Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.03.2021, Page 2
Hvað ertu að bardúsa?
Það er búið að vera mjög rólegt hjá mér í tónlist síðan
ég var í Söngvakeppninni 2019 en ég hef einnig verið
að reka veitingastaðinn minn Súpufélagið í Vík. Rétt
áður en Covid skall á var ég farinn að íhuga að hætta
þessu söngvarabrölti og einbeita mér alfarið að veit-
ingarekstri.
Hvað breyttist?
Vinir mínir og fjölskylda sögðu við mig að það hætti
enginn í tónlist fyrr en að hafa gefið út eina plötu. Svo
kom Covid og ég ákvað að eyða ekki þessu leiðindaári í
ekki neitt og fór að semja.
Þannig að Covid átti hlut að máli?
Covid gaf mér tíma til að setjast niður og hugsa um
hvað ég vildi gera og hvað ég vildi segja með plötu. Ég
fékk góðan tíma til að leita inn á við. Komast að því hver
ég væri og hvað ég vildi.
Um hvað fjallar platan?
Ég fór beint í það að skrifa um ástina; alls konar mismunandi
vinkla. Þetta er poppplata með jákvæðum boðskap og per-
sónulegum sögum. Tónlistin er undir áhrifum frá áttunda og
níunda áratugnum.
Hvenær kemur platan út?
Platan kemur öll út síðla sumars en fyrsta lagið verður frumflutt á
Spotify næsta föstudag. Það heitir Feels like home. Mig langar svo
að fara upp á svið og finna fílinginn aftur, því ég er bara búinn að
vera að elda súpur síðustu árin. Ég er ekkert að binda vonir við að
verða poppstjarna en langar að gera tónlist sem fólki finnst gaman
að hlusta á. Af hverju má ég ekki bara vera kokkur sem syngur?
Mig langar að gera bæði.
DANÍEL ÓLIVER
SITUR FYRIR SVÖRUM
Syngjandi
súpukokkur
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.3. 2021
Margrét Lilja Pétursdóttir
Ég myndi segja Pálmi Gestsson.
SPURNING
DAGSINS
Hvaða
íslenski
leikari er í
uppáhaldi?
Sigurður Sigurðarson
Edda Arnljótsdóttir.
Guðbjörg Ingólfsdóttir
Mér finnst hún Ilmur æðisleg!
Gísli Jónsson
Nú er úr vöndu að ráða. Ég hef ekki
myndað mér skoðun um það.
Daníel Óliver er söngvari og einn eiganda Súpufélagssins í Vík. Lagið
hans Feels like home kemur út föstudaginn 19. mars á Spotify.
Er ekki merkilegt hvað einstök orð geta skyndilega orðið frek til fjörsinsog sópað öðrum orðum út af borðinu án þess að hafa nokkurn skap-aðan hlut fyrir því? Orðið innviðir er gott dæmi. Upp úr miðjum síð-
asta áratug óx því snarlega fiskur um hrygg og á tímabili opnaði enginn
stjórnmálamaður munninn án þess að minnast á innviði eða öllu heldur skort
á þeim. Þetta er sérstaklega eftirminnilegt fyrir kosningarnar 2016 og 2017.
Við verðum að muna að spyrja pólitíkusana okkar um stöðuna á þessum
ágætu innviðum áður en kosið verður í haust. Innviðir eru svo sem víðar, ekki
síst í viðskiptum og rekstri. Þannig
var hermt af því í fréttum í vikunni
að Sýn hefði selt óvirka innviði fyrir-
tækisins á sex milljarða króna.
Hreint ekki slæmt. Hvað fengist þá
fyrir virka innviði?
Það kom ekki til af góðu en alls
konar gömul og guggin orð komust
aftur í tísku í fyrra, svo sem sóttkví.
Skyndilega var það á allra vörum.
Sóttkví kom aðeins við sögu í tutt-
ugu greinum í Morgunblaðinu árið
2019 en 909 greinum árið 2020. Það
segir sína sögu.
Mér er ljóst að ekki er einu sinni
liðinn hálfur þriðji mánuður af árinu
2021 en orð ársins er eigi að síður komið – sviðsmynd. Það ágæta orð átti að
vísu góða spretti á seinasta ári enda almannavörnum tamt og þríeykið hélt
því hátt á lofti meðan sóttin stóð sem hæst. Fyrst keyrði þó um þverbak þeg-
ar land fór að skjálfa á Reykjanesi fyrir hálfri þriðju viku. Eftir það hefur líf-
ið verið ein allsherjar sviðsmynd. Ég meina, það fer ekki nokkur maður út úr
húsi lengur án þess að vinna með að minnsta kosti þrjár sviðsmyndir.
Vísindamenn eru augljóslega miklir áhugamenn um sviðsmyndir og helsti
talsmaður þeirra í þessari skálfta- og gostíð, Kristín Jónsdóttir, fagstjóri á
sviði náttúruvár hjá Veðurstofunni, setti Íslandsmet í notkun orðsins á örfá-
um dögum – og það án atrennu. Í dag er nóg að sjá hana á skjánum til þess að
maður bregði ósjalfrátt upp fjórum eða fimm sviðsmyndum í sínu eigin lífi.
Annars hefur Kristín staðið sig eins og hetja í stöðugreiningu og miðlun
upplýsinga og í henni hefur þjóðin fundið sér nýjan Þórólf. Móður sem róar
þandar taugar barna sinna af yfirvegun, umhyggju og hlýju. Jafnvel mætti
kalla hana ljósmóður í öllum þessum hríðarverkjum þarna suður frá. Hvern-
ig er það annars, fer fjallið ekki að taka jóðsótt?
Jæja, látum þetta gott heita. Ég er farinn í kaupstaðarferð að fá mér svið á
BSÍ. Sendi ykkur mynd.
Í hvaða sviðsmynd
eru innviðirnir?
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’
Mér er ljóst að ekki er
einu sinni liðinn hálf-
ur þriðji mánuður af
árinu 2021 en orð ársins
er eigi að síður komið –
sviðsmynd.
Í baráttu við COVID-19
býður Donnamaska, grímur
og andlitshlífar sem eru
gæða vara frá DACH og
notuð um allan heim.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Öryggið í fyrirrúmi fyrir lærða sem leika
Sími 555 3100 www.donna.is
Heildsöludreifing
Type II 3ja laga
medical andlitsgríma
FFP3 Respirator Comfort
andlitsgríma með ventli
FFP3 High-Risk
andlitsgríma
Andlitshlíf
móðufrí
C-gríma Pandemic
Respirator andlitsgríma
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Árni Sæberg