Fréttablaðið - 01.07.2021, Page 9
FIMMTUDAGUR 1. júlí 2021 FÓKUS Á HJARTA LANDSINS
Ólafur Már
Björnsson,
augnlæknir og
ljósmyndari
Tómas
Guðbjartsson,
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi
Vestan Skaftafellsheiði er Morsárdalur sem er eitt af
helstu djásnum Vatnajökulsþjóðgarðs. Sérkenni hans
er ljósgrátt líparít sem þekur sléttan dalbotninn og
fer sérlega vel við iðagræna birkiskóga beggja vegna
Morsár. Vestan árinnar er Bæjarstaðarskógur, einn
hávaxnasti birkiskógur á Íslandi, sem lumar á heitri
laug sem rúmar tvo í einu. Tígulleg Skaftafellsfjöll rísa
upp af Bæjarstaðarskógi en norður af Morsárdal gnæfa
fjallstindarnir Þumall og Miðfellstindur og í austur
Kristínartindar (1126 m) og nánast ókleifir Skarða
tindar. Það er þó Morsárjökull sem stelur athyglinni
innst í Morsárdal. Hann steypist næstum 300 m fram
af lóðréttu klettastáli og hafa ísfossar smám saman
myndað hvítan krosssprunginn dregil fyrir botni dals
ins. Á sumardegi þarf ekki að bíða lengi til að sjá jökul
ís steypast fram af þverhnípinu með miklum drunum
og dynkjum. Framan við jökultunguna er Morsárlón
sem fer stækkandi vegna hörfunar jökulsins. Hún
hefur orðið til þess að árið 2007 komu úr felum risa
fossar með jökulvatni sem fengu nafnið Morsárfossar.
Mældist sá hæsti, Morsi, 227 m hár og voru þá ekki
taldir með 1015 m sem eru á bak við jökulís. Hann
varð því hæsti foss landsins og leysti af hólmi 190 m
háan Glym í Hvalfirði.
Það er ógleymanlegt að koma í Morsárdal og sjá
Morsárjökul í návígi. Gengið er frá þjónustumiðstöð
inni í Skaftafelli yfir Skaftafellsheiði að Sjónarnípu
og þaðan ofan í Morsárdal. Þarna er göngubrú yfir
vatnsmikla Morsá og því í boði fyrir sprækt göngu
fólk að kíkja í Bæjarstaðarskóg og jafnvel áfram inn
í Kjós, þröngan dal vestur af Morsárdal. Flestir kjósa
þó gönguslóða austan megin Morsár inn að Morsár
lóni. Þarna sést vel að Morsa og félögum hans, sem
umkringdir eru einhverjum stórkostlegasta fjallahring
á Íslandi. Ekki er mælt með því að leggja á Morsár
jökulinn sjálfan til að komast nær fossunum, enda
krosssprunginn og stöðug hætta á ísskriðum. Ganga
að Morsárlóni er mest á sléttlendi og tekur daginn,
enda í kringum 30 km fram og til baka og enn lengri
ef komið er við í Bæjarstaðarskógi. Einnig er hægt að
berja Morsárfossa augum ofan af Skorum á Skaftafells
heiði eða af Kristínartindum. Á leiðinni heim er síðan
tilvalið að kíkja á Svartafoss sem rammaður er inn af
sérlega snotru stuðlabergi. n
Risafossar með
hvítan dregil
Þverhníptur Morsárjökull með Morsárfossum, en Morsi er þeirra hæstur og jafnframt hæsti foss landsins. MYNDIR/ÓMB
Gengið inn sléttan Morsárdal á bjartri vornóttu. Birki og annar gróður hefur víða náð sér á strik á dalbotninum.
Horft yfir
innanverðan
Morsárdal og
opið á Kjós. Vel
sést í Morsárlón
en hæsti tindur
til vinstri er Mið-
fellstindur.