Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.03.2021, Page 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.03.2021, Page 14
G laðbeitt börn á skólabekk. Kona á gangi í eyðimörkinni. Búfénaður að svala brennandi þorstanum. Vandvirkur hár- greiðslumaður. Konur að dæla vatni upp úr brunni. Áhugasamir piltar að læra tölvuviðgerðir. Það kennir margra grasa á ljósmyndasýningu Þorkels Þorkelssonar í Smáralindinni en hún er afrakstur heimsókna hans til Eþíópíu og Úganda á síðustu árum í tengslum við þróunarsamvinnuverkefni Hjálp- arstarfs kirkjunnar á þessum stöðum. Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálp- arstarfs kirkjunnar, er hæstánægður með samstarfið við Þorkel. Bjarni og samstarfsfólk hans hefur verið duglegt að taka ljósmyndir í heimsóknum sínum til Eþíópíu og Úganda en hann segir mann eins og Þorkel, sem býr að áratugareynslu sem fréttaljósmyndari, koma með miklu meiri dýpt inn í myndirnar. „Við er- um Þorkeli mjög þakklát fyrir hans framlag. Hann á heiður skilinn,“ segir Bjarni en Hjálp- arstarfi kirkjunnar er frjálst að nota myndir Þorkels að vild. „Myndir hans segja lifandi sögu og það er frábært að geta sett upp svona sýningu sem kynnir verkefnin okkar í Afríku fyrir Íslendingum frá víðara sjónarhorni. Von- andi er þetta bara fyrsta sýningin af mörgum á myndum Þorkels en hugur okkar stendur til að setja upp fleiri sýningar í kirkjum, safn- aðarheimilum og mögulega víðar.“ Það eru ekki bara myndirnar. „Glöggt er gests augað og það hefur verið gagnlegt fyrir okkur að fá sýn Þorkels á þessi verkefni. Hann féll strax fyrir Eþíópíu þegar hann kom fyrst þangað fyrir meira en tuttugu árum og er far- inn að þekkja vel til okkar starfs á þessum slóðum,“ segir Bjarni. Hjálparstarf í fimmtíu ár Tilefni sýningarinnar er að á síðasta ári voru fimmtíu ár liðin frá því að Hjálparstarf kirkj- unnar var sett á laggirnar. Til stóð að halda sýninguna þá en henni var frestað vegna kór- ónuveirufaraldursins, eins og svo mörgu. Sjálf- ur var Bjarni á leið til Eþíópíu þegar farald- urinn skall á í fyrra en þurfti að hætta við för sína. Hann komst að vonum ekkert utan á síð- asta ári en gerir sér vonir um að geta heimsótt landið seint á þessu ári eða snemma á því næsta. Bjarni og fleiri starfsmenn Hjálparstarfsins fara reglulega utan til að fylgjast með gangi mála í Eþíópíu og Úganda og segir hann bæði verkefnin ganga ljómandi vel. Það megi glöggt sjá á fyrir-og-eftir-myndum Þorkels sem til dæmis sýni brunn á svæði þar sem áður var brakandi þurrkur. Oft þarf ekki mikið til að auka lífsgæði fólksins á þessum stöðum. „Stærsta verkefnið okkar er í Sómalífylki í Eþíópíu en það hefur staðið í tíu ár og er stutt af utanríkis- og þróunarsamvinnuráðuneytinu. Við byrjuðum í Jijigahéraði og hefur verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar náð þar beint og óbeint til 130 þúsund manns og breytt lífi þeirra til hins betra. Fyrir þremur árum hóf- um við samstarfsverkefni í nágrannahéraðinu Kebri Beyah sem er austur af Jijica en það snýst sem fyrr um fæðuöryggi, aðgang að vatni og valdeflingu kvenna,“ segir Bjarni. Aukið sjálfstæði kvenna Hann kveðst sjá mun frá ári til árs en unnið er út frá sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóð- anna, fólkið á svæðinu á sjálft að taka verk- efnið yfir og bera ábyrgðina. Bjarni nefnir sem dæmi að konur í héraðinu hafi mestmegnis notað tíma sinn í að sækja vatn og eldivið, sinna börnum og elda mat, en í framhaldi af námskeiðum sem Hjálparstarf kirkjunnar hef- ur gengist fyrir um sparnað og smærri við- skipti séu þær í auknum mæli farnar að afla tekna sem þær fá sjálfar að ráða yfir. „Áður voru þær alfarið háðar eiginmanni sínum um fjármuni. Þetta gerir það að verkum að þær verða smám saman sjálfstæðari.“ Hefð er fyrir því að konur sæki vatnið í hér- aðinu og með tilkomu brunns eða vatnsþróar hafa þær mun meiri tíma til að sinna öðru enda ekki óalgengt að þær þyrftu að ganga í þrjá til fjóra tíma á dag til að sækja vatn til daglegra nota. „Við sjáum líka að fæðuöryggisþátturinn virkar, sem er mjög ánægjulegt, þannig að við getum farið að færa okkur austar á bóginn,“ segir Bjarni. Mikil spenna hefur verið í Eþíóp- íu undanfarna mánuði sem tengist ætt- bálkaerjum og deilum um yfirráð á landi. Verst hefur ástandið verið í Tigrayfylki í norð- urhluta landsins og enda þótt yfirvöld hafi nú náð tökum á uppreisnaröflum sem berjast fyr- ir sjálfstæði fylkisins kraumar ólgan undir niðri. „Það er mikill órói í landinu sem ekki sér Þar sem sagan lifnar við Sýning á ljósmyndum Þorkels Þorkelssonar frá Eþíópíu og Úganda stendur nú yfir í Smáralindinni fyrir atbeina Hjálparstarfs kirkjunnar en Þorkell hefur verið duglegur að fylgjast með starfinu á þessum slóðum á seinustu árum. Tilefnið er fimmtíu ára afmæli stofnunarinnar. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Bóndi í Sómalífylki í Eþíópíu svalar brennandi þorsta búfén- aðar síns. Gott aðgengi að vatni skiptir öllu máli þar um slóðir. Kona á gangi í eyðimörkinni í Eþíópíu. Ílát eru gjarnan borin á höfðinu. Tvennt hreyfðist ekki meðan smellt var af, fjallið og ílátið. Mikilvægt er að gefa ung- mennum í Afríku tilgang og tækifæri í þessu lífi. fyrir endann á en sem betur fer hefur ekki ver- ið vopnaður ófriður í okkar fylki,“ segir Bjarni. Verkmenntasmiðjur í Úganda Annað verkefni er í þremur fátækrahverfum í Kampala, höfuðborg Úganda, en þar hefur Hjálparstarf kirkjunnar sett upp verkmennta- smiðjur fyrir ungmenni á aldrinum 14 til 24 ára. Mikið atvinnuleysi er í þessum hverfum og marg- ir hafa komið utan af landi í von um vinnu. Þess í stað lendir fólk gjarnan í atvinnuleysi og leiðist jafnvel út í glæpi og/eða vændi. Smiðjunum er ætlað að hjálpa fólki að koma undir sig fótunum en þar má meðal annars læra hárgreiðslu, þjón- ustustörf, tölvu- og farsímaviðgerðir og klæð- skurð. Í framhaldi af námskeiðunum er fólk síðan aðstoðað við að komast í starfsnám. „Einnig er mikilvægt að fræða fólk um kyn- heilbrigði, getnaðarvarnir, réttindi, heilsu og fleira. Markmiðið er að fá 500 ungmenni í smiðjuna á ári enda er fátæktin oft og tíðum síst minni í borgunum en á landsbyggðinni,“ segir Bjarni. Hægst hefur á vegna veirunnar Kórónuveirufaraldurinn hefur herjað á Afríku eins og aðrar heimsálfur. Að sögn Bjarna hafa HJÁLPARSTARF 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.3. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.