „OG SVO ER ÞAÐ VIÐARKASSINN – HÓFLEGA VERÐLAGÐUR, EN ÞÓ NOKKUÐ FRAMBÆRILEGRI EN RUSLAGÁMURINN OKKAR.“ Dagbjartur Dagbjartsson rifjarupp á Boðnarmiði: „Hall- grímur Jónasson var oft fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands. Eitt sinn í náttstað kom upp koníaksflaska og var henni heilsað með þessum orð- um: Boðnarmjöður borinn er, bráðvelkominn sértu, jafnvel strax í gegnum gler geislavirkur ertu. Gleði eykur, glæðir von goðafæðan drjúga. Þetta sagði Salómon. Sá var nú ekki að ljúga.“ Um þessa stöku Þorgeirs Magn- ússonar segir Ragnar Ingi Að- alsteinsson: „Endurvinnsluvísa. Þessi er dásamleg“: Finni ég löngun, faðir minn, að fá mér ögn í tána hönd þín leiði mig út og inn alla leið á krána. Hjörtur Benediktsson yrkir við mynd af BBQ-kónginum til skýr- ingar: BBQ-kóngurinn kveikir eld úr kolagrillinu rýkur fullsaddir allir eru í kveld íbúar Grindavíkur. Norður í Mývatnssveit yrkir Friðrik Steingrímsson og spyr: „Er ég að missa af einhverju?“: Latur gjarnan heima hangi horfi varla á fréttirnar, mér skilst að það sé gos í gangi, getur einhver sagt mér hvar? Hreinn Guðvarðarson svarar: Inniveru oft þú kaust (allir hugsa um sig) Einhver veit það efalaust en ekki að spyrja mig. Indriði Aðalsteinsson hnykkir á: Friðrik ekkert fann í blöðum fróðleik engan sá á skjá. Gos er núna á Geldingsstöðum. Gengur býsna mikið á. Anna Dóra Gunnarsdóttir segir að ef hún muni rétt hafi einhver verið að leggja til að samin verði klepraverk: Þegar jörðin skekst og skelfur, skutlar flákum hrauns um völl, líst mér eins og eldsins elfur ætli að hlaða kleprafjöll. Guðrún Egilson orti eftir hrunið haustið 2008: Þaðan geisar nú gjaldþrotahrina og gapuxar benda á hina. Mér ungri var kennt og á það skal bent að auður er valtastur vina. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Góð upprifjun og endurvinnsluvísa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.