Morgunblaðið - 24.03.2021, Síða 28
KÖLD tónlistarhátíð hefst í Egilsbúð í Neskaupstað
annað kvöld, fimmtudag, og stendur í þrjú kvöld. Er
þetta í annað sinn sem hátíðin er haldin en á hátíðinni í
fyrra voru síðustu tónleikarnir á Austurlandi fyrir sam-
komuhömlur af völdum Covid-19.
Eyjólfur „Eyfi“ Kristjánsson ríður á vaðið með tón-
leikum annað kvöld. Á föstudag kemur Bríet fram en
uppselt er á tónleika hennar. Dagskránni lýkur svo með
rokktónleikum Dimmu á laugardagskvöldið en fé-
lagarnir leika sín þekktustu lög auk glænýs efnis.
Köld tónlistarhátíð í Neskaupstað –
Eyfi, Bríet og Dimma koma fram
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ensk ljóð og íslensk sönglög eru á
efnisskrá tónleika sem Ólafur Kjart-
an Sigurðarson óperusöngvari og
Tómas Guðni Eggertsson meðleikari
hans halda í kvöld í Vinaminni, safn-
aðarheimili Akraneskirkju, og hefjast
þeir klukkan 20. Mörg undanfarin ár
hefur Ólafur Kjartan starfað erlendis
og sungið fjölda hlutverka víða í Evr-
ópu, Bandaríkjunum, Ástralíu og í
Japan. Fyrir helgina kom hann fram
á söngskemmtun Íslensku óperunnar
í Hörpu og flutti þar, ásamt Bjarna
Frímanni Bjarnasyni, atriði úr
nokkrum þeim óperum sem hann hef-
ur fengist við á síðustu misserum.
Ólafur Kjartan Sigurðarson var 2001-
2004 fyrsti fastráðni söngvarinn við
Íslensku óperuna. Síðasta hálfan ann-
an áratuginn hefur hann að mestu
starfað erlendis; fyrst í Bretlandi en
frá 2007 í Þýskalandi hvar hann fékk
þá starf við óperuna í Saarbrücken.
„Í Saarbrücken gat ég „safnað rull-
um“ eins og sagt er í faginu,“ segir
Ólafur Kjartan sem býr í Berlín með
fjölskyldu sinni. Er lausamaður í list-
inni og syngur í óperuhúsum víða.
Hefur fengið ýmis hlutverk í óperum
meistara tónbókmenntanna og tekur í
sumar þátt í árlegri Wagnerhátíð í
Bayreuth í Þýskalandi.
Nýr Niflungahringur
„Hátíðin er í óperuhúsi Richards
Wagners sjálfs og lengi hefur verið
ætlun mín að komast þar á svið.
Wagnerhátíðin er merkileg fyrir þær
sakir að Wagner reisti þetta óperuhús
sjálfur, eingöngu til flutnings á eigin
óperum. Það er ómetanlegt fyrir
Wagnersöngvara að taka þátt í upp-
færslu á þessari hátíð, enda greiðir
það leið að jafnvel stærri húsum. Æf-
ingar í Bayreuth hefjast 1. júní og í
sumar syng ég hlutverk Biterolfs í óp-
erunni Tannhäuser. Jafnframt byrj-
um við að æfa nýja uppfærslu á Nifl-
ungahringnum sem frumsýnd verður
á næsta ári. Óperur Wagners verða
meðal minna helstu viðfangsefna
næstu ár. Þar með er talin uppfærsla
á Valkyrju Wagners sem verður upp-
hafsatriði Listahátíðar í Reykjavík
2022, “ segir Ólafur Kjartan.
Fyrir söngvara sem býr og starfar
erlendis er mikilvægt að koma heim
endrum og sinnum og heilsa upp á ís-
lenska áheyrendur og samstarfsfólk.
„Tengingarnar við mannskapinn hér
heima eru nauðsynlegar, ella fennir í
sporin,“ segir Ólafur Kjartan. Hér
heima eru þau Sigurbjörg Braga-
dóttir, kona hans, að sinna fjölskyldu
og gæta barnabarna og tónleikarnir
verða nokkrir.
Spennandi uppfærslur
„Gróskan í íslensku tónlistarlífi er
mikil, segir Ólafur Kjartan. „Til-
koma Hörpu hefur gert mikið fyrir
tónlistarflutning. Margir eru að gera
góða hluti í listinni og þar nefni ég til
dæmis meistara Daníel Bjarnason
tónskáld og hljómsveitarstjóra sem
samdi óperuna Brothers sem var
frumflutt í Danmörku árið 2017 og
ég tók þátt í. Sú uppfærsla og fleiri
staðfesta að óperan er langt frá því
að vera staðnað form. Alltaf má bú-
ast við nýjum eldgosum í óperu-
húsunum; spennandi uppfærslum
listafólks sem hefur mikinn metn-
að.“
Morgunblaðið/Eggert
Söngvari Gróskan í íslensku tónlistarlífi er mikil, segir Ólafur Kjartan sem hefur búið í Þýskalandi síðustu árin.
Eldgosið í óperunni
- Ólafur Kjartan syngur víða um lönd - Nú í stuttu stoppi
á Íslandi - Wagner verður helsta viðfangsefnið næstu árin
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,-
L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,-
LEUCA model 3186
L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,-
L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
ESTRO model 3042
L 164cm Leður ct. 10 Verð 359.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
LEVANTE model 3187
L 204 cm Leður ct. 25 Verð 459.000,-
L 224 cm Leður ct. 25 Verð 479.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
ETOILE model 2623
L 200 cm Leður ct. 25 Verð 549.000,-
L 230 cm Leður ct. 25 Verð 599.000,-
MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 83. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Rússar verða með sitt sterkasta mögulega lið þegar
þeir mæta Íslandi í Györ í Ungverjalandi á morgun í
fyrsta leiknum í úrslitakeppni Evrópumóts 21 árs lands-
liða í fótbolta. Enginn af leikmönnum 21 árs liðsins var
kallaður inn í A-landsliðshóp Rússa sem mæta Möltu,
Slóveníu og Slóvakíu í undankeppni HM á sömu leik-
dögum og 21 árs liðin spila í úrslitakeppninni. Reyndar
er einn leikmaður fæddur 2003 í rússneska A-hópnum
en honum var bætt við hann eftir að 21 árs liðið var val-
ið. »22
Rússland mætir til leiks með sitt
sterkasta lið gegn Íslandi í Györ
ÍÞRÓTTIR MENNING