Fréttablaðið - 01.07.2021, Qupperneq 12
12 Íþróttir 1. júlí 2021 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 1. júlí 2021 FIMMTUDAGUR
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Streymisþjónustan DAZN
og YouTube komust að samkomu-
lagi við UEFA um kaupin á sýning-
arrétti frá Meistaradeild kvenna til
næstu fjögurra ára. Um er að ræða
einn stærsta útsendingarsamning
í sögu kvennaboltans og verður
hægt að sjá alla leiki í beinni eftir að
riðlakeppnin hefst. Fyrstu tvö árin
verður hægt að fylgjast með öllum
leikjunum, 61, í beinni á YouTube
frítt, en seinni tvö ár samningsins
verða nítján leikir í opinni dagskrá.
Meistaradeildin fer fram með
breyttu sniði í kvennaflokki þetta
árið. Í undankeppninni er keppst
um að komast í sextán liða riðla-
keppni, þar sem átta lið fara áfram
í útsláttarkeppni. Dregið verður
í fyrsta stig undankeppninnar á
morgun og eru tvö íslensk lið í pott-
inum, Valur og Breiðablik, ásamt
fjórum liðum með Íslendingum
innanborðs. Á seinna stigi undan-
keppninnar koma inn þrjú Íslend-
ingalið til viðbótar og er Bayern
München með Karólínu Leu Vil-
hjálmsdóttur innanborðs búið að
tryggja sér sæti í riðlakeppninni.
Gylfi Sigurðsson, umboðsmaður
hjá Total Football sem er með fjöl-
margar íslenskar landsliðskonur á
sínum vegum, þar af nokkrar sem
koma til með að gera atlögu að
sæti í Meistaradeild Evrópu, tekur
undir að þetta sé hluti af jákvæðri
þróun kvennaknattspyrnunnar
undanfarin ár. „Það var áður búið
að samþykkja að auka fjármagnið
í tengslum við keppnina. Sú breyt-
ing telur verulega fyrir félögin og
þetta er jákvæð þróun í framhaldi
af því. Með þessu eykst sýnileiki á
leikjum liðanna, um leið og liðin
eiga auðveldara með að leita á nýja
markaði eftir leikmönnum. Um
leið er fagnaðarerindi að þetta auð-
veldar aðgengi almennings að leikj-
unum,“ segir Gylfi, aðspurður hvaða
þýðingu þessi samningur hefur. n
Meistaradeildin verður sýnilegri
Sara Björk vann Meistaradeildina
fyrst íslenskra kvenna í fyrra.
Brautirnar
eru
fáanlegar
með
mjúklokun
Mikið úrval
rennihurðabrauta frá
Þýsk gæðavara.
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
3
sinnum hafði leikmaður fengið rautt
spjald í framlengingu, þegar Svíinn
Marcus Danielson var rekinn í snemm-
búið bað fyrir fólskubrot gegn Úkraínu.
Sá næstsíðasti sem fékk rauða spjaldið
var Nuno Gomes, leikmaður Portúgals
árið 2000.
1966
var síðast þegar Eng-
land hélt hreinu í fyrstu
fjórum leikjum á stór-
móti. Þá unnu þeir HM á
heimavelli.
67
ár eru síðan Sviss fór í átta liða úrslit.
Síðast þegar það gerðist var árið 1954
þegar Svisslendingar voru á heimavelli.
8
mörk í leik Króatíu og
Spánar, er annar marka-
hæsti leikur EM frá upp-
hafi. Aðeins viðureign
Frakklands og Júgóslavíu
árið 1960 var með fleiri
mörk eða níu talsins, í
5-4 sigri Júgóslava. 49
metrar voru í mark
Spánar þegar Pedri gaf til
baka á Unai Simon sem
gerir það að fyrsta sjálfs-
marki í sögu keppninnar
fyrir utan teig.
9
sjálfsmörk hafa verið
skoruð á EM, sem er
meira en á öllum öðrum
EM til samans. Merih
Demiral, Mats Hum-
mels, Ruben Dias, Rap-
hael Guerreiro, Wojciech
Szczęsny, Lukas Hra-
decky, Martin Dubravka
og Juraj Kucka höfðu
einnig skorað sjálfsmörk.
120:37
mældist tíminn á marki Artem Dov-
byk. Aðeins Semih Senturk hefur
skorað síðar á EM, þegar hann skoraði
árið 2008 á 121. mínútu.
25
ár og 12 dagar liðu á milli
marka feðganna Enrico
og Federico Chiesa á EM.
Federico skoraði gegn
Austurríki og Enrico
gegn Tékkum 1996.
115
mínútur af 360 hefur
Jack Grealish spilað
fyrir England, en hann
er samt stoðsendinga-
hæstur og hefur unnið
flestar aukaspyrnur fyrir
liðið á mótinu.
Aðeins átta lið eru eftir á EM í fótbolta. Stóru
þjóðirnar eru dottnar út og leið Englendinga
greið í úrslitaleikinn, samkvæmt veðbönkum.
Þó fótbolti sé ekki tölfræðiíþrótt er hægt að
fletta upp alls konar tölfræði um mótið og 16
liða úrslitin, en þeim lauk með frábærum leik
Úkraínumanna og Svía.
Sturlaðar
staðreyndir um
16 liða úrslitin