Fréttablaðið - 17.06.2021, Síða 19

Fréttablaðið - 17.06.2021, Síða 19
Forseti Íslands blandar sér að sjálfsögðu í pólitík telji hann það nauðsynlegt. Þegar það gerist er þó æskilegt að hann sé skýrmæltur en ekki loðinn. Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli Það er fremur súrt í broti fyrir Katrínu Jakobsdóttur forsæt-isráðherra að koma á þessum þjóðhátíðardegi fram fyrir þjóðina og skýra hvers vegna fjögurra ára vinna við áfangaskipta endur- skoðun stjórnarskrárinnar undir hennar forystu fór út um þúfur. Undirbúningurinn var góður og Alþingi hafði nægan tíma. Að auki fékk almenningur að segja álit sitt í sérstakri rökræðukönnun. Ábyrgð stjórnarmeirihlutans Þegar til kastanna kom treysti forsætisráðherra sér ekki til þess að láta málið koma til atkvæða á Alþingi. Einnig var fallið frá fyrri ákvörðun ríkisstjórnarinnar um sérstakt þinghald í ágúst til þess að fjalla um stjórnarskrána. Enginn fær því að vita hver raun- veruleg afstaða Alþingis er. Það er stjórnarmeirihlutinn sem ræður því hvort mál komast úr þingnefnd til umræðu og atkvæða- greiðslu á Alþingi. Hann kaus að drepa málið í nefnd. Fyrir lá að Framsókn studdi frumvarpið óbreytt, en afstaða Sjálfstæðisflokksins var já, já og nei, nei. Ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði verið með hefði forsætisráð- herra ekki aðeins haft einfaldan meirihluta heldur aukinn meiri- hluta, því að Miðflokkurinn gat stutt málið og Viðreisn, að auð- lindaákvæðinu frátöldu. Tímaskorti var ekki um að kenna því að fyrir lá að stjórnarandstaðan ætlaði ekki að beita málþófi. Ábyrgð ríkisstjórnarmeirihlutans á strandsiglingunni er því alveg skýr. Gagnrýni undir rós Forsætisráðherra talar samt eins og óljós og óskilgreind andstaða á Alþingi hafi stöðvað málið. Engir aðrir en hún og stjórnarmeirihlut- inn bera þó ábyrgð á því að Alþingi fékk ekki að taka afstöðu. Það var ánægjulegt að sjá forseta Íslands stíga fram á umræðusviðið. Hann átaldi Alþingi fyrir sleifarlag. Það var réttmæt gagnrýni. Forseti þekkir vel lögmál þing- ræðisskipulagsins og reglur þing- skapa. Hann veit því að villandi er að saka Alþingi í heild um að hlaupast undan merkjum þegar stjórnarmeirihluti kemur í veg fyrir að mál sé afgreitt úr nefnd og komi til atkvæða. Ekki verður því annað ráðið en forseti sé undir rós að setja ofan í við forsætisráðherra sinn og sam- starfsflokka hans. Málsmeðferð og efnisatriði Gagnrýni forseta virðist fyrst og fremst beinast að málsmeðferðinni á Alþingi, sem forsætisráðherra ber ábyrgð á. En það var líka efnislegur ágrein- ingur, einkum um eitt grundvall- aratriði. Fyrir síðustu kosningar boðuðu sex flokkar að nýtingar- réttur auðlinda í þjóðareign skyldi vera tímabundinn. Þeir fengu tvo þriðju atkvæða. Framsókn og VG féllu frá þessari stefnu til að koma til móts við sam- starfsflokkinn. Flokkur fólksins, Píratar, Samfylking og Viðreisn hvikuðu hins vegar ekki frá henni. Afar ósennilegt er að forseti hafi ætlað að áfellast stjórnarflokkana fyrir þessa málamiðlun. Og fjar- stæðukennt væri að gefa í skyn að hann hafi ætlast til að stjórnar- andstöðuflokkarnir fjórir ættu að svíkja afdráttarlaus loforð við kjósendur um slíkt prinsippmál. Forseti Íslands blandar sér að sjálfsögðu í pólitík telji hann það nauðsynlegt. Þegar það gerist er þó æskilegt að hann sé skýrmæltur en ekki loðinn. Ólafur Ragnar Grímsson tætti í sig fyrirliggjandi stjórnarskrár- tillögur í þingsetningarræðu 2015. Hvað sem um þá ræðu má segja var afstaða hans til einstakra efnisat- riða klár og ekki fór á milli mála hverja hann gagnrýndi. Hvers vegna fær þjóðin ekki að taka afstöðu? Spurningin, sem forsætisráðherra skuldar þjóðinni svar við, er þessi: Hvers vegna leyfði stjórnarmeiri- hlutinn ekki Alþingi að greiða atkvæði? Það var eina leiðin til að ljúka málinu með lýðræðislegum hætti. Vel hefði farið á því að forseti hefði með berum orðum mælst til þess við forsætisráðherra sinn að leyfa lýðræðinu að hafa eðlilegan framgang. Skýringin á afstöðu meirihlut- ans blasir þó við: Stjórnarskrárbreytingar kalla á endurstaðfestingu á nýju þingi. Kosningarnar hefðu því jafnframt orðið þjóðaratkvæði um inni- hald auðlindaákvæðis, sem veitir einni atvinnugrein undanþágu frá meginreglunni um tímabundinn nýtingarrétt. Í reynd hefðu þær orðið þjóð- aratkvæði um stjórnarskrárvarða almannahagsmuni eða sérhags- muni? Á endanum virðast ríkis- stjórnarflokkarnir ekki hafa treyst kjósendum til að fylgja sérhags- munalínunni. Um leið voru kjósendur sviptir tækifæri til að gera út um mál, sem fyrir löngu er komið á tíma. n Forseti snuprar forsætisráðherra sinn Skoðun 17FIMMTUDAGUR 17. júní 2021

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.