Fréttablaðið - 27.08.2021, Síða 20
Responsible Foods er íslenskt
nýsköpunarfyrirtæki, stofn-
að árið 2019 af doktor Holly
T. Kristinsson matvæla- og
næringarfræðingi. Fyrir-
tækið þróar og framleiðir
einstakt heilsunasl, Næra™,
úr íslenskum hráefnum með
nýrri framleiðslutækni, sér í
lagi mjólkurvörum og sjávar-
fangi.
Holly er með langa reynslu úr mat-
væla- og innihaldsefnaiðnaðinum í
Bandaríkjunum og rekur fyrirtæk-
ið með eiginmanni sínum, doktor
Herði G. Kristinssyni, sem var áður
rannsókna- og nýsköpunarstjóri
Matís. Þau eru bæði með doktors-
gráður í matvælafræði og áratuga
reynslu á rannsóknum og þróun
matvæla og innihaldsefna.
„Ég ólst upp í Alaska við mjög
holla fæðu, sambærilega þeirri
sem Íslendingar þekkja,“ segir
Holly, sem kolféll fyrir íslenskum
hráefnum og matvælum þegar hún
flutti til Íslands.
„Ég sá strax mikil tækifæri í að
koma þeim á framfæri á erlendum
mörkuðum en á alveg nýju formi
sem uppfyllir þarfir neytenda
nútímans,“ útskýrir Holly um tilurð
fyrirtækisins Responsible Foods.
„Hugmyndin var að sameina
einstaka vinnslutækni, íslenskt
hugvit og íslensk hráefni til að
þróa og framleiða hollar og lítið
unnar hágæða naslvörur fyrir bæði
erlendan og innlendan markað.
Fyrirtækið er með einkarétt á
einstakri vinnslutækni sem gerir
mögulegt að þurrka mismunandi
hráefni mjög hratt við lágt hitastig,
þannig að bragðgæði og næringar-
innihald þeirra haldist. Tæknin
hefur einnig þann eiginleika að
naslvörurnar fá skemmtilega
stökka áferð sem neytendur eru
mjög hrifnir af,“ greinir Holly frá.
Poppað nasl úr skyri
Responsible Foods setti sínar
fyrstu vörur á markað í fyrravetur
og þeim var strax tekið fagnandi
af neytendum. Vörurnar fást í
f lestum stórverslunum landsins og
einnig smærri verslunum.
„Við hófum útflutning á þessu
ári og höfum meðal annars flutt út
vörur til Asíu og Bandaríkjanna og
stefnum á Evrópumarkað í haust,“
upplýsir Hörður.
Í vinnslu fyrirtækisins að
Grandagarði í Reykjavík er fram-
leitt stökkt og próteinríkt nasl úr
mismunandi tegundum íslenskra
osta auk þess sem fyrirtækið fram-
leiðir algjöra nýjung á heimsvísu,
en það er poppað nasl unnið úr
fersku, íslensku skyri.
„Skyrneysla hefur vaxið hratt
ytra á síðustu árum en hingað til
hefur ekki fengist nasl framleitt
úr skyri. Varan, sem er með langt
geymsluþol, á eftir að höfða til
breiðs hóp neytenda, en markaður
hollra naslvara vex hratt þessa
dagana,“ segir Hörður, en þess má
geta að fyrirtækið hefur fengið
styrki frá Matvælasjóði og Tækni-
þróunarsjóði til að þróa skyrnaslið
áfram fyrir erlenda markaði.
Framúrskarandi viðtökur
Nýlega náði Responsible Foods
þeim stóra áfanga, aðeins sex
mánuðum eftir að vörurnar komu
á markað, að verða sigurvegari í
World Dairy Innovation Awards
fyrir bestu próteinvöruna úr
mjólk. Sigurvegarinn var Næra™
prótein-ostanaslið sem unnið er
úr íslenskum próteinríkum osti.
Einnig lenti fyrirtækið í öðru sæti
fyrir besta naslið úr mjólk fyrir
Næra™ skyrnaslið sitt og lenti í
úrslitum sem besta nýja vöru-
merkið eða fyrirtækið. Fyrirtækið
keppti við mörg stór og öflug
alþjóðleg fyrirtæki og er þetta
því mikil viðurkenning fyrir lítið
nýsköpunarfyrirtæki og íslenskan
matvælaiðnað.
Þessa dagana er Responsible
Foods að setja upp sína seinni
vinnslu í samstarfi við Loðnu-
vinnsluna á Fáskrúðsfirði. Þar
verða þróaðar og framleiddar
naslvörur úr mismunandi íslensku
sjávarfangi.
„Naslið verður alveg ný tegund
af bragðgóðu, stökku fiskinasli
sem verður laust við sterku fisk-
lyktina sem einkennir hefðbund-
inn harðfisk. Responsible Foods
hefur unnið mikla þróunarvinnu
tengt naslinu, sem meðal annars
hefur verið stutt af Tækniþróunar-
sjóði,“ upplýsir Hörður.
Naslið hefur fengið framúrskar-
andi viðtökur í neytendaprófum,
bæði hérlendis og erlendis. Varan
á mikla möguleika á erlendum
mörkuðum þar sem ekkert sam-
bærilegt nasl er til staðar úr sjávar-
fangi.
„Hin mikla fiskilykt og bragð
sem einkennir harðfisk höfðar
ekki til allra, en þessi nýja vara
hefur meðal annars fengið hæstu
einkunn hjá neytendum sem
jafnvel borða ekki venjulega fisk,
hvað þá harðfisk. Næstu misseri
stefnum við á mikla aukningu
útflutnings á okkar vörum, með
áherslu á markaði þar sem eftir-
spurn eftir hollum naslvörum er
mikil,“ segir Holly. ■
Sjá nánar á naerasnacks.is
Einstakt heilsunasl úr íslensku skyri og sjávarfangi
Responsible
Foods vann
nýlega fyrstu og
önnur verðlaun
World Dairy Inn-
ovation Awards
fyrir Næra™ pró-
tein ostanaslið
og skyrnaslið,
aðeins sex mán-
uðum eftir að
vörurnar komu á
markað.
MYND/ ÁRNI
HRÓLFSSON
Næra™ skyr-
nasl er hollt og
gott heilsunasl
sem þegar
hefur verið
tekið fagnandi
á Íslandi og í
Bandaríkjunum.
MYND/ CAT
GUNDRY-BECK
Naslið verður ný
tegund af stökku og
bragðgóðu fiskinasli sem
er laust við sterku fisk-
lyktina sem einkennir
hefðbundinn harðfisk.
Dr. Holly T. Kristinsson
8 kynningarblað 27. ágúst 2021 FÖSTUDAGURNÝSKÖPUN Á ÍSLANDI
Advania býður fyrirtækjum
upp á mannauðslausnina
Samtal sem hefur ein-
faldleika og tímasparnað
umfram aðrar lausnir.
Mannauðslausninni Samtal er
ætlað að uppfylla þörf starfsfólks og
stjórnenda fyrir regluleg samtöl sín
á milli út frá hugmyndafræði um
mannauðsstjórnun eftir þörfum,
að sögn þeirra Guðríðar Hjördísar
Baldursdóttur, vörustjóra mann-
auðslausna Advania, og Sigrúnar
Óskar Jakobsdóttur, mannauðs-
stjóra Advania. „Samtal er lausn
fyrir alls konar samtöl á milli starfs-
fólks og stjórnenda, hvort sem það
er starfsmannasamtal, samtal um
laun, starfsþróun eða stutt snerpu-
samtal,“ segir Guðríður og bætir
við: „Þörfin fyrir mannauðslausn
eins og Samtal kom fram í vinnu-
stofum með stjórnendum og mann-
auðsfólki sem talaði um að stjórn-
endur vildu vera sjálfstæðir í sinni
mannauðsstjórnun og á sama tíma
óskaði mannauðsfólk eftir að geta
sett fram fagleg sniðmát og haft þau
aðgengileg fyrir stjórnendur.“
Með sjálfstæði er átt við að
stjórnendur geti framkvæmt sam-
tal hvenær sem þeir vilja eða þörf
er á en að sama skapi séu samtölin
byggð á faglegum grunni „Samtal
er þróað í samvinnu við fyrir-
tæki til að fá fram þarfir notenda.
Lausnin er í stöðugri þróun með
samtölum við notendur um það
hvernig má gera hana einfalda en
árangursríka.“
Hentar allri starfsemi
Þær segja að við þróun Samtals
hafi verið haft að leiðarljósi að
lausnin myndi henta fyrir hvaða
starfsemi sem er, enda kallar
fámennur starfsmannahópur líka
á faglegt samtal milli starfsfólks
og stjórnenda. „Fyrir fjölmennari
starfsemi er ekki síður þörf fyrir
að fylgja eftir framkvæmd samtala
með góðri yfirsýn. Breytt vinnu-
fyrirkomulag eins og fjarvinna
hefur aukið þörfina fyrir tíðari
samtöl um líðan, hæfni og frammi-
stöðu.“
Einstaklega einfalt viðmót
Lausnin er aðgengileg á vef fyrir
starfsfólk, stjórnendur og mann-
auðsfólk. „Viðmótið er einstaklega
einfalt. Starfsfólk og stjórnendur
eru fljót að tileinka sér að nýta
lausnina í að undirbúa sig fyrir
samtöl,“ segir Guðríður.
Þörfin fyrir stafrænar mannauðs-
lausnir jókst til muna þegar ný
persónuverndarlöggjöf tók gildi
því samtöl eru trúnaðarmál á milli
starfsfólks og stjórnenda, bætir
Sigrún við. „Því er æskilegt að halda
utan um þau gögn á stafrænan og
öruggan hátt. Einfaldari fram-
kvæmd með samtölum í vefvið-
móti skapar meira rými fyrir sjálft
samtalið og minni tíma í umsýslu
og skjölun. Það léttir á öllum sem
tengjast vinnunni í kringum samtöl
að framkvæmdin sé einföld, því þá
er engin fyrirstaða að taka samtöl
eins ört og hentar.“
Hægt að taka lausnina í notkun
án undirbúnings
Lausninni fylgja sniðmát fyrir
samtöl þannig að það er hægt að
byrja að nota hana strax, segja þær.
„Það er mjög einfalt að gera eins
mörg sniðmát fyrir samtöl eins og
hentar starfseminni, hvort sem
þau eru byggð á þeim sniðmátum
sem fylgja eða eru búin til frá
grunni,“ segir Sigrún.
Með tímanum er hægt að bæta
við sniðmátum fyrir stjórnendur
eins og þörf er á, bætir Guðríður
við. „Þannig er hægt að veita þeim
aðgang að fleiri sniðmátum fyrir
samtöl á borð við fastráðningar-
samtal, viðverusamtal eða starfs-
lokasamtal. Til að tryggja að hver
stjórnandi hafi aðgang að sam-
tölum fyrir sitt starfsfólk þá er
hægt að samþætta lausnina við
mannauðslausnir eins og H3 eða
lesa inn skrá með starfsfólki.“
Rafræn samtöl aukast
Samtal styður við árangur og
ánægju starfsfólks því það auð-
veldar umgjörð samtala með snið-
mátum sem mannauðsfólk hefur
gert aðgengileg þegar stjórnandinn
vill taka samtal með sínu fólki.
Þannig býr Samtal til tækifæri
fyrir örari samtöl og skapar aukið
virði fyrir stjórnendur með því að
framleiðni eykst og starfsfólk upp-
sker meiri áherslu á starfsþróun.
„Mannauðsfólk hefur yfirsýn
yfir fjölda og stöðu samtala eftir
hópum og stjórnendum og getur
þannig bætt framkvæmd þeirra.
Að sama skapi getur mannauðsfólk
nýtt lausnina til að gefa aðgang að
faglegum sniðmátum fyrir sam-
töl,“ segir Sigrún.
Þar sem fjarvinna er að aukast
bendir Guðríður á að meiri
þörf sé fyrir að geta átt stafræn
samtöl milli stjórnenda og starfs-
fólks. Hægt er að velja samtal og
undirbúa það í vefviðmóti, taka
samtalið á fjarfundi og skrá niður-
stöður stafrænt.
Einfalt í notkun
Samtal er ný mannauðslausn og
nú þegar hafa nokkur fyrirtæki
tekið hana í notkun. Á síðustu
mánuðum hafa 70 stjórnendur hjá
Advania notað lausnina í snerpu-
samtölum. Sigrún segir starfsfólk
Advania hafa reynslu af mörgum
ólíkum lausnum fyrir samtöl. „Það
helsta sem Samtal hefur umfram
aðrar lausnir er einfaldleikinn
og tímasparnaðurinn. Viðmótið
leiðir notandann áfram þannig að
ekki er þörf á leiðbeiningum eða
kennslu fyrir mannauðsfólk og
mun minni tími fer í uppsetningu
á sniðmátum. Að sama skapi er það
einfalt í notkun fyrir stjórnendur
sem hafa verið alveg sjálfstæðir
í undirbúningi og framkvæmd
samtala. Það styður við þá stefnu
Advania að efla stjórnendur félags-
ins og gera réttu tækin og tólin
aðgengileg svo þeir geti verið sjálf-
stæðir í sínu starfi.“
Nánari upplýsingar á advania.is.
Samtal sem uppfyllir þarfir starfsfólks og stjórnenda
Sigrún Ósk Jakobsdóttir (t.v.), mannauðsstjóri Advania, og Guðríður Hjördís
Baldursdóttir, vörustjóri mannauðslausnum Advania. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR