Fréttablaðið - 22.07.2021, Qupperneq 12
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Björn Sigurðsson
frá Möðruvöllum í Hörgárdal,
fv. lögregluvarðstjóri í Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
í Kópavogi mánudaginn 5. júlí.
Útförin verður frá Bústaðakirkju í Reykjavík
mánudaginn 26. júlí klukkan 13.
Ágústa Björnsdóttir
Sigurður Björnsson Hanne Margit Hansen
Kristján Björnsson Guðrún Helga Bjarnadóttir
Björn Ágúst Björnsson Elísa Nielsen Eiríksdóttir
María Kristín Björnsdóttir Robert Lacy Shivers
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þórey Mjallhvít H. Kolbeins
kennari,
sem lést 17. júlí, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 29. júlí kl. 13.
Ragnar Baldursson Dagný Ming Chen
Lára S. Baldursdóttir Atli Geir Jóhannesson
Halldór Baldursson Hlíf Una Bárudóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir minn, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Finnbogi Jóhannsson
fyrrverandi skólastjóri,
lést á Vífilsstöðum fimmtudaginn
15. júlí. Hann verður jarðsunginn frá
Árbæjarkirkju í Reykjavík mánudaginn
26. júlí kl. 13.00. Jarðsett verður á
Djúpavogi miðvikudaginn 28. júlí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sveinn Finnbogason
Þökkum samúð og vinsemd
við andlát og útför
Önnu Magneu
Jónsdóttur
Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákar-
hlíðar fyrir góða umönnun og hlýju.
Gunnar Örn Hauksson
Haukur Ársæll Birgitta Ýr
Jóhann Örn
Kristbjörn
Sigrún Jóna
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Svanhvít Ásmundsdóttir
Þangbakka 8, 109 Reykjavík,
lést laugardaginn 10. júlí á
krabbameinsdeild Landspítalans
við Hringbraut. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju mánudaginn 26. júlí kl. 15.00.
Ingibergur G. Þorvaldsson Guðbjörg Guðmundsdóttir
Ásmundur Þorvaldsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Merkisatburðir
1227 Valdimar sigursæli bíður ósigur gegn þýsku greif-
unum í orrustunni við Bornhöved.
1245 Kolbeinn ungi Arnórsson, höfðingi af ætt
Ásbirninga, andast 37 ára að aldri.
1513 Kristján 2. verður konungur Danmerkur og Noregs.
1581 Áttatíu ára stríðið hefst: Norðurhéruð Niðurlanda
sverja afneitunareiðinn og segja sig úr lögum við
Filippus II Spánarkonung.
1684 Gísli Þorláksson biskup á Hólum andast 53 ára.
Hann er þríkvæntur.
1910 Zeppelin-loftfarið flýgur í fyrsta skipti.
1929 Landakotskirkja í Reykjavík er vígð.
1939 Tveir þýskir kafbátar koma til Reykjavíkur. Þetta eru
fyrstu kafbátarnir sem koma til Íslands.
2003 Uday og Qusay Hussein, synir Saddams Hussein,
eru felldir eftir umsátur í Írak.
2011 Eden í Hveragerði brennur til kaldra kola í stór-
bruna.
2013 Georg prins af Cambridge fæðist á þessum degi. Tvíburasysturnar Alda og Hrönn
Harðardætur fagna sjötugsaldr-
inum golfandi en þær féllu fyrir
íþróttinni fyrir rúmum áratug.
arnartomas@frettabladid.is
„Það er kannski erfitt að segja hvort
afmælisdagurinn sé betri eða verri sem
tvíburi – maður þekkir auðvitað ekkert
annað,“ segir Alda Harðardóttir sem
fagnar sextugsafmæli í dag ásamt tví-
burasystur sinni Hrönn. Afmælisdag-
arnir hafa á síðari árum verið haldnir
sinn í hvoru lagi þar sem Alda býr í
Reykjavík en Hrönn í Vestmannaeyjum.
Spurðar hvernig áfanganum verði
fagnað segjast systurnar ekki ætla
að sitja auðum höndum. „Við eigum
svo sem ekkert val, við erum að fara á
Íslandsmót í golfi í fyrstu deild í Sveita-
keppninni,“ segir Alda en systurnar
keppa fyrir hönd Golf klúbbs Vest-
mannaeyja. Hrönn bætir við að þótt
þær séu orðnar sextugar séu þær að fara
að keppa við þær bestu á landinu. „Þær
eru sumar á aldrinum 15 til 20 ára. Við
gætum verið langömmur þeirra,“ segir
hún og hlær.
Tvíburarnir segjast hafa byrjað seint
í golfi en hafa nú spilað í rúman áratug.
Móðir þeirra var mikill golfari, reyndi
að koma þeim á bragðið á unga aldri en
þá var áhuginn lítill. „Við vorum orðnar
fullorðnar þegar við byrjuðum á þessu,“
segir Alda. „Við héldum alltaf að golf
væri bara fyrir fólk sem nennti ekki að
hreyfa sig og gamalmenni. „Við höfum
heldur betur komist að öðru og hefðum
betur byrjað fyrr.“
Sökum golfmótsins verður lítið um
fjölskyldufagnað um kvöldið þar sem
tvíburarnir segjast ætla að fagna með
golfsveitinni. „Við förum eflaust bara
út að borða með golfvinunum,“ segir
Alda. „Við erum með kallana okkar í
vinnu og fögnum bara síðar með fjöl-
skyldunni. Síðasti áratugur hefur snú-
ist að miklu leyti um golf hjá okkur og
miðað við margt sem gengið hefur á í lífi
okkar erum við bara glaðar að ná sjö-
tugsaldri og vera enn á vellinum.“ n
Fagna stórafmæli á golfvellinum
Alda og Hrönn hituðu sig upp fyrir daginn á Korpúlfsstaðavelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Síðasti áratugur hefur
snúist að miklu leyti um
golf hjá okkur og við
erum glaðar að ná sjö-
tugsaldri og vera enn á
vellinum.
Bandaríski raðmorðinginn Jeffrey
Dahmer var handtekinn þann 22.
júlí 1991 í Milwaukee. Dahmer er
einhver alræmdasti raðmorðingi
sögunnar og myrti að minnsta
kosti sautján manns á árabilinu
1978 til 1991, flesta á síðasta árinu
sem hann gekk laus. Fórnarlömb
Dahmers voru nær öll úr minni-
hlutahópum en hann hafði það að
venju að fá karlmenn heim til sín
þar sem hann byrlaði fyrir þeim og
myrti með hrottafengnum hætti.
Einu af fórnarlömbum Dahmers
tókst að flýja úr íbúð morðingjans
og stöðva lögreglubíl. Fórnar-
lambið fylgdi lögreglumönn-
unum til heimilis Dahmers þar
sem líkamsleifar ellefu manna
fundust.
Dahmer var dæmdur til fimm-
tán lífstíðardóma, um 957 ára
alls, sem honum var gert að
afplána hvern á fætur öðrum. Í
fangelsinu réðst annar fangi á
Dahmer sem lést síðar af áverk-
Þetta gerðist: 22. júlí 1991
Jeffrey Dahmer handtekinn
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 22. júlí 2021 FIMMTUDAGUR