Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.03.2021, Blaðsíða 29
vatni ausið hlaut það nafnið Neurotic
Boy Outsiders.
Idol og Stevens hurfu á braut eins
skjótt og þeir birtust, eins Boy-
liðurinn í nafninu. Hvort það var af
tillitssemi við Boy George, sem var á
dýpstu halamiðum í sínu skrautlega
lífi á þessum tíma, skal ósagt látið.
Víða liggja þræðirnir
Inn komu Steve Jones og John Tay-
lor, bassaleikarinn úr Duran Duran.
Ég botnaði hvorki upp né niður í
tengingunni og hélt því grúski mínu
áfram. Kom þá á daginn að sjálfur
Axl Rose hafði sungið eitt lag á sóló-
plötu Jones, Fire and Gasoline, árið
1989. Ian Astbury og Billy Duffy úr
The Cult komu einnig við sögu á plöt-
unni og sá fyrrnefndi var enn fremur
annar upptökustjóranna. Matt Sor-
um lék sem kunnugt er með The Cult
bæði áður og eftir að hann var í Guns
N’ Roses. Á þessari ágætu plötu er
meðal annars að finna ábreiðu af
Bowie-slagaranum Suffragette City.
Fyrir þá sem hafa áhuga á því.
Hitt var forvitnilegra, hvar lágu
leiðir Jones og Taylor saman? Sex
Pistols hafði komið, farið með him-
inskautum og kvatt áður en Duran
Duran kom fram á sjónarsviðið í
Bretlandi og markhópurinn allt ann-
ar. Hrátt pönk annars vegar og vin-
sældalistapopp hins vegar.
Jones rekst greinilega vel í hópi og
skaut upp kollinum á ótrúlegustu
stöðum á níunda áratugnum, meðal
annars í gamanþættinum vinsæla
Roseanne í Bandaríkjunum. Löngu
áður en Roseanne sjálf var rekin úr
þættinum. Þetta vita bara hans hörð-
ustu aðdáendur; fleiri gætu munað
eftir kappanum úr Ladies and
Gentlemen, The Fabulous Stains,
þar sem Diane Lane og Laura Dern
voru í aðalhlutverkum. Jones lék þar
sjálfan sig af fumleysi og aðdáunar-
verðu listrænu innsæi.
En jæja, hér erum við komin full-
langt út fyrir efnið. Hvernig er það,
er enginn að ritstýra þessari grein?
Jones músíseraði einnig með ófáum á
þessum árum, svo sem Andy Taylor,
gítarleikara Duran Duran.
Þannig hefur hann líklega komist í
kynni við John Taylor. Maður þekkir
mann sem þekkir mann, þið vitið. Vel
hefur greinilega farið á með þeim fé-
lögum en Jones var kvaddur á vett-
vang löngu síðar, nánar tiltekið árið
2015, til að leika á gítar í einu lagi á
breiðskífu Duran Duran, Paper
Gods.
Gerðu eina breiðskífu
Neurotic Outsiders sendu frá sér
eina breiðskífu, árið 1996, sem bar
nafn sveitarinnar. Þar er að finna
slagara á borð við Nasty Ho, Always
Wrong og Six Feet Under. Ári
seinna kom út fimm laga EP-plata,
Angelina, en eingöngu í Japan.
Breiðskífunni var fylgt eftir með tón-
leikaferð um Bandaríkin og Evrópu,
þar sem pönkbandið Fluffy hitaði
upp. Amanda Rootes, söngkona
sveitarinnar, minntist þeirrar ferðar
með hlýju í samtali við tónlistar-
tímaritið Select, ekki síst samveru-
stundanna með Jones. „Ég kalla
hann Stebba frænda. Hann minnir
mig svo á frændur mína, sem eru
svona glæpamannatýpur úr austur-
bænum.“
Sem kunnugt er þá komst Jones
oft og iðulega í kast við lögin á yngri
árum og hlaut nokkra dóma. Í endur-
minningum sínum, Lonely Boy, sem
komu út 2016, fullyrðir Jones að Sex
Pistols hafi bjargað honum frá því að
verða ótíndur glæpamaður. Gítarinn
tók við; hljóðfærið sem Jones kenndi
sér á sjálfur. Sagan segir að hann
hafi aðeins verið búinn að spila í þrjá
mánuði á gítar þegar Sex Pistols kom
fram á sínum fyrstu tónleikum. En
pönkið snerist svo sem, eins og við
munum, meira um einarða afstöðu en
listrænt atgervi. Við hliðina á Sid Vi-
cious var Jones líka eins og hver ann-
ar virtúós. Hann spilar líka flestar
bassalínurnar á Never Mind the Bol-
locks, Vicious réð hreinlega ekki við
það. En sá lúkkaði, maður lifandi. Sá
lúkkaði!
Jones var lengra kominn í tónlist
þegar Neurotic Outsiders voru og
hétu. Verst að platan þeirra er víst
með öllu ófáanleg.
Bandið lagði upp laupana árið 1997
en kom aftur saman á nokkrum tón-
leikum 1999 og að því er virðist 2006
líka. Ekkert hefur heyrst um frekara
samstarf og mögulega tónleikahald
en vel yrði án efa tekið á móti Neuro-
tic Outsiders hérna uppi á skerinu.
Ég meina, Pistols, Guns og Duran.
Það er allt í málinu ...
AFP
14.3. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
GLÆÐUR Eins afdráttarlaust og
það var þegar bandið lagði upp
laupana árið 2019 þá halda menn
áfram að spyrja um endurkomu
þrasskónganna í Slayer. Gary Holt
gítarleikari fékk þessa spurningu í
hlaðvarpinu Rocking With Jam
Man á dögunum og gat litlu svarað.
„Persónulega væri ég til í tuskið en
það er ekki í mínum verkahring að
taka þá ákvörðun, ekki einu sinni
að velta vöngum yfir þessu. Ég veit
ekki betur en bandið sé hætt. Ég
hugsa bara um Exodus í dag.“
Oft er í holti heyrandi nær
Gary Holt væri svo sem til í tuskið.
AFP
BÓKSALA 3.-9. MARS
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1
Það hófst með leyndarmáli
Jill Mansell
2
Dulmál Katharinu
Jørn Lier Horst
3
Fyrsta málið
Angela Marsons
4
Vítisfnykur
Mons Kallentoft
5
Leyndarmálið okkar
Ninni Schulman
6
Eldarnir
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
7
Spegilmennið
Lars Kepler
8
Hulduheimar 10
Rosie Banks
9
Hulduheimar 9
Rosie Banks
10
Herbergi í öðrum heimi
María Elísabet Bragadóttir
1
Hulduheimar 10
– vatnaliljutjörn
Rosie Banks
2
Hulduheimar 9
– draumadalurinn
Rosie Banks
3
Litlir lærdómshestar – stafir
Elizabeth Golding
4
Sóley og töfrasverðið
Eygló Jónsdóttir
5
Tryllti tannlæknirinn
Huginn Þór Grétarsson
6
Vampirína – heima er
hryllilega best
Walt Disney
7
Litlir lærdómshestar – orðin
Elizabeth Golding
8
Dularfulla styttan og
drengurinn sem hvarf
Snæbjörn Arngrímsson
9
Risasyrpa – botnlaus
byggingarvinna
Walt Disney
10
Undraverð dýr 2
Huginn Þór Grétarsson
Allar bækur
Barnabækur
Á tímum jarðhræringa, heimsfar-
aldurs og óróapúlsa er ágætt
(eða jafnvel nauðsynlegt) að leiða
hugann að öðru með lestri. Þeg-
ar við hverfum inn í heim bók-
anna skiptum við út eigin vanda-
málum fyrir áhyggjur
sögupersóna. Þannig getum við
sótt innblástur eða einfaldlega
flúið veruleikann um stundarsakir
og gleymt nöfn-
um eins og Þrá-
insskjaldarhraun
og Litli-hrútur …
að því gefnu að
snarpur skjálfti fái
okkur ekki til
þess að líta upp
úr bókinni og
týna staðnum.
Á undanförnum vikum hafa
þrjár bækur staðið upp úr hjá
mér en þær eru Mynd af ósýni-
legum manni eftir Paul Auster,
Becoming Beauvoir eftir Kate
Kirkpatrick og
The Idiot eftir
Elif Batuman.
Mynd af
ósýnilegum
manni er sjálfs-
ævisöguleg nóv-
ella eftir Paul
Auster. Bókin
segir frá sambandi bandaríska rit-
höfundarins við föður sinn,
Samuel Auster, sem er nýlátinn
þegar drepið er niður í sögunni.
Það kemur í hlut sonarins að
ganga frá dánarbúi föður síns
sem var bæði einrænn og fjar-
lægur. Sagan fylgir Paul í gegnum
þessa einmanalegu daga þar sem
hann fer í gegnum eignir Samu-
els Austers og reynir að koma
heimili hans á sölu. Í tiltektunum
afhjúpast síðan fjölskylduleynd-
armál sem varpa ljósi á þennan
hlédræga mann sem hleypti eng-
um að sér. Bókin er skrifuð af
einlægni og trega en það er eins
og hún sé tilraun Pauls til þess að
halda lífi í þessum dularfulla föð-
ur sem hann vill ekki kveðja al-
veg strax. Textinn er ljóðrænn
(íslensk þýðing Jóns Karls Helga-
sonar frá 2004 er afar góð) og
hefur að geyma sígildar vanga-
veltur um lífið og dauðann.
The Idiot er þroskasaga hinnar
18 ára Selin sem stundar nám við
Harvard á 10.
áratug síðustu
aldar. Selin
dreymir um að
verða rithöfundur
og á í flóknu sam-
bandi við ung-
verska stærð-
fræðinginn Ivan.
Frásögnin er
fyndin og djúpvitur lýsing á
heimssýn ungrar listakonu. Þetta
er fyrsta skáldsaga Elif Batumann
sem var tilnefnd til Pulitzer-
verðlauna árið 2018.
Loks vil ég mæla með Becom-
ing Beauvoir eftir Kate Kirkpat-
rick. Bókin er nýleg ævisaga
franska heimspekingsins Simone
de Beauvoir. Kirkpatrick byggir á
áður óbirtum dagbókum og bréf-
um de Beauvoir sem varpa nýju
ljósi á þessa merkilegu konu sem
var meðal helstu hugsuða Evrópu
á 20. öld.
VICTOR KARL MAGNÚSSON ER AÐ LESA
Að gleyma nöfnum eins
og Þráinsskjaldarhraun
Victor Karl
Magnússon er
meistaranemi í
rökfræði við
háskólann í
München.
R
GUNA
GÓÐAR
I