Fréttablaðið - 27.08.2021, Page 11
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 27. ágúst 2021
„Nýja starfið leggst strax vel í mig og mér finnst frábært að vera komin aftur til starfa á háskólasvæðinu,“ segir Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch, framkvæmda-
stjóri Raunvísindastofnunar Háskólans. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Með ástríðu fyrir áskorunum
Nýr framkvæmdastjóri Raunvísindastofnunar Háskólans, Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch, er
vísindamaður, frumkvöðull og fyrrverandi landsliðskona í taekwondo. Hún er heilluð af
vísindum og nýsköpun þar sem endalaust er leitað svara við flóknum spurningum.
starri@frettabladid.is
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch
komið víða við og náð mjög góðum
árangri á sviði vísinda, rannsókna
og reksturs sprotafyrirtækja. Hún
tók við stöðu framkvæmdastjóra
Raunvísindastofnunar Háskólans
í upphafi ágústmánaðar þar sem
hún mun takast á við mörg stór
verkefni sem hún segist kjósa að
líta á sem tækifæri. „Nýja starfið
leggst strax vel í mig og mér finnst
frábært að vera komin aftur til
starfa á háskólasvæðinu. Vísindin
hafa alltaf heillað mig og ég þekki
það vel hvernig er að vinna við
rannsóknir úr fyrri störfum og
doktorsnáminu þannig að þetta
umhverfi hentar mér vel. Sam-
starfsfólk mitt hefur tekið mjög vel
á móti mér og það er greinilegt að
hér er framúrskarandi fólk í öllum
stöðum,“ segir Sandra, sem verður
33 ára síðar á árinu.
Lánsöm með starfsferilinn
Sandra er með doktorspróf í líf-
og læknavísindum frá Háskóla
Íslands. Hún var einn af stofn-
endum Platome líftækni og
var framkvæmdastjóri þess frá
stofnun til ársins 2018.
Hún hefur einnig starfað sem
aðjunkt við Læknadeild Háskóla
Íslands og sem vörustjóri og
síðar framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs hjá íslenska lyfja-
fyrirtækinu Florealis. Auk þess
starfaði hún um tíma sjálfstætt
sem ráðgjafi í nýsköpun. „Ég hef
verið mjög lánsöm allan minn
starfsferil og fengist við mörg
spennandi verkefni með frábæru
fólki. Það var auðvitað gífurlega
lærdómsríkt að stofna eigið fyrir-
tæki, byggja það upp og reka það.
Ég var bara doktorsnemi í hvítum
slopp og hafði ekki hugmynd um
hvernig maður rekur fyrirtæki
þegar við stofnuðum Platome
líftækni.“
thordisg@frettabladid.is
Enn er sumar og víða heitt og
sólríkt. Þá er alltaf tími fyrir
svalandi góðan frostpinna og
einkar skemmtilegt fyrir krakka að
spreyta sig á frostpinnagerð heima.
Það var reyndar ellefu ára gamall
drengur, hinn bandaríski Frank
Epperson, sem fann upp frostpinn-
ann árið 1905, alveg óvart, en
við hin njótum enn góðs af hans
óvæntu uppfinningu. Frank skildi
eftir bolla með vatni á veröndinni
heima hjá sér yfir nótt og hrærði
gosdufti með ávaxtabragði saman
við vatnið með litlum trépinna.
Blandan fraus um nóttina og þar
með varð til fyrsti frostpinninn,
sem bragðaðist eins og heimsins
besta sælgæti. Frank fór í nær-
liggjandi skemmtigarð með góð-
gætið og seldi það líka krökkunum
í hverfinu við góðar undirtektir,
en það var ekki fyrr en átján árum
síðar sem hann fékk einkaleyfi fyrir
uppfinningu sinni á „frosnum ís á
priki“, sem hann kallaði „epsicle“,
en það voru börn Franks sem
breyttu nafninu síðar í „popsicle“. n
Frostpinnasaga
Gómsætur frostpinni kætir alla,
sama hvað á dynur. FRETTABLADID/GETTY
Frostpinnadraumur
Heimagerðir frostpinnar eru
gómsætir. Nota má alls konar
ávexti, líka jógúrt, ís og hvað-
eina sem löngunin kallar á. Hér
er einföld og góð uppskrift:
1 bolli jarðarber
½ bolli vanilluís eða jógúrt
1 bolli mjólk
1 msk. sykur
Hrærið öllu saman þar til
blandan er mjúk. Setjið í
frostpinnamót og frystið.
KOMIN
AFTUR!