Fréttablaðið - 27.08.2021, Qupperneq 15
Selma Karlsdóttir hefur
þróað heilsuapp fyrir hunda.
Hún segir Íslendinga vera
óhrædda við að ráðast í
hlutina og framkvæma,
sem sé helsti styrkur okkar
í nýsköpunarumhverfinu.
Fyrirtækið stefnir á alþjóða-
markað.
starri@frettabladid.is
PetFitHealth er heilsuapp fyrir
hunda sem Selma Karlsdóttir á
hugmyndina að og hefur verið
með í þróun í rúmt ár. Hugmyndin
kviknaði eftir að hún eignaðist
hund fyrir nokkrum árum, sem
eignaðist hvolpa og lenti í yfir-
þyngd. „Mér fannst erfitt að halda
utan um allt varðandi hundana
mína og fannst vanta einn stað
fyrir heilsufarsbækur, þjálfun,
göngutúra of fleira. Fólk póstar
oft myndum af dýrunum sínum
á Facebook og þar má finna alls
konar hópa en í þessu appi er
hundurinn og allt sem honum
fylgir á einum stað,“ segir Selma,
sem í dag á tvo hunda af Coton de
Tulear kyni, mæðgurnar Phoebe
og Daisy.
Spennandi að kortleggja hunda
Hún segir það vera góða tilfinn-
ingu að geta séð hversu mikla
hreyfingu hundarnir fá í hverri
viku og hversu mikinn mat þeir
fá. „Svo skiptir miklu máli að geta
séð hvort þeir séu í yfirþyngd, sem
er því miður að verða algengara
en áður. Hundar eru að greinast
með sömu lífsstílssjúkdómana
og við mannfólkið. Það er mjög
spennandi að geta kortlagt hunda
og hundaeigendur í heiminum og
fylgst með öðrum um leið. Ég fékk
dýralækni til liðs við mig, Elísa-
betu Fjóludóttur, og svo fyrirtækið
Rusticity til að sjá um forritun og
hönnun en þetta er búið að vera
mjög skemmtilegt ferli.“
Krefst mikillar skipulagningar
Selma hefur undanfarna tvo ára-
tugi starfað sem framleiðandi og
þjónustað fyrirtæki á borð við
Discovery channel, Paramount
Pictures og Breska Vogue og unnið
við fjöldann allan af auglýsingum.
„Það er mjög skemmtilegt og krefj-
andi starf og krefst mikillar skipu-
lagningar. Árið 2012 stofnaði ég
lúxus köfunarþjónustuna Magma-
dive ásamt breskum félaga mínum
og bjó til skemmtilegan pakka
með Norðurflugi sem kallast Heli-
Dive. Hann hefur notið mikilla
vinsælda en þar fórum við með
efnaða kafara í Silfru, Strýtuna og
fleiri skemmtilega staði.“
Stefna á alþjóðamarkað
Í dag er appið tilbúið til prufu-
keyrslu og það styttist óðum í að
allir hundaeigendur geti sótt það
í símann sinn, segir Selma. „Við
viljum auðvitað allt það besta fyrir
besta vin okkar, ekki satt? Fyrir-
tækið stefnir á alþjóðamarkað og
sjáum við fyrir okkur að appið geti
ekki bara nýst hundaeigendum
heldur líka tryggingafélögum,
dýralæknum og öllum þeim sem
vilja bæta þjónustu sína varðandi
hunda og hundahald.“
Hún segir mikinn vöxt vera í
hundaeign um allan heim og það
að hundaeigendur séu tilbúnir til
að eyða peningum í þá hafi leitt af
sér fjölda nýrra viðskiptatækifæra.
„Gæludýraiðnaðurinn velti um 100
milljörðum dollara fyrir heims-
faraldurinn bara í Bandaríkjunum
og iðnaðurinn fer vaxandi, þá sér-
staklega þegar kemur að hundum.“
Góð ráð gulli betri
Hún hefur góða reynslu af
nýsköpunarumhverfinu hérlendis.
„Ég var svo heppin að fá tækifæri
til að vera í Grósku, hugmynda-
húsinu í Vatnsmýrinni, í sumar í
gegnum Startup SuperNova en þar
fengum við tækifæri til að hlusta
á frábæra fyrirlestra og tala við
leiðbeinendur sem eru hoknir af
reynslu. Þetta var frábær skóli.“
Einn kosta nýsköpunarum-
hverfisins hér á landi að hennar
mati er sá að hægt er að sækja um
styrki á mörgum stöðum, auk þess
sem auðvitað sé hægt að leita út
fyrir landsteinana líka.
„Eitt er að fá styrk en það er
gríðarlega mikilvægt að hitta fjár-
festa og ná sér í góðar tengingar í
gegnum þá. Svo er alltaf verðmætt
að fá góð ráð frá reynslumeira
fólki. Hugvit einstaklinga er mikil-
vægasta uppspretta nýsköpunar og
nýsköpun er grundvöllur efna-
hagslegrar velgengni. Því er mikil-
vægt að styðja við sprotafyrirtæki.
Hér er vel haldið utan um hlutina
en auðvitað má alltaf gera betur.
Sjálf hef ég mjög góða tilfinningu
fyrir íslenska nýsköpunarum-
hverfinu og fylgdist með öðrum
sprotafyrirtækjum í tengslum við
Startup SuperNova sumar. Við
eigum svo ótrúlega mörg spenn-
andi fyrirtæki sem um leið eru svo
skemmtilega ólík. Íslendingar eru
óhræddir við að ráðast í hlutina
og framkvæma en það tel ég vera
mikinn styrk.“ n
Viljum allt það besta fyrir besta vin okkar
Selma Karlsdóttir er stofnandi Pet-
FitHealth. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Í appinu PetFitHealth er hægt að hafa allar upplýsingar um hundinn og allt sem honum tengist á einum stað.
ENVALYS vinnur að verkefn-
inu Sjálfbærar borgir fram-
tíðarinnar og hefur þróað
hugbúnaðarlausnir til að
smíða og birta þrívíð gagn-
virk umhverfi af stórum
landsvæðum. ENVALYS
leggur áherslu á að skoða
sálfræðileg áhrif umhverfis
á fólk.
Í gegnum verkefnið Sjálfbærar
borgir framtíðarinnar hefur fyrir-
tækið ENVALYS þróað hugbúnað-
arlausnir til að smíða og birta þrí-
víð gagnvirk umhverfi af stórum
landsvæðum með skjótum hætti.
Einnig bjóða þær upp á að hanna
og keyra sálfræðilegar athuganir
á samspili fólks og umhverfis og
safna gögnum og birta.
Páll Jakob Líndal, annar eigenda
ENVALYS, segir fyrirtækið leggja
áherslu á einfalda, skjóta og öfluga
innleiðingu sálfræðilegra athug-
ana inn í hönnunar- og skipulags-
ferla.
„Slíkt skapar aukna þekkingu
og betri skilning á samspili fólks
og umhverfis, eflir samstarf milli
ólíkra hópa, samráð við íbúa og
tryggir að sjálfbær þróun eigi sér
áfram stað innan samfélagsins.
Allir þessir þættir auka skilvirkni
í skipulags- og hönnunarferlum,
sem aftur sparar tíma og fjár-
muni,“ segir hann.
Hann segir tilgang og markmið
ENVALYS þríþættan: Í fyrsta lagi
að auka þekkingu og vægi sálfræði-
legra þátta, svo sem upplifunar
fólks, þarfa, væntinga, viðhorfa
og/eða langana í hönnun, mótun
og skipulagi umhverfis. Í öðru lagi
að nýta þá öflugu tölvutækni sem
í boði er til að þróa aðferðir og
lausnir sem auðvelda innleiðingu
sálfræðilegra athugana inn í
hönnunar- og skipulagsferla og í
þriðja lagi að veita ráðgjöf á sviði
umhverfissálfræði.
„Það er sú grein innan sál-
fræðinnar sem fjallar um hvernig
umhverfið hefur áhrif á okkur
og hvernig við höfum áhrif á
umhverfið. ENVALYS sprettur
af brennandi löngun til að skilja
betur af hverju umhverfi hefur góð
og slæm áhrif á okkur,“ segir Páll.
Páll segir áhrif umhverfis á
upplifun og líðan fólks hafa oft
lítið vægi þegar kemur að hönnun
umhverfis og skipulagsgerð. En í
doktorsnámi sínu skoðaði hann
áhrif byggðs umhverfis á líðan
fólks og nýtti sér gagnvirka þrí-
víddartækni. Þegar hann lauk
námi ákvað hann ásamt Hannesi
Högna Vilhjálmssyni, sem er
hinn eigandi ENVALYS, að setja
saman rannsóknarverkefnið Sjálf-
bærar borgir framtíðarinnar, sem
byggði á sömu hugmyndafræði og
aðferðum og doktorsnámið.
Styrkirnir skipta sköpum
Verkefnið hófst árið 2014 eftir að
Rannsóknasjóður Íslands veitti
þeim þriggja ára styrk. Síðan þá
hefur verkefnið tvívegis fengið
styrk frá Tækniþróunarsjóði til
frekari þróunar á tæknilausnum
og aðferðafræði.
„Þessir styrkir hafa gert okkur
kleift að byggja upp vísinda-
legan og tæknilegan grunn fyrir
ENVALYS og skapað okkur tæki-
færi til mæta þörfum sérfræðinga,
iðnaðarins og annarra í samfélag-
inu, um manneskjumiðaða borgar-
hönnun með því að nýta vísinda-
legar niðurstöður,“ segir Hannes.
Hugbúnaðarlausnirnar sem
ENVALYS hefur þróað kallast
VRPsychLab og VRTerrain. Hannes
útskýrir að VRTerrain sé tækni
sem fléttar saman innviða-, skipu-
lags- og landfræðigögnum til að
búa sjálfvirkt til þrívíddarlíkön í
háum gæðum, þar sem er hægt að
spóka sig um umhverfið og skoða
mismunandi útfærslur á skipulagi
og hönnun mannvirkja.
„Styrkur VRTerrain er áherslan
á náttúrulegu umgjörðina. Það
mætti segja að gróðurinn vaxi,
fjallgarðarnir rísi og sjórinn falli
að landi, án þess að maður þurfi
nokkuð að gera í höndunum,“ segir
hann.
„VRPsychLab er hins vegar
rannsóknarverkfærið okkar og
með því er hægt að búa til, á auga-
bragði, vefkönnun sem sameinar
allar helstu tegundir spurninga
og áhrifamikla þrívíddarfram-
setningu, til dæmis á umhverfi
sköpuðu með VRTerrain. Hægt er
að senda slíka könnun út á netið,
með einum músarsmelli, og fylgj-
ast með framvindu þátttakenda í
rauntíma. Kerfið birtir svo niður-
stöður á myndrænu mælaborði og
loks hægt að flytja gögn inn í öll
helstu gagnagreiningarforritin.“
Aðspurður hvers virði þessar
lausnir séu fyrir viðskiptavini segir
Páll oft hægara sagt en gert að lesa
úr og skilja hefðbundna hönnunar-
og skipulagsuppdrætti.
„Þrívídd hins vegar skilja allir
og þannig skapar hún grunn fyrir
markvissari umræðu og upplýstari
ákvarðanatöku,“ segir hann.
Hann segir markhóp fyrirtækis-
ins vera alla sem hafa áhuga á að
kanna samspil fólks og umhverfis.
Sveitarfélög hafa verið helstu sam-
starfsaðilar þess fram að þessu
en áhugi einkaaðila hafi vaxið að
undanförnu. n
Nota þrívídd til að skoða samspil fólks og umhverfis
Páll Jakob Líndal og Hannes Högni Vilhjálmsson hafa þróað hugbúnað sem
býr til sjálfvirk þrívíddarlíkön. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR
Hugbúnaðurinn
býr til umhverfi
í þrívídd.
kynningarblað 3FÖSTUDAGUR 27. ágúst 2021 NÝSKÖPUN Á ÍSLANDI