Fréttablaðið - 17.06.2021, Page 26

Fréttablaðið - 17.06.2021, Page 26
Sjöfn Þórðardóttir sjofn@ frettabladid.is Í tilefni þjóðhátíðardagsins í dag er upplagt að bjóða upp á hátíðlegt þjóðhátíðarkaffi og halda upp á daginn með vinum. Gaman er að skreyta heim ilið og garðinn með fán um og fána lit um og gera hinu þjóðlega yfirbragði hátt undir höfði. Una Dögg Guðmundsdóttir er mikill áhugabakari og elskar að baka kökur fyrir hver kyns tilefni. Una er 35 ára Seltirningur og á tvær yndislegar stelpur og svo er von á litlum strák á næstu vikum. Unnusti Unu er Árni Þór Ragnar- son. Una heldur úti Instagram- síðunni @una_bakstur og deilir þar uppskriftum fyrir áhugasama. Einnig er Una starfandi í markaðs- deild Heimkaupa og nú í þessari viku fór af stað skemmtileg hug- myndavinna á bak við uppskriftir Unu. Krakkanesti Unu nýjung „Ég deili alls konar skemmti- legum hugmyndum þar, svo sem Krakkanesti, kvöldmat, partí- og pinnamat fyrir veislur og ýmiss konar gómsætum uppskriftum af kökum. Það er svo gaman að starfa hjá Heimkaup og aðstoða fólk við að einfalda líf þeirra. Núna getur fólk farið á netið og keypt allt fyrir uppskriftir og fengið sent heim til sín innan tveggja tíma,“ segir Una. Býður fjölskyldu og vinum í þjóðhátíðarkaffi Una heldur mikið upp á 17. júní. „Ég elska þennan dag, sérstak- lega þegar veðrið er gott. Ég hef haft það sem vana að kíkja niður í miðbæ og kanna menninguna á þessum skemmtilega hátíðardegi okkar Íslendinga. Þjóðhátíðar- dagurinn verður kannski aðeins öðruvísi í ár þar sem að ég er að fara að eignast mitt þriðja barn á næstu dögum. Ætli við fjölskyldan kíkjum ekki í sundlaugina ef veður leyfir og svo finnst mér líklegt að ég bjóði fjölskyldu og vinum heim í kaffi og kræsingar. Sennilega best að sleppa miðbæjargöngunni þegar maður er rétt að fara að eignast barn, það er allavega aðeins erfiðara núna miðað við síðustu ár.“ Una er búin að ákveða þjóð- hátíðarkökuna í ár sem hún ætlar að bjóða með kaffinu og það má búast við að hún muni fuðra upp ofan í gestina á örskammri stundu. Hér er um að ræða algjöra sælkera- bombu sem enginn mun standast. „Þjóðhátíðarkakan í ár verður mjúkur marengsbotn rúllaður upp Marengsrúlluterta í þjóðhátíðarbúningi Una Dögg bíður eftir gestunum með þessa glæsilegu þjóð- hátíðartertu. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Tertan er sannarlega girnileg. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI með rjóma, ferskum ávöxtum og himnesku banana Nóa kroppi, sem sagt Marengsrúlluterta í hátíðar- búningi,“ segir Una sem nýtur þess í botn að töfra fram sælkerakökur sem gleðja bragðlaukana. Marengsrúlluterta í hátíðarbúningi 4 eggjahvítur 200 g sykur 2 tsk. vanilludropar 1 banani 200 g jarðarber 150 g bláber 400 ml rjómi 150 g Nóa Síríus banana Nóa kropp 1. Byrjið á að stilla ofninn á 150°C. 2. Klæðið bökunarplötu með bök- unarpappír. 3. Þeytið eggjahvítur þar til þær fara að freyða vel og hellið sykr- inum hægt og rólega saman við, vanilludroparnir fara svo næst saman við. Þeytið vel saman eða þar til að stíf marengsblanda myndast. 4. Hellið marengsblöndunni á bök- unarpappírinn og sléttið vel úr. 5. Bakið í 25 mínútur, takið út úr ofninum og látið kólna. 6. Á meðan marengsinn er að kólna er upplagt að byrja á fyllingunni. 7. Þeytið rjóma og að lokum eru ávextirnir (niður skornir) og Nóa kroppið sett saman við rjómann. 8. Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði. 9. Snúið marengsbotninum varlega við svo að botninn snúi upp, leggið rjómann ofan á ásamt helmingnum af súkkulaði- blöndunni. 10. Rúllið botninum varlega upp í rúllu, gott að rúlla honum upp með hjálp bökunarpappírsins. 11. Hellið restinni af súkkulaðinu yfir ásamt ferskum berjum og smá Nóa kroppi. 12. Geymist í kæli í um 2 klukku- stundir áður en borið fram. Svo er einstaklega gaman að skreyta kaffihlaðborðið á þjóð- legan hátt og kalla fram 17. júní stemninguna. ■FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Húð & HÁR Við skoðum heim sny tivara g komum með góð ráð. Boðið verður upp á flott viðtöl og fróðlega umfjöllun þar sem umhirða húðar og hárs er í forgrunni. Tryggðu þér auglýsingapláss í mest lesna dagblaði landsins. Fimmtudaginn 24. júní gefur Fréttablaðið út sérblaðið Nánari upplýsingar um blaðið veitir Arnar Magnússon, sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5652 / arnarm@frettabladid.is 6 kynningarblað A L LT 17. júní 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.