Fréttablaðið - 27.08.2021, Blaðsíða 1
1 6 8 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 2 7 . Á G Ú S T 2 0 2 1
Svo miklu meira
en bara ást
Samdi líklega
um sjötíu lög
Lífið ➤ 18 Tímamót ➤ 10
Af 3.011 tilkynningum um
aukaverkanir vegna bólusetn-
ingar hafa átta sótt um bætur
frá Sjúkratryggingum Íslands.
Bótamálin eru misalvarleg
en þau tengjast allt frá yfirliði
upp í blóðtappa.
mhj@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Sjúkratryggingum
Íslands hafa borist átta umsóknir um
bætur vegna aukaverkana í kjölfar
bólusetninga gegn Covid-19.
Á sama tíma hefur Lyfjastofn-
un fengið 3.011 tilkynningar um
aukaverkanir, þar af 191 alvarlega.
Berglind Karlsdóttir, deildarstjóri
hjá Sjúkratryggingum Íslands,
segir að allur gangur sé á alvarleika
málanna átta sem hafa komið inn á
þeirra borð. „Við sjáum allt frá yfir-
liði upp í blóðtappa,“ segir Berglind.
Engar umsóknir hafa borist um
bætur vegna tímabundinnar löm-
unar en bótaskyldan vegna bólu-
setninga við Covid-19 var rýmkuð
með lagabreytingu um áramótin.
„Bótaskyldan er víðtækari að því
leyti að almennt eru bara sjaldgæfar
og alvarlegar aukaverkanir tryggðar.
Það var tekið út varðandi Covid-19
bólusetninguna. Eina skilyrðið er
að tjónið nái lágmarksbótum sem
er í kringum 121 þúsund krónur.
Það getur verið bæði líkamlegt tjón
eða vinnutjón svo dæmi séu tekin,“
segir Berglind.
Samkvæmt Rúnu Hauksdóttur
Hvannberg, forstjóra Lyfjastofn-
unar, er erfitt fyrir stofnunina að
meta hvort einhverjar af þeim auka-
verkunum sem hafa verið tilkynntar
séu líklegar til að vera langvarandi og
eða valda örorku.
Af þeim alvarlegu aukaverkunum
sem hafa verið tilkynntar eru blóð-
tappar algengastir. „Það eru þarna
andlát og það hafa verið gerðar tvær
úttektir á því.
Það eru blóðtappar, tímabundin
lömun og andlitslömun. Blóðtapp-
arnir eru kannski stærsti einstaki
þátturinn fyrir utan andlát í þessum
flokki,“ segir Rúna.
Skilyrði fyrir bótum eru orsaka-
tengsl milli bólusetninga og tjóns
en það mat hefur ekki átti sér stað á
þeim umsóknum sem SÍ hefur feng-
ið. „Þetta eru það nýlegar umsóknir.
Þetta er sjúklingatrygging sem nær
til allra aukaverkana og slysa í heil-
brigðisþjónustu þannig að það er
frekar langur afgreiðslutími. Það er
ekki komið að því að við samþykkj-
um bótaskyldu,“ segir Berglind.
SJÁ SÍÐU 4
Átta hafa sótt um
bætur í kjölfar
bólusetningar
Það eru þarna andlát
og það hafa verið
gerðar tvær úttektir á
því.
Rúna Hauksdóttir Hvannberg,
forstjóri Lyfjastofnunar.
Brennur fyrir
nýjum áskorunum
Allt - 2
Mikil skelfing ríkti í Kabúl í gær eftir að fjöldi fólks lét lífið í hryðjuverkaárásum við alþjóðaflugvöllinn. Íslamska ríkið
lýsti yfir ábyrgð á árásunum. Þúsundir bíða enn á flugvellinum í von um að komast burt. SJÁ SÍÐU 6 FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
benediktboas@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Björn Jón Bragason
sagnfræðingur fékk í gær formlega
afsökunarbeiðni frá Áslaugu Örnu
Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráð-
herra vegna framgöngu ráðuneytis-
ins gagnvart Birni í bréfamáli hans
gegn Haraldi Johannessen ríkislög-
reglustjóra.
Umboðsmaður Alþingis hafði
áður komist að þeirri niðurstöðu að
brotið hefði verið gegn þeim Birni og
Sigurði Kolbeinssyni og fór fram á að
ráðuneytið rétti sinn hlut sinn gagn-
vart þeim.
Björn var ánægður með afsök-
unarbeiðnina enda bar ráðuneytinu
að beita yfirstjórnunarheimildum
sínum gagnvart Haraldi og áminna
hann. „Ég vil trúa því að það horfi til
varnaðar að embættismenn séu til-
búnir að játa mistök og biðjast afsök-
unar á þeim,“ segir hann. n
Ráðherra biðst afsökunar