Fréttablaðið - 17.06.2021, Qupperneq 18
Enda afar
viðeigandi
á þjóð-
hátíðar-
daginn
að minna
þjóðina
á mestu
auðlindina
sem hún
á, sem er
náttúra
landsins.
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
n Halldór
n Frá degi til dags
Eftir endur-
gerð reglu-
verks og
stofnana
og áratug
af efna-
hagslegri
endurreisn
er löngu
tímabært
að afmarka
hlutverk
ríkisins
upp á nýtt.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
Ráðamenn þjóðarinnar hafa í ávörpum sínum á tyllidögum iðulega vitnað í ljóð þjóðskálda og á 17. júní verða náttúruljóð oft fyrir valinu. Enda afar viðeigandi á þjóð-hátíðardaginn að minna þjóðina á mestu
auðlindina sem hún á, sem er náttúra landsins. Hún
er sannur fjársjóður sem ber að vernda og með öllum
ráðum verður að koma í veg fyrir að gróðasjónar-
mið grandi henni. Í hrekkleysi kynnu einhverjir að
halda að miðað við þungann í umræðu um náttúru-
vernd þyrfti ekki að hafa áhyggjur af því að náttúru-
perlum verði fórnað fyrir peninga, öllum ætti að vera
ljóst að þær eru ómetanlegar. Því miður er það ekki
þannig. Það bregst ekki að í hvert sinn sem barátta
fyrir friðun á náttúrugersemum hefst þá byrjar
virkjanakórinn að gaula af miklum móð og nýtur
þar aðstoðar aðila sem fullir eru af græðgishugsun og
telja sig verða af miklum fjármunum verði friðunin að
raunveruleika.
Hvað eftir annað sjáum við virkjanakórinn þenja
sig. Það gerðist í umræðum um virkjanir á Vest-
fjörðum þar sem fórna átti fögrum fossum, eins og
ekkert væri. Ótrúlegt var að sjá þá firrtu hugsun sem
opinberaðist í málflutningi virkjanasinna. Náttúru-
verndarsinnar gáfust hins vegar ekki upp heldur
börðust með kjafti og klóm fyrir náttúruna.
Nú upplifum við andstöðu við hálendisþjóðgarð.
Þar er eins og hökt hafi verið aftur til fortíðar. Hug-
myndin um hálendisþjóðgarð er framfarasinnuð og
háleit. Samt ólmast menn gegn þessu mikilvæga máli.
Sérhagsmunir og peningar skipta þá miklu meira máli
en náttúruvernd.
Hálendisþjóðgarður væri glæsilegur áfangi í
umhverfisvernd og íslenskri þjóð til mikils sóma.
Getið er um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu í
stjórnarsáttmálanum. Hér er um að ræða áherslu- og
baráttumál Vinstri grænna, en innan Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks hefur blygðunarlaust
verið barist gegn þessum áformum. Var það kannski
svo að formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks litu allan tímann á þessa áherslu í stjórnarsátt-
málanum sem innihaldslaust blaður sem aldrei yrði
að raunveruleika? Ætla Vinstri græn virkilega að una
þessu og endurnýja samstarfið við þessa tvo flokka
eftir kosningar, vitandi að á þeim bæjum er ekki áhugi
fyrir þessu framfaramáli?
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní minnir ekki einungis
á sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Hann minnir einn-
ig á allt það besta sem þjóðin á og þar er ekki hægt
að gleyma hinni fögru og voldugu náttúru. Um leið
verður á þessum degi að horfast í augu við þá nötur-
legu staðreynd að frumvarp um hálendisþjóðgarð
var ekki afgreitt á þessu kjörtímabili vegna andstöðu
innan ríkisstjórnarinnar.
Vinstri græn ættu hugsanlega að fara út í komandi
kosningabaráttu með orð skáldsins í huga: „Alltaf má
fá annað skip og annað föruneyti“. Ef það er stað-
föst ætlun Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að
svæfa hugmyndir um hálendisþjóðgarð, þá eru aðrir
flokkar sannarlega tilbúnir að leggja Vinstri grænum
lið. Stór hópur kjósenda er einnig tilbúinn að fylgja
þeim flokkum sem skilja mikilvægi náttúruverndar
og eru tilbúnir að berjast fyrir henni, án alls hiks. n
Mesta auðlindin
Eitt af viðvarandi viðfangsefnum stjórnmálanna er að
afmarka hlutverk ríkisins. Hvar skiptir máli að ríkið
komi að málum og á hvaða sviðum er rétt að eftir-
láta hinum frjálsa markaði að sinna verkefnum. Það
eru engar fréttir að hér er armur ríkisins víða langur
samanborið við nágrannaríki okkar. Þetta sést ekki
síst í bankakerfinu, þar sem eignarhaldið er það lang
umfangsmesta í Evrópu.
Aftur á móti vill oft gleymast að það þurfti eiginlegar
hamfarir á fjármálamörkuðum heimsins til að valda
því að ríkið endaði sem helsti eigandi íslenska fjár-
málakerfisins að nýju. Það stóð heldur aldrei til að það
yrði raunin til lengdar. Eftir endurgerð regluverks og
stofnana og áratug af efnahagslegri endurreisn er löngu
tímabært að afmarka hlutverk ríkisins upp á nýtt.
Í upphafi kjörtímabilsins sögðumst við ætla að draga
úr áhættu skattgreiðenda í bankarekstri og koma á
heilbrigðara samkeppnisumhverfi, í betri takti við
Norðurlöndin og önnur nágrannaríki okkar. Í gær lauk
fyrsta áfanganum í því verki með sölu á 35 prósenta
hlut í Íslandsbanka í opnu útboði.
Níföld umframeftirspurn var í útboðinu og hlut-
hafar verða um 24 þúsund, fleiri en í nokkru öðru
skráðu félagi á íslenskum markaði. Þátttaka almenn-
ings var áberandi mikil, en við heimiluðum kaup allt
niður í 50 þúsund krónur og létum áskriftir fólks allt að
einni milljón óskertar. Við það bætast sterkir horn-
steinsfjárfestar; íslenskir lífeyrissjóðir auk stórra og
traustra erlendra aðila. Salan fer fram á hagstæðum
tíma á markaði og söluandvirðið upp á um 55 milljarða
króna mun nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu
næstu misseri.
Óhætt er að fullyrða að útboðið hafi tekist vel. Það
sést ekki aðeins í mikilli þátttöku, dreifðu eignarhaldi
og góðu verði. Ein mikilvægasta áminningin liggur
annars staðar. Niðurstaðan sendir skýr skilaboð um að
okkur er óhætt að sleppa í einhverjum tilfellum takinu
og hleypa samkeppnisrekstri úr alltumlykjandi faðmi
hins opinbera. Ríkið er ekki upphaf og endir alls. Fyrir-
tækjarekstri er óhætt í höndum fólks úti í samfélaginu,
en ekki bara í Stjórnarráðinu. n
Skýr skilaboð
Bjarni
Benediktsson
fjármála- og
efnahagsráðherra
og formaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Höfnun
Bætt hefur verið við verkefni
Neytendastofu. Meðal nýrra
verkefna stofnunarinnar er að
ákveða hverjir eru áhrifavaldar
og hverjir ekki. Í þessu felst mik-
ilvæg réttarbót og hafa Samtök
verðandi áhrifavalda barist
árum saman fyrir meira starfs-
öryggi í stéttinni og jafnvel að
tekin verði upp lögverndun
starfsheitisins enda hafa ýmsir
skreytt sig með starfsheitinu án
þess að hafa nokkuð til brunns
að bera né hafa áhrif á nokkurn
mann. Fyrst til að fá úthlutað
starfsheitinu frá stofnuninni
var Kristín Pétursdóttir. Bömm-
er samt að hún skyldi hafna
nafnbótinni.
Kim litli
Erlendir fjölmiðlar fjölluðu í
gær um meint þyngdartap Kim
Jong-un, sem er af hinni frægu
Kim ætt ásamt Kim Kardashian,
Kim Larsen og Kim Cattrall.
Áhyggjurnar beinast að því að
fallþungi einræðisherrans hafi
fallið svo skarpt að til vandræða
horfi. Miðlarnir birta myndir
sem eiga að sýna „fyrir og eftir“
áhrif. Gallinn er sá að engin
leið er að sjá út hvor myndin er
fyrir og hvor eftir. Foringjanum
alræmda verður allt að vopni,
hann missir gríðarlegan fall-
þunga en grennist ekki neitt.
Hann er þekktur fyrir að spila
ekki golf án þess að fara allar
átján holurnar í einni og leikur
ekki skák án þess að máta í
fyrsta leik. n
Brautirnar
eru
fáanlegar
með
mjúklokun
Mikið úrval
rennihurðabrauta frá
Þýsk gæðavara.
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 17. júní 2021 FIMMTUDAGUR