Fréttablaðið - 01.07.2021, Side 14

Fréttablaðið - 01.07.2021, Side 14
Lögn frá sjó þyrfti að leggja vestan garðs, þann- ig að trukkar með dælur gætu keyrt eftir garðinum og tengst við lögnina, ef dæla þyrfti á hraunið. 1992 Aðskilnaður er gerður á milli dómsvalds og um- boðsvalds sýslumanna á Íslandi. 1996 Ný lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins taka gildi á Íslandi. Þau fela meðal annars í sér af- nám æviráðningar opinberra starfsmanna. 1997 Ný lögreglulög taka gildi á Íslandi og embætti Ríkis- lögreglustjóra er búið til. 2000 Eyrarsundsbrúin milli Danmerkur og Svíþjóðar er opnuð. 2000 Kristnihátíðin er sett á Þingvöllum. Færri mæta þar en búist hafði verið við. 2001 Strætó bs. er stofnað með sameiningu Strætis- vagna Reykjavíkur og Almenningsvagna. 2003 Íslenskar orkurannsóknir taka til starfa. 2005 Samkeppniseftirlitið tekur við hlutverki Sam- keppnisstofnunar á Íslandi. 2008 Hitaveitu Suðurnesja er skipt upp í HS Orku og HS Veitur. 2008 Tækniskólinn er stofn- aður í Reykjavík með sameiningu Fjöltækni- skólans og Iðnskólans í Reykjavík. 2008 Kennaraháskóli Íslands verður Menntavísinda- svið Háskóla Íslands. 2013 Samgöngustofa tekur formlega til starfa. Merkisatburðir Bróðir minn og frændi okkar, Axel Thorarensen Lindasíðu 47, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 20. júní. Útför hans fór fram 30. júní í kyrrþey, að ósk hins látna. Helga Katrín Thorarensen Kai Þórður Thorarensen Sara Dögg Thorarensen Linde Marie Thorarensen Róbert Heiðar Thorarensen Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Ólafur Kristinn Hermannsson Marteinslaug 7, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans 23. júní. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ragnheiður Bryndís Brynjólfsdóttir Brynja Guðbjörg Harðardóttir Daði Kristjánsson Ólöf Ragnhildur Ólafsdóttir Kári Arnórsson Jóna Margrét Ólafsdóttir Hjalti Björnsson Bjarney Herdís Ólafsdóttir Daníel Thor Helgason Hermann Jónatan Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn. Kær bróðir okkar og frændi, Sigurður Valgeirsson Þormar Furugrund 34, Kópavogi, varð bráðkvaddur 27. júní sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 7. júlí, kl. 15.00. Sigmar Þormar Alfa Kristjánsdóttir Anna Þormar Auðunn Guðmundsson Pétur Þormar frændsystkini Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Steinunn Helgadóttir Þverási 20, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans, þann 18. júní síðastliðinn. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni, 1. júlí kl. 13. Anna Ingvarsdóttir Arnór Stefánsson Gunnbjörn Þór Ingvarsson Steinunn Arnórsdóttir Hjörtur Logi Dungal Pétur Arnórsson Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir Ingi Steinn Arnórsson Sólveig Sigurðardóttir og barnabarnabörn. Elskuleg frænka okkar, Kristín Guðmundsdóttir áður til heimilis að Hörðalandi 14, lést laugardaginn 19. júní sl. á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýndan hlýhug og vináttu. Sérstakar þakkir fá þeir sem komu að umönnun hennar síðustu mánuði. Sigurbjörg Ragnarsdóttir Bryndís Ragnarsdóttir og fjölskyldur. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þórgunnur Þórarinsdóttir Kristnibraut 8, lést á líknardeild LSH í Kópavogi 24. júní. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 1. júlí kl. 15. Róbert Árnason Gerður Róbertsdóttir Óðinn Jónsson Þóra Björk Róbertsdóttir Róbert Róbertsson Bryndís, Hrefna, Elvar Snær, Hjörtur Ingi, Haukur Erik Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Stefanía Guðrún Andrésdóttir lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Hólmavík, 19. júní. Útför fer fram í Hólmavíkurkirkju laugardaginn 3. júlí kl. 14. Athöfn verður streymt á facebook-síðu Hrannar Jónsdóttur. Jón Loftsson Hrönn Jónsdóttir Halldór Sigurjónsson Andrés Jónsson Ester Kristinsdóttir Haraldur V. A. Jónsson Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Höskuldur Erlendsson húsgagnasmíðameistari og tollvörður, andaðist 17. júní á Landspítalanum við Hringbraut. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju, föstudaginn 2. júlí kl. 11. Ásta Kröyer Hilmar Höskuldsson Ástrós Guðlaugsdóttir Erlendur Höskuldsson Sunneva Svavarsdóttir Ásta Rún Jón Ingi Svavar Hrafnhildur Fjóla Sigurður fylgist vel með Reykjanesi og ígrundaði varnir mannvirkja, ári fyrir gos. FRÉTTABLAÐIÐ/ ÓTTAR GEIRSSON Ári áður en eldgosið hófst við Fagradalsfjall í mars, birti Sigurð­ ur Oddsson verkfræðingur grein í Bændablaðinu um viðbragðs­ aðgerðir vegna goss á Reykjanes­ skaga, líkt og hann sæi það fyrir. gun@frettabladid.is „Jarðskjálftahrinur í upphafi síðasta árs á Reykjanesi og fjögurra sentimetra landris við fjallið Þorbjörn, fóru ekki framhjá mér. Jarðvísindamenn voru sammála um að tími væri kominn á gos, sem gæti komið hvar sem væri, en líklegast norðan Grindavíkur,“ segir Sig­ urður Oddsson, verkfræðingur og sver af sér alla spádómsgáfu, þó hann hafi strax í febrúar 2020 ritað grein í Bændablaðið með yfirskriftinni: Björgum Grindavík.   „Mér varð hugsað til eldgossins á Heimaey 1973 sem kom fyrirvaralaust – og í framhaldinu til dælingar sjávar á hraunið. Sú framkvæmd skipti sköpum í að verja mannvirki í Eyjum, meðal annars höfnina, því hraunið storknaði og myndaði vegg. Ég sá fyrir mér að hægt væri að byggja á þessari reynslu ef hætta steðjaði að Grindavík og beina hugsan­ legum hraunstraumi frá henni, eins og niðurlag greinarinnar í Bændablaðinu lýsir: „Garður gæti komið norðan og ofan við Grindavík með stefnu suðaustur til sjávar. Ofan á garðinum þyrfti að vera akvegur fyrir trukka. Þá væri hægt að dæla sjó niður á fljótandi hraunið. Jarð­ vegi austan garðsins væri einfaldlega ýtt upp í hann. Í leiðinni lækkar yfirborðið austan garðsins og myndar farveg fyrir hraunrennsli til sjávar. Það gæti borgað sig fyrir tryggingafélög og sjóði sem bæta náttúruhamfarir að láta hanna svona varnargarð og fjármagna bygg­ ingu hans.“ Síðustu mánuði  hefur Sigurði, að eigin sögn, oft  verið hugsað til fyrir­ lesturs frá námsárunum fyrir 60 árum, um stíf lur. „Prófessorinn sagði: „Þið getið slökkt eld en ekki stíflað á. Stíflan fyllist og skemmist nema yfirfall sé sem leiðir vatn úr henni, eða framhjá í farveg neðan við hana.“ Nú voru byggðir stíflu­ garðar til að reyna að hindra hraun­ flæðið á Reykjanesi. Staðan er þannig að hraunið hefur myndað náttúrulegt yfirfall og stefnir til sjávar, sem lengi tekur við þó dalirnir fyllist. Á sama tíma hefur verið sett fram hugmynd um brú yfir, eða jafnvel undir, hraunána. Hver vill keyra fyrstur undir eða yfir?“ Sigurður telur fjármunum betur varið í að dýpka farveg fyrir hraunrennslið til suðurs og ýta upp traustum leiði­ garði í þá stefnu. „Lögn frá sjó þyrfti að leggja vestan garðs, þannig að trukkar með dælur gætu keyrt eftir garðinum og tengst við lögnina, ef dæla þyrfti á hraunið. Storknað hraun styrkir garða,“ bendir hann á og bætir við: „Einhvern tíma hættir hraunrennslið, þá er hægt að tengja Suðurstrandarveg aftur, enda hefur vegur verið lagður gegnum hraun víða á Íslandi.“ n Storknað hraun styrkir garða TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 1. júlí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.