Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.07.2021, Qupperneq 9

Fréttablaðið - 01.07.2021, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 1. júlí 2021 FÓKUS Á HJARTA LANDSINS Ólafur Már Björnsson, augnlæknir og ljósmyndari Tómas Guðbjartsson, hjartaskurð­ læknir og náttúru­ unnandi Vestan Skaftafellsheiði er Morsárdalur sem er eitt af helstu djásnum Vatnajökulsþjóðgarðs. Sérkenni hans er ljósgrátt líparít sem þekur sléttan dalbotninn og fer sérlega vel við iðagræna birkiskóga beggja vegna Morsár. Vestan árinnar er Bæjarstaðarskógur, einn hávaxnasti birkiskógur á Íslandi, sem lumar á heitri laug sem rúmar tvo í einu. Tígulleg Skaftafellsfjöll rísa upp af Bæjarstaðarskógi en norður af Morsárdal gnæfa fjallstindarnir Þumall og Miðfellstindur og í austur Kristínartindar (1126 m) og nánast ókleifir Skarða­ tindar. Það er þó Morsárjökull sem stelur athyglinni innst í Morsárdal. Hann steypist næstum 300 m fram af lóðréttu klettastáli og hafa ísfossar smám saman myndað hvítan krosssprunginn dregil fyrir botni dals­ ins. Á sumardegi þarf ekki að bíða lengi til að sjá jökul­ ís steypast fram af þverhnípinu með miklum drunum og dynkjum. Framan við jökultunguna er Morsárlón sem fer stækkandi vegna hörfunar jökulsins. Hún hefur orðið til þess að árið 2007 komu úr felum risa­ fossar með jökulvatni sem fengu nafnið Morsárfossar. Mældist sá hæsti, Morsi, 227 m hár og voru þá ekki taldir með 10­15 m sem eru á bak við jökulís. Hann varð því hæsti foss landsins og leysti af hólmi 190 m háan Glym í Hvalfirði. Það er ógleymanlegt að koma í Morsárdal og sjá Morsárjökul í návígi. Gengið er frá þjónustumiðstöð­ inni í Skaftafelli yfir Skaftafellsheiði að Sjónarnípu og þaðan ofan í Morsárdal. Þarna er göngubrú yfir vatnsmikla Morsá og því í boði fyrir sprækt göngu­ fólk að kíkja í Bæjarstaðarskóg og jafnvel áfram inn í Kjós, þröngan dal vestur af Morsárdal. Flestir kjósa þó gönguslóða austan megin Morsár inn að Morsár­ lóni. Þarna sést vel að Morsa og félögum hans, sem umkringdir eru einhverjum stórkostlegasta fjallahring á Íslandi. Ekki er mælt með því að leggja á Morsár­ jökulinn sjálfan til að komast nær fossunum, enda krosssprunginn og stöðug hætta á ísskriðum. Ganga að Morsárlóni er mest á sléttlendi og tekur daginn, enda í kringum 30 km fram og til baka og enn lengri ef komið er við í Bæjarstaðarskógi. Einnig er hægt að berja Morsárfossa augum ofan af Skorum á Skaftafells­ heiði eða af Kristínartindum. Á leiðinni heim er síðan tilvalið að kíkja á Svartafoss sem rammaður er inn af sérlega snotru stuðlabergi. n Risafossar með hvítan dregil Þverhníptur Morsárjökull með Morsárfossum, en Morsi er þeirra hæstur og jafnframt hæsti foss landsins. MYNDIR/ÓMB Gengið inn sléttan Morsárdal á bjartri vornóttu. Birki og annar gróður hefur víða náð sér á strik á dalbotninum. Horft yfir innanverðan Morsárdal og opið á Kjós. Vel sést í Morsárlón en hæsti tindur til vinstri er Mið- fellstindur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.