Fréttablaðið - 01.07.2021, Qupperneq 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s
1 2 7 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 1 . J Ú L Í 2 0 2 1
Karrýgangi!
Krydd sem fá bragðlaukana
til að dansa!
Koma böndum á fasteignaverð
Við erum að setja
girðingu til þess að
koma í veg fyrir ástand
þar sem fasteignakaup-
endur gera ráð fyrir að
markaðurinn búi til
eigið fé úr engu.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Seðlabankastjóri segir
hækkun fasteignaverðs í sam-
ræmi við efnahagsaðstæður
en lækkun á hámarki veð-
setningarhlutfalls sé nauð-
synlegt til að afstýra bólu-
myndun.
thorsteinn@frettabladid.is
EFNAHAGSMÁL Ásgeir Jónsson seðla-
bankastjóri segir að lækkun á veð-
setningarhlutfalli fasteignalána sé
forvarnaraðgerð, sem ætlað sé að
koma í veg fyrir bólumyndun þar
sem kaupendur gera ráð fyrir að
fasteignamarkaðurinn búi til eigið
fé úr engu.
„Fasteignaverð hefur hækkað
töluvert en það má segja að hækk-
unin sé í samræmi við þær aðstæður
sem eru til staðar. Ráðstöfunar-
tekjur heimilanna hafa hækkað í
kófinu, eiginfjárstaða þeirra er góð
og vextir eru mun lægri en áður
hefur verið. Við erum að setja tak-
markanir til þess að hækkunarfas-
inn verði ekki að bólu,“ segir Ásgeir.
Fjármálastöðugleikanefnd tók
ákvörðun um að lækka hámark
veðsetningarhlutfalls fasteigna-
lána til neytenda úr 85 prósentum
í 80 prósent. Hámarkshlutfall fyrir
fyrstu kaupendur verður hins vegar
óbreytt í 90 prósentum.
„Lækkun veðsetningarhlutfalls-
ins er ekki hamlandi eins og staðan
er í dag, enda viljum við ekki hindra
eðlileg viðskipti á fasteignamarkað-
inum. Þetta er forvarnaraðgerð,“
segir Ásgeir og bendir á að aðgerð
sem þessi hefði getað komið í veg
fyrir fasteignabóluna sem var blásin
út eftir árið 2003. Mikilvægt sé að
grípa til aðgerða áður en það er um
seinan.
„Við erum að setja girðingu til
þess að koma í veg fyrir ástand þar
sem fasteignakaupendur gera ráð
fyrir að markaðurinn búi til eigið
fé úr engu. Það er mikilvægt að
fasteignamarkaðurinn þjóni fyrst
og fremst almenningi, en ekki spá-
kaupmönnum.“
Þá segir Ásgeir ljóst að stefna
Reykjavíkurborgar í skipulags-
málum hafi stuðlað að hækkun
fasteignaverðs.
„Það liggur alveg fyrir, sama
hvernig menn snúa því fram og til
baka, að sú ákvörðun Reykjavíkur-
borgar, að brjóta ekki nýtt land
undir ný hverfi, hefur áhrif á fast-
eignaverð í allri borginni. En vita-
skuld er nægjanlegt rými fyrir nýtt
húsnæði til staðar á þéttingarreit-
um innan borgarinnar – það bara
tekur lengri tíma að koma þeim í
gagnið. Við gætum horft fram á eitt
eða tvö ár þar sem heldur hægir á
framboði af nýjum eignum,“ segir
Ásgeir. – SJÁ SÍÐU 8
N1-mótið á Akureyri hófst með pompi og prakt í gær og stendur þar til á laugardaginn. Metþátttaka er á mótinu í ár og þátttakendurnir orðnir 2.144, en liðin 216. Margir verðandi atvinnumenn og
landsliðsmenn koma til með að taka sín fyrstu skref á mótinu. Eins og sjá má gefa tilþrif strákanna fyrir norðan þeim köppum sem nú spila á Parken og Wembley ekkert eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
thorarinn@frettabladid.is
SAMFÉLAG Lafði Díana, prinsessa
fólksins, væri sextug í dag hefði hún
lifað. „Hún skilur gífurlega arfleifð
eftir sig og þótt hún hafi nú ekki
verið lengi í konungsfjölskyldunni
þá hafði hún alveg rosalega mikil
áhrif “ segir Guðný Ósk Laxdal,
sem fjallaði um nútímavæðingu
konungsfjölskyldunnar í BA-ritgerð
sinni 2016.
Fréttablaðið minnist ævi og áhrifa
Díönu á síðu 22 í dag. ■
Díana sextug
Diana prins-
essa þótti ekki
aðeins fögur og
hjartahlý heldur
róttæk í stjorn-
málaskoðunum.