Fréttablaðið - 27.08.2021, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 27.08.2021, Blaðsíða 14
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, 2 kynningarblað 27. ágúst 2021 FÖSTUDAGURNÝSKÖPUN Á ÍSLANDI Alls bárust 459 umsóknir í Tækni- þróunarsjóð í mars síðastliðnum og af þeim hlutu 73 verkefni styrk. Í þessari úthlutun voru styrk- veitingar til nýrra verkefna 907 milljónir króna en eftir er að veita seinni úthlutun sem verður fyrir áramót. Að sögn Sigríðar er um að ræða stærsta einstaka ár í úthlutun Tækniþróunarsjóðs frá upphafi. „Fólk sækir um í þann flokk sem samsvarar því hvar verkefnið er statt í ferlinu. Í boði fyrir næstu úthlutun eru styrktarflokkarnir Fræ, Sproti, Vöxtur og Markaður. Einnig styrkir sjóðurinn yfir árið til dæmis hagnýt rannsóknarverk- efni og einkaleyfiskostnað. Þann 15. september rennur út umsóknarfrestur í aðra styrkveit- ingu sjóðsins og hvetjum við ein- staklinga og fyrirtæki í nýsköpun og þróun eindregið til þess að senda inn umsóknir,“ segir Sig- ríður og bætir við: „Í ár er nýjung hjá okkur að halda vinnustofu fyrir verkefni sem fengu úthlutað úr Sprota styrktarflokknum í vor.“ Dafna – fyrir Sprota Af 73 verkefnum sem hlutu styrk úr Tækniþróunarsjóði í vor voru 20 sprotaverkefni og í kjölfarið var tveimur aðilum úr hverju sprota- verkefni boðið að taka þátt í vinnustofunni Dafna. „Dafna er vinnustofa og mentor prógramm sem haldin er í sam- starfi við Icelandic Startups.“ Dafna er sérhannað fyrir sprotafyrirtæki sem eru að hefja starfsemi en þurfa frekari stuðning til þess að keyra hugmyndina áfram til uppbygg- ingar. Sprotaþegar úr Tækniþró- unarsjóði fá úthlutun upp á allt að 20 milljónum á tveimur árum. „Okkur hefur alltaf langað til þess að gera meira fyrir styrkþega okkar og leiðbeina þeim frekar eftir að styrkurinn hefur verið veittur. Þetta verkefni hefur því verið lengi í bígerð og er nú loksins orðið að veruleika. Við höfum enda fundið þörf á því að fylgja eftir verkefnun- um sem fá styrk úr Sprotasjóðnum, svo fólk sé ekki bara skilið eftir með tékkann í höndunum. Tilvera Dafna samræmist einnig nýrri og öflugri klasastefnu sem ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, setti fram í vor. Þarna eru verkefni komin með vissan grunn enda eru umsækj- endur vissulega búnir að sannfæra sjóðinn um að veita sínu verkefni styrk. Dafna byggir á því að veita styrkþegum skýrari innsýn í stöðu verkefnisins og veita viðeigandi aðstoð og stuðning. Við fáum sér- fræðinga til okkar í vinnustofuna sem hjálpa fólki að koma auga á hvar verkefnið er statt, hvernig fjármunum sé best varið til þess að halda áfram vexti, hvernig má sækja um fleiri styrki og margt fleira,“ segir Sigríður. Mikilvægur mentor Í lok vinnustofunnar fær hvert teymi sinn eigin persónulega leið- beinanda sem vinnur með þeim í vinnustofunni, en hittir teymið svo aftur eftir þrjá mánuði, og svo sex mánuði. „Þess er krafist að styrkþegar skili framvindu- skýrslu og árangursskýrslu og það breytist ekki, en núna höfum við þetta samtal við styrkþega sem mun sannarlega veita þeim auka stuðning og okkur innsýn í verk- efnin. Þau hjá Icelandic Startups voru afar lunkin við að finna hina fullkomnu leiðbeinendur fyrir teymin. Um er að ræða mentora sem búa yfir sérþekkingu á við- komandi sviði. Með þessu öðlumst við meiri samskipti við styrk- þegana og getum gefið þeim enn betri möguleika á að efla verkefnin sín. Leiðbeinandinn fræðir teymin meðal annars um hvar sé best að byrja við stofnun fyrirtækis. Hvort næsta skref sé að ráða inn starfs- fólk eða kaupa þjónustu hjá öðrum fyrirtækjum. Hann getur leiðbeint við umsókn á einkaleyfum eða hugverkavernd ef þess er þörf og margt fleira.“ Dafna í Grósku „Við höfum komið okkur fyrir hér í Grósku í Vatnsmýrinni sem er hin fullkomna staðsetning fyrir starf- semi af þessari gerð. Vinnustofan hefur nú staðið yfir í eina viku og lýkur í dag, föstudag. Teymin hitt- ust daglega og ýmis mál tekin fyrir. Hingað hafa komið fyrirlesarar sem hafa öðlast dýrmæta reynslu úr bransanum og miðla sinni þekkingu með þátttakendum. Í fyrirlestrunum var til dæmis farið út í grunn atriði í vöruþróun og markaðssetningu svo og fjár- hagsáætlanir og almennt skipulag í upphafi fyrirtækjareksturs.“ Þrír sérfræðingar stýrðu vinnu- stofunum en þeir eru Kristján Schram, strategískur markaðs- ráðgjafi, Magnús Þór Torfason, dósent við viðskiptafræðideild HÍ, og Magnús Ingi Óskarsson, sjálf- stæður frumkvöðlaráðgjafi. Mun fleiri mentorar munu fylgja hinum ýmsu verkefnum eftir og ráðast þeir af eðli og stöðu verkefna en einnig óskum þátttakenda. „Herlegheitunum lýkur svo í dag með uppskeruhátíð. Þá ætlum við að fjalla um mikilvægi teymismyndunar sem er algjörlega lykilatriði í allri nýsköpun.“ Opin dagskrá Dafna Það væri óskandi að hægt væri að styrkja fleiri verkefni enda margar mjög frambærilegar umsóknir sem ná ekki að hljóta styrk enda fjár- magn takmarkað. En til að mæta að einhverju leyti öllum þeim sem sækja um þá höfum við ákveðið að taka upp fyrirlestra vinnustofunn- ar og munum gera þá aðgengilega á vefsíðu Tækniþróunarsjóðs fyrir áhugasama.“ Mikilvæg innbyrðis tengsl „Eins og er þá erum við að prufu- keyra þessa vinnustofu og sjá hvernig hún gengur og hvaða áhrif hún hefur á velgengni verkefn- anna. Ég tók stuttan púls á þátt- takendum í miðri vinnustofu og það voru allir ótrúlega jákvæðir og bjartsýnir og fannst þetta afar mikilvæg viðbót við styrkjakerfið. Vonandi er þetta komið til að vera. Það hefur svo verið ómetanlegt fyrir öll þessi teymi að hittast inn- byrðis. Því þótt verkefnin séu ólík í grunninn; sum snúa að hugbún- aði, önnur að vélum, enn önnur að þjónustu eða annað; þá eru þetta allt sprotar. Það eru allir að takast á við það að stofna fyrirtæki og kljást við svipaðar áskoranir. Sumir eru komnir lengra en aðrir en það hefur myndast gott samtal á milli teymanna sem hjálpar öllum. Það er afar einmanalegt að vera einn sproti úti í horni, en þegar margir sprotar koma saman, þá myndast skógur.“ Viljum vera sýnileg „Við í Tækniþróunarsjóði viljum vera enn sýnilegri í nýsköpun- arumhverfinu og munum því vera með fasta viðveru í Grósku á ákveðnum tímum. Þá munum við bjóða fólki ráðleggingar og leiðbeiningar um umsóknir í kringum Tækniþróunarsjóð eða skylda sjóði. Hvert nýsköpunar- verkefni getur boðið upp á marga möguleika og því er mikilvægt að eiga gott samtal um hvers eðlis verkefni eru og hvar sé best að landa þeim. Ef fyrirtæki er til dæmis orðið eldra en fimm ára, þá eiga þau heima í vissum flokkum, einnig getur velta haft áhrif og f leira. Það fer nefnilega heilmikil vinna í umsóknir og þá er gott að ganga úr skugga um, áður en hafist er handa, hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að sækja um í tiltekinn sjóð. Við erum líka með tengsl erlendis og getum gefið ráð- leggingar varðandi styrktarum- sóknir út fyrir landsteinana og veitum mjög gjarnan ráðgjöf og upplýsingar um tengiliði,“ segir Sigríður. Mikilvægur meðbyr frá stjórnvöldum „Við höfum verið afar ánægð með þann stuðning sem við höfum fengið frá stjórnvöldum í kjölfar Covid enda var framlag í Tækni- þróunarsjóð aukið verulega.“ Fjöldi f lottra verkefna kom á borð til okkar og var heildareink- unn umsækjenda í ár nokkuð há. Þar á meðal voru mörg frábær verkefni sem við myndum vilja sjá fara alla leið en náðu því miður ekki í gegn hjá okkur. Enda veltur það alltaf á buddunni hverju sinni hversu mörg verkefni hljóta styrk en það er algengt að aðilar sæki aftur um og ekki bara einu sinni. Ég vildi bara óska að við gætum veitt f leiri verkefnum styrk og ég vona að það verði áfram aukning í fjárveitingum til nýsköpunarmála líkt og verið hefur. Það er ljóst að hér er mikil gróska. Við vanmetum oft hina séríslensku bjartsýni, kraft, óþrjótandi orku og vinnugleði sem einkennir fólkið hér. Þessi trú á að hlutirnir reddist og bjargist er einstök. Það má til dæmis sjá þessa virkni í gegnum Covid, hversu hratt við brugðumst við og hve samtaka þjóðin var í öllu. Þetta sýnir sig sannarlega líka í nýsköpunarsenunni,“ segir Sig- ríður að lokum. ■ Næsti umsóknarfrestur í Tækni- þróunarsjóð verður 15. septem- ber 2021 og stefnt er að úthlutun í byrjun desember. Nánari upp- lýsingar má nálgast á rannis.is og tths.is. 2021 hefur verið stærsta árið í sögu styrkveitinga úr Tækniþróunarsjóði. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Sigríður segist vona að það verði áfram aukning í fjár- veitingum til ný- sköpunarmála líkt og verið hefur, enda sé gróskan mikil í senunni. Þátttakendur hlusta á fróðlegan fyrirlestur. Dafna er haldið í samstarfi við Icelandic Startups. Vonandi er Dafna vinnustofa komin til að vera. Það er ómetanlegt fyrir teymin að hittast innbyrðis.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.