Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 01.12.1951, Blaðsíða 29
indi um manneldi hér á þinginu, beinir 14. þing
B. S. R. B. þeim tilmælum til stjórnarinnar, að
úr þessu verði bætt á næsta þingi“.
Erindi.
Á þinginu voru flutt tvö erindi. Þorvarður J.
Júlínusson hagfræðingur flutti greinagott erindi
um efnahagsmál, og urðu út af því nokkrar um-
ræður.
Ármann Halldórsson námsstjóri framhaldsskóla
í Reykjavík flutti erindi um þróun og sögu ís-
lenzkrar kennarastéttar, og var það fróðlegt og
sögulegt. t
Stjómarkjör.
í stjórn bandalagsins næsta starfsár voru
kosnir: Formaður: Ólafur Björnsson prófessor.
Varaformaður: Arngrímur Kristjánsson, skóla-
stjóri. Meðstjórnendur: Steingrímur Pálsson,
símritari, Þorvaldur Árnason skattstjóri, Guð-
jón B. Baldvinsson deildarstj óri, Magnús Egg-
ertsson lögregluþjónn, Eyjólfur Jónsson fulltrúi,
Karl Ó. Bjarnason varaslökkviliðsstjóri og Sig-
urður Ingimundarson gagnfræðaskólakennari.
I varastjórn voru kjörnir: Séra Jakob Jónsson,
Baldur Möller fulltrúi, Karl Halldórsson toll-
vörður og Þorsteinn Egilson fulltrúi.
Endurskoðendur voru kjörnir: Björn L. Jóns-
son veðurfræðingur, Andrés G. Þormar aðal-
igjaldkeri, og til vara: Lárus Sigurbjörnsson full-
trúi.
Á þingfundi 13. nóvember fóru fram þingslit
með venjulegum hætti og var síðan tekin mynd
af viðstöddum þingfulltrúum, og er hún birt
hér í blaðinu.
í tilefni 10 ára afmælis bandalagsins snæddu
fulltrúar sameiginlega kvöldverð í Verzlunar-
mannaheimilinu mánudagskvöldið þ. 12. nóvem-
ber í boði bandalagsstjórnar.
Af sama tilefni þágu fulltrúar ásamt mökum
sínum veitingar í boði ríkisstjórnarinnar í ráð-
herrabústaðnum í Tjarnargötu, síðdegis laugar-
daginn 10. nóv. Forsætis- og félagsmálaráðherra
tók á móti gestum ásamt frú sinni, en auk hans
voru viðstaddir þrír aðrir ráðherrar, þ. e. dóms-
málaráðherra, fjármálaráðherra og atvinnumála-
ráðhera. Var veitt af rausn og skemmtu menn sér
hið bezta. Boðið var þakkað af þingforseta Helga
Hallgrímssyni og formanni bandalagsins Ólafi
Bjömssyni.
Þingið var haldið í sama fundasal og fyr.-.ti
undirbúningsfundurinn að stofnun samtakanna
var haldinn, þ. e. í samkomusal Útvegsbankans.
Sunnudagskvöldið 11. nóvember þágu fulltrú-
ar smurt brauð og öl í boði bankans, og í fáum
orðum sagt var allt gert af hálfu starfsmanna-
félags bankans og stjórn hans til þess að sem
bezt tækist um dvölina í þessum sögulegu húsa-
kynnum.
Sendi þingið og verðugt þakklæti fyrir gest-
risnina.
Síðustu fréttir:
Á 150. fundi bandalagsstjórnarinnar var Starf-
mannafélag stjórnarráðsins tekið inn í banda-
lagið. Ríkisstjórnin hefir fallist á að mæta ósk
bandalagsins um skipun samninganefndar til að
fjalla um ágreiningsmál milli þessara aðila.
Þjéðlegasta tóbaksnotkunin
er að ta\a í ncfið.
Höfum ávallt fyrirliggjandi neftóbak
í 250 gr. glerkrukkuni og neftóbak í
50 gr. smádósum.
TÓBÁKSEINKASALA RÍKISINS
■Jf| ii ii mi ............................ -V"
--„„------„„-„„-------„4.
STARFSMANNABLAÐIÐ 29