Fréttablaðið - 27.08.2021, Page 2

Fréttablaðið - 27.08.2021, Page 2
Klassísk byrjun Íslenskur bóndi tekur upp fimmtugustu uppskeruna af blómkáli á næstunni og veðurskilyrðin gera það að verkum að það gæti verið besta uppskeran frá upphafi. Framleiðendur finna fyrir auknum áhuga Íslendinga á blómkáli. kristinnpall@frettabladid.is LANDBÚNAÐUR „Ég er 62 ára og kom í sveit á einu stærsta blómkálsbúi landsins tólf ára gamall. Þar ólst ég upp fimm sumur í röð hjá Ein- ari Hallgrímssyni, einum fremsta blómkálsbónda landsins, og fór frá honum í Garðyrkjuskólann. Þann- ig hefst vegferðin á þessum fimmtíu árum. Mér brá í vor þegar ég áttaði mig á því að þetta væri í fimmtugasta skiptið sem ég var að hefja ræktun- ina,“ segir Guðjón Birgisson garð- yrkjubóndi, sem fagnar fimmtíu ára afmæli í blómkálsræktun á þessu ári. Guðjón rekur ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Helgu Karlsdóttur, gróðrarstöðina Mela á Flúðum þar sem þau rækta einnig tómata, gúrkur og ýmiss konar salat. „Þetta er frekar einhæfur starfs- ferill, en það er ekki bara blómkál sem við erum að vinna við. Við erum með stóra garðyrkjustöð sem vinnur ýmiss konar grænmeti. Þetta er enn þá bara svo gaman,“ segir hann glettinn, aðspurður hvernig maður endist svona lengi í sama starfi. „Við höfum alveg tekið eftir aukningunni í eftirspurninni eftir blómkáli á síðustu árum enda er þetta mjög góð vara sem hægt er að nota ýmist í lágkolvetnalífsstíl eða grænkeralífsstíl,“ segir Guðjón, sem er að taka upp eitt besta blómkál sem hann man eftir. „Árið í fyrra var mjög gott blóm- kálsár, uppskeran aðeins seinni í ár en hún kemur afskaplega vel út. Það þarf ýmislegt til, eins og hag- stæða veðurátt eins og við fengum í sumar.“ Framkvæmdastjóri Sölufélags garðy rkjumanna, Gunnlaugur Karlsson, tekur í sama streng. „Uppskera þessa árs kemur seinna inn en með miklum látum. Það var næturfrost í vor sem olli mönnum áhyggjum en síðan þróast sumarið þannig að skilyrðin voru frábær til blómkálsræktunar. Við höfum aldrei séð flottara blómkál en er að koma upp núna og vonandi næst að anna eftirspurninni sem er mikil.“ Gunnlaugur segir að það hafi margt breyst þegar kemur að eftir- spurn eftir blómkáli á síðustu árum. Sífellt fleiri veitingastaðir eru farnir að bjóða upp á blómkál í hinum ýmsu útfærslum sem hugnast græn- kerum og eru blómkálsvængir þar sérstaklega vinsælir. „Þetta er gríðarleg aukning á síðustu árum. Það þarf ekkert að fara langt aftur í tímann til að finna tíma þar sem það var lítið sem ekk- ert grænmeti við borðið. Grænkerar eiga hrós skilið fyrir að hafa komið fram með ýmsar nýjungar, sérstak- lega þegar kemur að blómkáli.“ n Fimmtugasta uppskeran líklega sú besta frá upphafi Guðjón segist ekkert vera búinn að fá nóg eftir fimmtíu ár við ræktun blómkáls. MYND/AÐSEND Við höfum alveg tekið eftir aukningunni í eftirspurninni eftir blómkáli á síðustu árum enda er þetta mjög góð vara. Guðjón Birgisson bóndi. Renndu við og fáðu lyn afgreidd beint í bílinn www.lyfsalinn.is BÍLAAPÓTEK VIÐ VESTURLANDSVEG odduraevar@frettabladid.is COVID-19 Heilbrigðisráðuneytið hyggst svara grundvallarspurn- ingum um fyrirkomulag á notkun hraðprófa vegna Covid-19 á næstu dögum. Samkvæmt upplýsingum frá Lyfju er búist við því að slík próf fari í sölu á næstu dögum og landsmenn geti því stungið pinnum sjálfir upp í nef til að úrskurða hvort þeir séu með veiruna eða ekki. Hraðprófin eru meginforsenda til- slakana sem eiga að taka gildi nú á laugardag en þar er gert ráð fyrir að notkun prófanna geri 500 manna viðburði að möguleika á ný. Mis- munandi er hvort hraðpróf eru fram- kvæmd af þjálfuðum aðila eða af einstaklingum. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sagt prófin gagnleg en að þau geti ekki gefið 100 prósent rétt svar. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra sagði í gær að prófin yrðu ekki tekin í notkun strax. Hún bend- ir á að það sé í algjörum forgangi að svara spurningum eins f ljótt og auðið er um það hvernig lands- mönnum verður gert að nota prófin. Líklegt má telja að notkun hrað- prófa fyrir viðburði muni verða í höndum einstaklinga. Þar skiptir sköpum að prófin séu framkvæmd á réttan hátt en unnið er að fram- leiðslu sýningarmyndbanda í apó- tekum landsins. n Óljóst hvernig hraðprófin verða notuð Sóttvarnalæknir segir prófin gagnleg þótt þau geti ekki gefið 100 prósent rétt svar. arnartomas@frettabladid.is VEÐUR Hvassviðri verður á landinu í dag, einna helst á Snæfellsnesi þar sem spáð er að vindurinn muni ná yfir tuttugu metrum á sekúndu í kringum hádegisbilið. „Þetta er voðalega staðbundið og stendur ekki lengi yfir, en fólk á norðanverðu Snæfellsnesi, þar sem þetta er hvað mest, er vant öðru eins,“ segir Páll Ágúst Þórarinsson veðurfræðingur. „Svo er þetta aðeins á Faxaflóasvæðinu og kannski best að fara varlega með aftanívagna ef verið er að fara úr bænum. Við höfum ekki gefið út viðvörun en það er gott að passa að ökutæki taki ekki á sig of mikinn vind.“ Páll segir hvassviðrið ágætis merki um að tekið sé að halla á sumarið og haustið sé að gera vart við sig. „Þó að við séum ekki að skoða nein met í samanburði við önnur ár þá er samt enn þá hlýtt,“ segir hann. „Það hefur verið það og heldur líklega eitthvað áfram inn í næstu viku.“ n Hvassviðri spáð á landinu í dag Hvassast verður á vestanverðu landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnar Kviku Reykjavíkurskákmótið á Hótel Natura formlega. Um er að ræða Evrópumót einstaklinga í skák þar sem Katrín lék fyrsta leikinn fyrir hönd Gawain Jones með klassískri byrjun, 1. e4. Þrátt fyrir að hafa fengið leiðsögn fullvissaði hún viðstadda um að hún hefði sjálf opnað á sama máta. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR 2 Fréttir 27. ágúst 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.