Fréttablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 18
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr
@frettabladid.is
Raunveruleikaþætt-
irnir RuPaul’s Drag Race eru
farnir að hafa mikil áhrif
á tískuheiminn og drag-
drottningar sem standa sig
vel í þáttunum eru byrjaðar
að njóta vinsælda hjá lúxus-
tískumerkjum.
Dragdrottningarnar úr raunveru-
leikaþáttunum og menningar-
fyrirbærinu RuPaul’s Drag Race
eru byrjaðar að verða eftirsóttar af
lúxus-tískumerkjum fyrir mynda-
tökur og herferðir. Þær eru að öðlast
vinsældir sem skemmtikraftar
og fyrirsætur og hönnuðir vilja í
auknum mæli ráða fólk sem endur-
speglar fjölbreytileika heimsins.
Vogue Business fjallaði nýlega um
þessa þróun.
Hönnuðurinn Richard Quinn
fékk dragdrottningarnar Tayce
og Bimini Bon Boulash, sem náðu
langt í annarri þáttaröðinni af
bresku útgáfu raunveruleikaþátt-
anna, til að taka þátt í herferð sinni
fyrir vor/sumar 2022. Quinn segist
vera mikill aðdáandi þáttanna.
„Við fáum innblástur frá
dragheiminum og gefum
dragheiminum innblástur á móti.
Þannig að það er indælt að láta
þessa tvo heima mætast,“ segir
hann. „Það er virkilega frábært
að sjá fegurðarstaðla þróast.
Ég verð klárlega spenntari yfir
því að einhver úr RuPaul‘s Drag
Race klæðist einhverju og gefi
því líf frekar en hefðbundinn
áhrifavaldur.“
Hluti af poppmenningu
Í nýjustu þáttaröðunum, bæði í
Bretlandi og í Bandaríkjunum,
hafa keppendur lagt meiri áherslu
á tísku en áður og það hefur hvatt
lúxusmerki eins og Balenciaga og
Jean Paul Gaultier til að styrkja
tengsl sín við samfélagið kringum
þættina.
Balenciaga valdi sjálfan höfund
þáttanna, RuPaul Charles, til að
setja saman spilunarlista á Apple
Music og safn af varningi í tak-
mörkuðu upplagi sem var gefið út
Dragdrottningar eru nýju ofurfyrirsæturnar
Dragdrottning-
arnar sem keppa
í raunveru-
leikaþættinum
RuPaul’s Drag
Race eru orðnar
eftirsóttar fyrir-
sætur og farnar
að taka þátt í
herferðum fyrir
sum þekktustu
og fínustu tísku-
vörumerkin.
Þessar drottn-
ingar tóku þátt í
elleftu þáttaröð
af bandarísku
útgáfunni.
RuPaul Charles tekur hér við Emmy-verðlaunum fyrir þættina sína. Þeir hafa
haft mikil áhrif á dragheiminn og eru nú farnir að móta tískuheiminn líka.
Bimini Bon Boulash lenti í öðru sæti
í annarri þáttaröð af bresku útgáfu
þáttanna. Eftir þáttinn fékk Boulash
samning hjá umboðsskrifstofunni
Next Models. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Tayce keppti í bresku útgáfu þátt-
anna og var ráðinn í herferð Jean
Paul Gaultier fyrir La Belle Le Parfum
í maí. Frekara samstarf er fyrirhugað
í París í september.
24. júní síðastliðinn. Það er í fyrsta
sinn sem tískuhúsið vinnur með
dragdrottningu að safni af vörum.
„Í gegnum árin hefur Drag Race-
þátturinn orðið vinsælli og hluti af
poppmenningunni,“ segir Bimini
Bon Boulash, sem lenti í öðru sæti
í annarri þáttaröð bresku útgáfu
þáttanna. Eftir þáttinn fékk Bou-
lash samning hjá umboðsskrif-
stofunni Next Models og hefur
setið fyrir á forsíðum ES Magazine
og Time Out, ásamt því að stjórna
viðburði á tískuvikunni í London
og starfa með merkjum eins og
Depop, YouTube og Calvin Klein.
Hán segir að tískuheimurinn
virðist vera orðinn opnari fyrir
fólki sem er öðruvísi.
Mikil áhrif á tísku
Scott Studenberg, listrænn stjórn-
andi lúxusvörumerkisins Baja
East, hefur lengi dregið innblástur
frá Drag Race og í maí réði hann
tvo keppendur, Gottmilk og
Symone, sem andlit vörumerkisins
fyrir herferðina fyrir haust/vetur
2021, sem reyndist vera vinsælasta
herferð merkisins til þessa.
„Ég er hönnuður. Ég horfi á
þáttinn. Ég þekki milljón aðra
hönnuði, stílista og ritstjóra sem
bíða spenntir eftir því að sjá hvað
verður á sýningarpöllunum í
Drag Race. Áhrif þáttarins á tísku
eru mjög, mjög sterk. Hann er
mjög mikilvægur fyrir menningu
okkar,“ segir Studenberg. „Gott-
milk og Symone eru ofurfyrirsætur
dagsins í dag.“
Richard Quinn er einn þeirra
fjölmörgu hönnuða sem eru sam-
mála og hann segir að Bimini og
Tayce séu skemmtikraftar, auk
þess að vera fallegt fólk, sem hafi
sterka nærveru og ótrúlega hæfni
til að grípa auga myndavélarinnar.
Fullkomin blanda
Gottmilk, sem lenti í öðru sæti í
13. þáttaröð bandarísku útgáf-
unnar, segist hafa það markmið að
brjóta upp hefðbundin kynhlut-
verk og alla kassa sem samfélagið
reynir að setja fólk í.
„Mér finnst eins og margir
hönnuðir og vörumerki séu að
reyna að gera nákvæmlega það
sama fyrir tískuna í dag. Þannig að
dragdrottningar og hönnuðir eru
fullkomin blanda,“ segir hann. Auk
Baja East hefur hann starfað með
tímaritunum Attitude, Glamour
UK og Numéro ásamt ýmsum
öðrum tískuverkefnum.
Jean Paul Gaultier réð Tayce í
herferðina fyrir La Belle Le Parfum
í maí og varð þar með fyrsta
lúxusvörumerkið til að nota drag-
drottningu í stóra ilmvatnsherferð.
Frekara samstarf er fyrirhugað í
París í september.
Tayce segir að ástæðan fyrir því
að fólk sé að bóka dragdrottningar
fyrir tískuverkefni sé einföld:
„Vinan, við seljum þetta,“ segir
hann. „Ég gef fólki það sem það
vill. Ef þú setur mig fyrir framan
myndavél kann ég að sitja fyrir.
Ég kann að tala. Ég kann að ganga,
elskan. Þau völdu réttu mann-
eskjuna.“
Next Models hjálpar Bimini Bon
Boulash að velja úr tækifærum og
eru að hugsa fram í tímann. „Mig
langar að vinna mig upp. Draum-
urinn er að ganga á sýningarpöll-
um fyrir Vivienne Westwood eða
Burberry,“ segir hán, en tekur fram
að það sé löng leið fyrir höndum.
„Fyrir einhvern eins og mig, sem
skilgreinir sig sem kynsegin, er það
ótrúlegt að vera á forsíðum tíma-
rita og taka þátt í öllum þessum
mögnuðu myndatökum. En það
gæti samt verið meiri fjölbreytni á
sýningarpöllunum.“
Drag opnaði leiðina
Ódýrari tískumerki eru líka að taka
þátt. Eftir að hafa valið úr tilboðum
vann Tayce með merkinu Nasty
Gal að vörum sem komu út í júní.
Í línunni eru undirföt, klæðskera-
sniðin föt og þægileg heimaföt og
Tayce fékk alveg frjálsar hendur
þegar kom að herferðinni, þar sem
Tayce kemur fram sem bæði karl og
kona. „Þetta er í rauninni kvenfatn-
aður, en ég vildi víkka út mörkin
aðeins og segja „þetta eru föt, hver
sem eru geta verið í hverju sem er“,“
segir hann.
Studenberg segir að fyrirtæki
hafi breyst, menningin hafi breyst
og drag hafi opnað leiðina. Hann
segir að RuPaul hafi skapað mikil-
vægan vettvang til að leyfa heim-
inum að sjá þetta listform LGBTQ+
fólks. n
6 kynningarblað A L LT 22. júlí 2021 FIMMTUDAGUR