Fréttablaðið - 17.06.2021, Page 46
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Ég á grill. Ég á grill alveg eins og
pabbi minn og tengdapabbi minn,
og mágur minn og báðir svilar
mínir. Og ef ég býð vinum mínum
í mat þá grilla ég, sama hvort sólin
skín, hvort það rignir eða snjóar. Ég
er jafn áreiðanlegur og bandaríska
póstþjónustan. Ég fer í sandalana
mína yfir sokkana og út í garð,
Hófí, kærastan mín, réttir mér
hráa matinn út um gluggann og ég
henni grillaða matinn inn. Þetta
finnst okkur sniðugt fyrirkomulag
– við tölum oft um það. Svo stend
ég þarna úti, á skyrtunni, í sand
ölunum, í snjónum og stari á grillið
mitt. Alveg eins og pabbi minn í
garðinum sínum í Vesturbænum,
alveg eins og ég. Þegar nágranni
minn sér mig grilla hlær hann
kannski og kallar mig brattan.
„Maður lætur eitthvað svona smott
erí ekkert stoppa sig,“ segi ég. Hann
kallar mig góðan og horfir aðeins á
mig grilla. „Flott grill.“ „Takk.“
Þetta var auðvitað aldrei planið,
ekki þegar ég var unglingur. Ég
ætlaði ekki að eiga garð í Vestur
bænum eins og pabbi. Ég ætlaði
ekki að grilla og fá matinn út um
gluggann og tala um hversu sniðugt
þetta system er eða segja að svona
smotterí stoppi mig ekkert í því
að grilla í snjónum á skyrtunni
eða horfa á grillið með nágranna
mínum eftir að hann kallar mig
góðan. Þetta var auðvitað aldrei
planið, ekki þegar ég var unglingur.
Ég ætlaði ekki að búa í þægilegu
fjölbýli, í fallegri götu, með garð
sem við þurfum að fara að vinna í,
tíu mínútur frá foreldrum mínum.
Ég man ekki hvað planið var, það
hefur drukknað í bottomless
brönsum, steypujárnspönnum og
streymisveitum. Þægindin gleypa
draumana. Stundum reyni ég að
rifja það upp, oft á kvöldin þegar
ég get ekki valið á milli HBO og Net
flix. Síðan skín sól og ég kveiki upp í
grillinu mínu. Ég á grill. n
Ég á grill
Stefáns Ingvars
Vigfússonar
n Bakþankar
Sumarið er komið og þú finnur alla réttu fylgihlutina hjá
Nova. Hvort sem það eru sumarstjörnurnar frá Samsung og
Apple, renningarleg rafskúta eða ferðafélagar á folfvellina
og í grillveisluna.
www.nova.is
Hæ hó og
jibbí græjur!
5G
Kaup-
auki
Galaxy Buds Pro
Andvirði 44.990 kr.
20%
afsl.
Samsung
Galaxy A12
64GB
34.990 kr.
Austin and
Barbeque
Ferðagrill
14.990 kr.
Samsung
Galaxy S21
128GB
149.990 kr.
5G
Apple
iPhone 12 Pro
128GB
199.990 kr.
Apple
Watch SE LTE
40mm
69.990 kr.
Nova
Folf
diskósett
3.992 kr.
4.990 kr.
eSIM
DÍLL
NOVA
Power
Rafskúta
Zero 8
82.990 kr.
Frí heimsending
Úrlausn
frítt í
4 mán
MARKAÐURINN.IS
NÝR VETTVANGUR
VIÐSKIPTALÍFSINS
Nýr og endurbættur markaðurinn.is
er kominn í loftið með öllum helstu
upplýsingum úr fjármálaheiminum.
• Gengi hlutabréfa í rauntíma
• Gengi gjaldmiðla
• Daglegar viðskiptafréttir
• Nýjasta tölublað Markaðarins