Fréttablaðið - 27.08.2021, Page 6

Fréttablaðið - 27.08.2021, Page 6
16.30 Leikskólum í Reykja- vík verður áfram lokað klukkan 16.30. Aðalfundur Hallgrímssafnaðar Sunnudaginn 5. september 2021 er boðað til aðalsafnaðarfundar Hallgrímssafnaðar í Hallgrímskirkju að guðsþjónustu lokinni. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Sóknarnefnd Hallgrímskirkju FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut Sprengjur voru sprengdar við alþjóðaflugvöllinn í Kabúl í gær. Íslamska ríkið hefur lýst yfir ábyrgð á árásunum. thorvaldur@frettabladid.is AFGANISTAN Að minnsta kosti tvær sprengjur voru sprengdar fyrir utan alþjóðaf lugvöllinn í Kabúl í gær. Íslamska ríkið lýsti yfir ábyrgð á samfélagsmiðlum en þegar Frétta- blaðið fór í prentun var óttast að í það minnsta hundrað hefðu látist og fjölmargir slasast. Fyrri sprengingin átti sér stað nálægt Abbey-hliðinu á f lugvell- inum, sem breskir hermenn hafa staðið vörð um undanfarna daga. Það er eitt þriggja hliða sem hefur verið lokað vegna yfirvofandi hryðjuverkaógnar. Síðari sprengingin átti sér stað nálægt Baron-hótelinu sem breskt herlið hefur notað sem varðstöð til að undirbúa brottflutning breskra ríkisborgara og Afgana frá flugvell- inum. Myndir sem voru teknar á f lug- vellinum sýna lík á sprengjusvæðinu og fjölmarga slasaða Afgana. Debo- rah Haynes, ritstjóri Sky News, ræddi við fyrrverandi túlk breska herliðsins í Kabúl sem sagðist hafa verið að bíða eftir flugi ásamt konu sinni og börnum þegar sprenging- arnar áttu sér stað. „Þetta var eins og dómsdagur, slasað fólk alls staðar. Ég sá fólk hlaupandi um blóðugt í framan og á líkamanum,“ sagði hann. Samkvæmt afganska blaðamann- inum Bilal Sarwary voru árásar- mennirnir í það minnsta tveir við Abbey hliðið. Annar þeirra á að hafa sprengt sig í loft upp á meðan hinn hóf skothríð á mannþröng fyrir framan flugvöllinn. Bandaríska varnarmálaráðu- neytið Pentagon staðfesti í gær að bandarískir hermenn og ríkisborg- arar hefðu fallið í árásinni. „Við getum staðfest að spreng- ingin nálægt Abbey-hliðinu var af leiðing f lókinnar árásar sem olli dauða fjölda bandarískra og óbreyttra borgara,“ skrifaði John Kirby, fjölmiðlafulltrúi Pentagon, á Twitter. Joe Biden Bandaríkjaforseti var upplýstur um stöðu mála og talaði til þjóðarinnar seint í gærkvöld. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hélt neyðarfund vegna tíðindanna og Emmanuel Mac- ron Frakklandsforseti staðfesti að Frakkar myndu halda áfram brott- f lutningi sinna ríkisborgara þrátt fyrir árásina. Gífurlegt öngþveiti hefur verið við flugvöllinn frá því að talibanar her- tóku Kabúl þann 15. ágúst. Þúsundir manna hafa haldið til fyrir utan flugvöllinn og freistað þess að kom- ast úr landi og sumir jafnvel hangið utan á bandarískum herflugvélum við flugtak. n Óttast að yfir hundrað hafi látist í árásum við alþjóðaflugvöllinn í Kabúl Heilbrigðisstarfsmenn og sjúkraliðar flytja særðan mann til aðhlynningar eftir sprengingarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Flúði með fjölskylduna frá Kabúl til Íslands Fazal Omar flúði frá Kabúl á mánudag ásamt konu sinni og fjórum börnum. Omar er Afgani með íslenskan ríkisborgararétt en hann kom hingað fyrst árið 2001 á flótta undan Talibönum. „Allir eru hræddir og reyna að flýja frá Afganistan. Við vitum ekki hvað gerist,“ segir Omar, sem er staddur á sóttkvíarhóteli ásamt fjölskyldu sinni. Omar segist ekki hafa búist við því að ástandið í Kabúl myndi versna svo fljótt. Hann fékk hjálp frá íslenskum fulltrúa Atlantshafsbandalagsins við að komast á flugvöllinn og lýsir ástandinu þar sem skelfilegu. „Talibanar, þeir lömdu alla með prikum, meira að segja litla fjögurra ára stelpan mín var lamin, hún grét svo mikið. Þetta var alveg hræðilegt og mikill mannfjöldi, þannig að maður gat ekki hreyft sig. Margir misstu meðvitund, vegna hitans og loftsins.“ Omar segir framtíð Afganistan myrka en hann er þó feginn því að hafa komist til Íslands með fjölskyldu sína. „Ég á dætur og ég er heppinn, því að minnsta kosti eru börnin mín á lífi. Þau eru Íslendingar og hafa rétt á því að vera á venju- legu svæði í venjulegu lífi, af þeirri ástæðu er ég glaður.“ Nánar á frettabladid.is Fazal Omar ásamt eiginkonu sinni og fjórum börnum. MYND/AÐSEND 30 milljónir búa í Afganistan. 6 sinnum stærra landsvæði en Ísland. 15 milljónir íbúa þurfa aðstoð. 10 milljónir íbúa lifa við hungurmörk. 400-500 þúsundir flóttafólks á hverju ári. Ástandið í Afganistan arib@frettabladid.is  AUSTURLAND Búið er að sprengja öll fjölda- og tekjumet í Vök Baths á Egilsstöðum í sumar. Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, framkvæmda- stjóri Vök Baths, segir að hún hafi sjálf verið í því að hlaupa á eftir glösum gesta í sumar. „Sumarið gekk rosalega vel frá og með 23. júní,“ segir Aðalheiður. Segir hún tekjuaukning- una nema 57 prósentum milli ára. Fram að því var útlitið ekki mjög bjart vegna áhrifa Covid-faraldurs- ins. Flestir sem komu í sumar voru Íslendingar. „Þegar mest gekk á voru um 70 prósent Íslendingar og 30 pró- sent erlendir ferðamenn.“ Það er búið að vera mikið að gera á Austurlandi í sumar. „Það var ein að sækja dóttur sína í vinnuna á N1 sem endaði á því að hjálpa til við uppvaskið í klukkutíma,“ segir Aðal- heiður og hlær. Skúli Björn Gunnarsson, for- stöðumaður Sk r iðuk lau st urs, segir að erlendir ferðamenn hafi tekið við þeim íslensku eftir versl- unarmannahelgina. „Þeir hafa ekki mikið verið að koma í þessa seinni hitabylgju,“ segir Skúli. Á sex vikna tímabili, frá síðari hluta júní og fram í ágúst, var fjöl- mennt á svæðinu. „Menn komust varla fyrir með sín hjólhýsi og annað. Þetta er lengsta slík törn sem ég hef upplifað síðustu tuttugu árin. Það hafa auðvitað komið vikur þegar Reykvíkingurinn er orðinn þreyttur á rigningunni en núna komu þeir og plöntuðu sér niður.“ Lá ra Vilberg sdót t ir, f ra m- kvæmdastjóri Húss handanna sem selur hönnun og listhandverk á Egilsstöðum, segir að minnst helmingi f leiri hafi komið í sumar en í fyrra. „Við erum alveg vön góðu veðri en þetta hefur slegið öll met. Þessi síðasta bylgja sem hófst fyrir viku er punkturinn yfir i-ið,“ segir Lára. „Það er búið að vera skraut- legt ástand í matvöruverslununum. Dagleg vara hefur verið uppseld og mikil áskorun fyrir verslanirnar að kaupa nóg inn.“ Lára segir að veðrið hafi vegið upp á móti áhrifum faraldursins. „Ég held að það séu ekki allir búnir að ná upp veltunni eins og hún var árin 2018 og 2019, en allavega þá held ég að þetta hafi verið helmingi betra en fyrrasumar.“ nw Veðrið hefur áhrif á afkomuna Aðalheiður Ósk Guðmunds- dóttir, fram- kvæmdastjóri Vök Baths Hildur Björnsdóttir lagðist alfarið gegn styttingunni. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR thorgrimur@frettabladid.is REYKJAVÍK Stytting á opnunartíma leikskóla, sem hefur verið lokað klukkan 16.30 vegna Covid-farald- ursins frá því í fyrra, verður varan- leg frá og með 1. nóvember næst- komandi. Var sú ákvörðun tekin af meirihluta skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar á þriðjudaginn. Breytingin fer ekki vel í Albínu Huldu Pálsdóttur, áheyrnarfulltrúa foreldra leikskólabarna hjá ráðinu. „Mér finnst þetta ekki jákvæð breyt- ing,“ segir hún. „Þetta er skerðing á þjónustu við foreldra, sem ég held að viti betur hvaða skipulag hentar þeim til þess að þeir geti átt gæða- stundir með börnunum sínum.“ „Þessar hugmyndir voru upphaf- lega kynntar í ársbyrjun 2020 og ég lagðist þá alfarið gegn þessu,“ segir Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. „Ákveðið var að fresta breytingunni og hún lögð í jafnréttismat. Niðurstöður voru nákvæmlega það sem maður hafði óttast, að þetta myndi koma verst niður á vinnandi mæðrum, fólki sem er í vaktavinnu eða með lítinn sveigjanleika í störfum, á fólki af erlendum uppruna sem er með lítið bakland, og svo fólki sem býr í efri byggðum og þarf að vera lengi í umferðinni á hverjum degi.“ Hildur segist hafa ítrekað mót- mæli sín við breytingunni. „Ég ótt- aðist alltaf að þetta væri upphafið að endinum í þessu máli, og svo var það ákveðið í vikunni af meiri- hlutanum í ráðinu að skerða þetta varanlega.“ n Þjónustuskerðing að loka leikskólum hálftíma fyrr 6 Fréttir 27. ágúst 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.