Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 01.12.1951, Qupperneq 1
1 95 1
VI. ár, 1. tbl.
BANOALAG -
Útgefandi:
Bandalag starfsmanna ríkis og hæja.
Ritnefnd:
GúSjón B. Baldvinsson, Sigurður In
mundarson, Steingrímur Pálsson.
- RIKIS OG
0
Þœttir úr 10 ára sögu B.S.R.B.
Áfangar á tíu ára ferli.
Þegar opinberir starfsmenn hófu undirbúning
að heildarsamtökum giltu aðrar reglur um
greiðslu verðlagsuppbótar þeim til handa, en
voru um aðra launþega. Þetta misrétti fékkst
leiðrétt.
Launalögin, sem þá voru í gildi frá 1919, voru
hvorttveggja úrelt mjög vegna launastiga, og
auk þess náðu þau aðeins yfir lítinn hluta ríkis-
starfsmanna. Ný launalög tóku gildi árið 1945.
Eftirlaunamál ríkisstarfsmanna voru einnig
mjög á eftir tímanum. Sjóðirnir náðu aðeins til
embættismanna, sem svo voru nefndir, og ið-
gjöld voru greidd af litlum hluta launa. Ný lög
um lífeyrissjóði voru sett 1944, sem bættu úr
þessum ágöllum.
Samtökin höfðu hvergi tryggingu fyrir því að
ríkisvaldið veitti þeim áheyrn hvað þá meira,
í launalögunum frá 1945 er ákvæði, sem veitir
Bandalaginu rétt til að fjalla um þau mál, er
lögin ná yfir, áður en reglugerðir eru settar.
Engin föst regla var til um greiðslu yfirvinnu-
kaups, var það því mjög á reiki hvernig greiðsla
fór fram. Reglugerð fékst sett í apríl 1946, þar
sem greiðslur þessar voru ákveðnar og sam-
ræmdar.
Launabætur hafa fengist sem hér segir, auk
þeirra sem náðust með áðurnefndum launalög-
um: Á meðan endurskoðun þeirra fór fram var
greidd ómagauppbót, sem mildaði óréttlæti í
launagreiðslum fyrir fjölskyldumenn. Nú hefir
um tvö ár verið greidd launauppbót á gildandi
launástiga, til þess að jafna að nokkru metin
miðað við grunnkaupshækkanir, sem verkalýðs-
félögin hafa náð.
I fyrra og aftur í sumar náðust mjög mikils-
verðir árangrar um greiðslu verðlagsuppbótar á
laun opinberra starfsmanna, sem öllum hlýtur
að vera í fersku minni.
Engar samræmdar reglur eða viðhlýtandi
ákvæði eru til um réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna. Frumvarp í þessu efni er nú samið
og í athugun hjá dómsmálaráðherra ásamt til-
lögum bandalagsins.
Félög bæjastarfsmanna hafa fengið viðurkenn-
ingu sem samningsaðilar, og utan Reykjavíkur
hafa félögin á Akureyri og Siglufirði fengið
eftirlaunaréttindi.
—o—
Bandalagið var myndað af 14 félögum, sem
töldu í árslok 1942 1545 félaga innan sinna vé-
banda, nú í dag eru 26 félög í bandalaginu sem.
telja samtals 3169 félaga.
Innri styrkur er þó ekki fólginn einvörtðungu
í fjölgandi félögum, heldur miklu fremur í vax-
andi skilningi á mætti samtakanna, þýðingu
þeirra og gildi, ekki aðeins sem baráttutæki fyrir
bættum launum, heldur einnig til menningar-
STARFSMANNABLAÐIÐ 1