Fréttablaðið - 17.06.2021, Blaðsíða 26
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn@
frettabladid.is
Í tilefni þjóðhátíðardagsins í
dag er upplagt að bjóða upp
á hátíðlegt þjóðhátíðarkaffi
og halda upp á daginn með
vinum. Gaman er að skreyta
heim ilið og garðinn með
fán um og fána lit um og gera
hinu þjóðlega yfirbragði hátt
undir höfði.
Una Dögg Guðmundsdóttir er
mikill áhugabakari og elskar að
baka kökur fyrir hver kyns tilefni.
Una er 35 ára Seltirningur og á
tvær yndislegar stelpur og svo er
von á litlum strák á næstu vikum.
Unnusti Unu er Árni Þór Ragnar-
son. Una heldur úti Instagram-
síðunni @una_bakstur og deilir
þar uppskriftum fyrir áhugasama.
Einnig er Una starfandi í markaðs-
deild Heimkaupa og nú í þessari
viku fór af stað skemmtileg hug-
myndavinna á bak við uppskriftir
Unu.
Krakkanesti Unu nýjung
„Ég deili alls konar skemmti-
legum hugmyndum þar, svo sem
Krakkanesti, kvöldmat, partí- og
pinnamat fyrir veislur og ýmiss
konar gómsætum uppskriftum af
kökum. Það er svo gaman að starfa
hjá Heimkaup og aðstoða fólk við
að einfalda líf þeirra. Núna getur
fólk farið á netið og keypt allt fyrir
uppskriftir og fengið sent heim til
sín innan tveggja tíma,“ segir Una.
Býður fjölskyldu og vinum
í þjóðhátíðarkaffi
Una heldur mikið upp á 17. júní.
„Ég elska þennan dag, sérstak-
lega þegar veðrið er gott. Ég hef
haft það sem vana að kíkja niður
í miðbæ og kanna menninguna á
þessum skemmtilega hátíðardegi
okkar Íslendinga. Þjóðhátíðar-
dagurinn verður kannski aðeins
öðruvísi í ár þar sem að ég er að
fara að eignast mitt þriðja barn á
næstu dögum. Ætli við fjölskyldan
kíkjum ekki í sundlaugina ef veður
leyfir og svo finnst mér líklegt að
ég bjóði fjölskyldu og vinum heim
í kaffi og kræsingar. Sennilega
best að sleppa miðbæjargöngunni
þegar maður er rétt að fara að
eignast barn, það er allavega
aðeins erfiðara núna miðað við
síðustu ár.“
Una er búin að ákveða þjóð-
hátíðarkökuna í ár sem hún ætlar
að bjóða með kaffinu og það má
búast við að hún muni fuðra upp
ofan í gestina á örskammri stundu.
Hér er um að ræða algjöra sælkera-
bombu sem enginn mun standast.
„Þjóðhátíðarkakan í ár verður
mjúkur marengsbotn rúllaður upp
Marengsrúlluterta í þjóðhátíðarbúningi
Una Dögg bíður
eftir gestunum
með þessa
glæsilegu þjóð-
hátíðartertu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Tertan er sannarlega girnileg. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
með rjóma, ferskum ávöxtum og
himnesku banana Nóa kroppi, sem
sagt Marengsrúlluterta í hátíðar-
búningi,“ segir Una sem nýtur þess
í botn að töfra fram sælkerakökur
sem gleðja bragðlaukana.
Marengsrúlluterta í
hátíðarbúningi
4 eggjahvítur
200 g sykur
2 tsk. vanilludropar
1 banani
200 g jarðarber
150 g bláber
400 ml rjómi
150 g Nóa Síríus banana Nóa
kropp
1. Byrjið á að stilla ofninn á 150°C.
2. Klæðið bökunarplötu með bök-
unarpappír.
3. Þeytið eggjahvítur þar til þær
fara að freyða vel og hellið sykr-
inum hægt og rólega saman við,
vanilludroparnir fara svo næst
saman við. Þeytið vel saman eða
þar til að stíf marengsblanda
myndast.
4. Hellið marengsblöndunni á bök-
unarpappírinn og sléttið vel úr.
5. Bakið í 25 mínútur, takið út úr
ofninum og látið kólna.
6. Á meðan marengsinn er að kólna
er upplagt að byrja á fyllingunni.
7. Þeytið rjóma og að lokum eru
ávextirnir (niður skornir) og Nóa
kroppið sett saman við rjómann.
8. Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði.
9. Snúið marengsbotninum varlega
við svo að botninn snúi upp,
leggið rjómann ofan á ásamt
helmingnum af súkkulaði-
blöndunni.
10. Rúllið botninum varlega upp í
rúllu, gott að rúlla honum upp
með hjálp bökunarpappírsins.
11. Hellið restinni af súkkulaðinu
yfir ásamt ferskum berjum og
smá Nóa kroppi.
12. Geymist í kæli í um 2 klukku-
stundir áður en borið fram.
Svo er einstaklega gaman að
skreyta kaffihlaðborðið á þjóð-
legan hátt og kalla fram 17. júní
stemninguna. ■FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Húð & HÁR
Við skoðum heim sny tivara g komum með góð ráð.
Boðið verður upp á flott viðtöl og fróðlega umfjöllun
þar sem umhirða húðar og hárs er í forgrunni.
Tryggðu þér auglýsingapláss í mest lesna dagblaði landsins.
Fimmtudaginn 24. júní gefur Fréttablaðið út sérblaðið
Nánari upplýsingar um blaðið veitir
Arnar Magnússon, sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5652 / arnarm@frettabladid.is
6 kynningarblað A L LT 17. júní 2021 FIMMTUDAGUR