Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.06.2021, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 17.06.2021, Qupperneq 44
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Í dag verða þættirnir Katla frumsýndir á Netflix. Það er stórskotalið sem stendur að baki myndinni, sem er leik- stýrt af Baltasar Kormáki. Söngkonan Guðrún Ýr, einnig þekkt sem GDRN, fer með eitt af aðalhlutverkunum. steingerdur@frettabladid.is Þáttaraðarinnar Kötlu frá Net- flix í leikstjórn Baltasars Kormáks hefur verið beðið með óþreyju. Með hlutverk í þáttunum fara margir af okkar fremstu leikurum: Íris Tanja Flygenring, Ingvar E. Sigurðsson og Þorsteinn Bachman. Það vakti þó forvitni margra þegar tilkynnt var að söngkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, GDRN, færi með eitt aðalhlutverk- anna, en fram að því hafði hún ekki leikið neitt að eigin sögn, ekki einu sinni í skólaleikritum í æsku. „Nei, ég lék ekki. Þetta er alveg í fyrsta skipti, algjör frumraun,“ segir hún. Dóttir Baltasars þekkti til Guð- rúnar og benti á að það væri kannski sniðugt að athuga með hana. „Ég veit ekki alveg af hverju henni datt þetta í hug. Svo var Selma Björnsdóttir ein af þeim sem var í því að finna leikara í hlut- verk myndarinnar. Hún leikstýrði Shakespeare verður ástfanginn og þar var ég að flytja tónlistina, þann- ig að hann hefur mögulega fengið nokkrar ábendingar frá hinum og þessum. Síðan hefur hann ákveðið að bara tékka,“ segir Guðrún. Missti andlitið Hún segir það hafa verið skýrt frá fyrsta degi að hún var samt ekki fengin í verkið vegna þess að hún væri með einhvern söngferil að baki sér. „Þetta snerist meira um að tékka á hvort það kæmi eitthvað áhugavert út úr þessum prufum. Ég fer í þær og fæ svo aðra símhringingu þar sem mér var sagt að þetta liti rosalega vel út og ég beðin um að koma aftur.“ Hún segist ekki beint hafa gert sér grein fyrir því hve vel eða illa gekk, og hvort hún myndi fá annað símtal. „Ég var svo stressuð í prufunum, ég bjóst ekki við neinu. Ég bjóst alveg við að þau myndu ekki hringja aftur en svo hugsaði ég: „Vá hvað það væri gaman ef þetta myndi ganga upp.“ Ég vonaði það, en var engan veginn viss. Það kom mér líka á óvart þegar þau heyrðu í mér eftir nokkrar prufur og sögðust hafa ákveðið að fá mig í hlutverkið. Ég eiginlega bara missti andlitið.“ Þessar gleðilegu upplýsingar fékk hún sama dag og hún var að fara að spila á Airwaves 2019. „Ég var svo glöð, ég var alveg í ruglinu,“ segir hún og skellihlær. Fór leynt með þátttökuna Guðrún ákvað að segja engum frá gleðifregnunum, enda hvílir mikil leynd yfir verkefnum sem þessum. „Ég hélt því leyndu alveg ótrú- lega lengi. Ég fékk leyfi til að segja mömmu og pabba frá þessu. Það er svo í apríl 2020 sem Katla er fyrst til- kynnt. Þá birtist nafnið mitt, en þá fór ég samt ekkert strax að spangóla um það að ég væri í stóru hlutverki. Mér fannst eiginlega skemmtilegra að það kæmi svolítið á óvart.“ Nafn Guðrúnar kom fram í fyrstu tilkynningu um leikara í þáttaröð- inni. „Ég held að margir hafi séð nafnið mitt og haldið að ég væri í litlu hlut- verki. En kannski ekki neinn áttað sig á því að þetta væri svona mikið.“ Hún segir þetta hafa komið fólk- inu í kringum hana mjög á óvart. „Og margir spurðu mig hvort ég hafi verið að leika, sem ég auð- vitað svara neitandi,“ segir Guðrún hlæjandi. „Þetta er eitthvað sem kom á óvart og kemur í raun sjálfri mér mikið á óvart. Ég held að ég hafi ekki gert mér grein fyrir því sjálf hversu stórt þetta væri fyrr en við vorum byrjuð í tökum. Þá fattaði ég bæði stærðargráðu verkefnisins og líka hlutverksins, sem ég átti að gera góð skil,“ segir Guðrún Ýr, sem fer með hlutverk Grímu í þáttunum. Sterkur karakter „Hún býr í Vík í Mýrdal og hefur lent í alls konar áföllum í gegnum lífið. Svo byrja dularfullir hlutir að gerast og þættirnir sýna hvernig hún tekur á þeim. Gríma er flottur og sterkur kvenkarakter.“ Guðrún viðurkennir að vera svo- lítið stressuð fyrir frumsýninguna í dag, en að sama skapi sé hún líka ótrúlega spennt. „Það er svo erfitt að horfa á sjálfan sig og átta sig á því hvort eitthvað var f lott eða ekki. Maður getur verið svo gagnrýninn á sjálfan sig. Svo erum við búin að vera í talsetn- ingu, þegar það er mikið rok þá þarf kannski að talsetja hlutina upp á nýtt. Svo tala allir fyrir sitt hlutverk í ensku talsetningunni, en þetta er tekið upphaflega upp á íslensku,“ segir hún. Hún segir það hafa verið sérstak- lega gaman að fá að tilheyra hópi flottustu leikara landsins. „Það var líka svo æðislegt að fá að vera partur af þessu af því maður lærir svo mikið af öðrum. Þá fékk ég tækifæri til að sjá hvað þau gerðu og unnu, líka bak við tjöldin. Þetta var rosalega lærdómsríkt ferli í alla staði, það er hægt að taka hvern ein- asta hlut, stúdera hann og læra af.“ Katla er aðgengileg á Netflix frá og með deginum í dag. ■ Lærdómsríkt ferli í alla staði Guðrún hélt því heillengi leyndu fyrir sumum af sínum nánustu hve umfangsmikið hlutverkið var. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ég var svo stressuð í prufunum, ég bjóst ekki við neinu. Ég bjóst alveg við að þau myndu ekki hringja aftur en svo hugsaði ég: „Vá hvað það væri gaman ef þetta myndi ganga upp.“ BARÓNSTÍGUR KEFLAVÍK OG AKUREYRI 8-24 24/7 WWW.EXTRA.IS 1299kr.stk. Helíumblöðrur !! VINSÆL VARA !! VINSÆL VARA 399 kr.stk. Sleikjósnuð 399 kr.stk. Íslenski fáninn Frá Hæ, hó jibbí jei það er komin 17. Júní !! VINSÆL VARA 34 Lífið 17. júní 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.