Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 01.12.1951, Qupperneq 19
Samþykktir 14. þings B.S.R.B.
I. Launamálið. Endurskoðun launalaga.
14. þing B. S. R. B., skorar eindregið á ríkis-
stjórnina, að leggja fyrir Alþingi það er nú situr,
frumvarp til launalaga, samræmt móts við til-
lögur bandalagsins og að beita sér fyrir því að
það verði lögfest, eða að öðrum kosti, að fá nauð-
synlega heimild Alþingis, til þess að semja við
bandalagið um laimakjör ríkisstarfsmanna á
næsta fjárhagsári.
Þingið leggur áherzlu á það sjónarmið milli-
þinganefndarinnar að launastiginn sé lægri en
svo að réttlátt geti tahst, með hliðsjón af launa-
igreiðslum fajá einkafyrirtækjum, og raunveru-
legum framfærslufcostnaði.
14. þing B. S. R. B. fellst á að milliþinganefnd
bandalagsins hafi hvorki haft tíma né aðstöðu
til að flokka ríkisstarfsmenn eftir störfum, þar
sem nauðsynlegt var að flýta fyrir lokaafgreiðslu
frumvarps til launalaga, en samning þess og
athugun hefur nú tekið mjög langan tíma.
Þingið felur því bandalagsstjórn að gera nú
þegar nauðsynlegar ráðstafanir, samanber. til-
lögu, samþykkta á fundi milliþinganefndar
B. S. R. B. í launamálum, þann 15. maí s. 1., til
þess að ríkisstarfsmönnum verði skipað í launa-
flokka eftir störfum.
Þingið telur mjög brýna nauðsyn, að samtök-
unum verði beitt til hins ítrasta, í því skyni, að
fá lausn á launamálum ríkisstarfsmanna, sem
bandalagið getur við unað, og felur því hverju
bandalagsfélagi að tilnefna tvo menn úr sínum
félagshópi, til þess að vera bandalagsstjórn til
aðstoðar í þessu máli.
frá ýmsum bandalagsfélögum, um að knýja fram
viðunandi lauisn í málinu. Slíkar áskoranir eru
nauðsynlegar og örvandi, og væri æskilegt að
fleiri félög sýndu samskonar áhuga, þegar stór
mál eru á döfinni.
Skrifstofu bandalagsins hafa borizt innlend
málgögn, svo sem Læknablaðið, Simablaðið,
Bankablaðið og Menntamál, ennfremur frétta-
bréf frá Starfsmannafélagi Reykjavíkurbæjar og
fréttabréf frá Samvinnunefnd norrænna bæjar-
starfsmanna.
Yfirvinnukaup og launabætur.
Þar sem viðurkennt er, að launauppbót, sam-
kvæmt ákvæðum fjárlaga, sé föst grunnlauna-
hækkun, telur 14. þing B. S. R. B., að samræma
beri yfirvinnukaup því sjónarmiði, og felur því
stjórn bandalagsins, að beita sér fyrir því við
ríkisstjórnina, að 5. grein gildandi reglugerðar
um vinnutíma starfsmanna ríkis og ríkisfyrir-
tækja frá 11. marz 1946, verði breytt þannig, að
samsvarandi hækkun komi á alla greiðslu fyrir
yfirvinnu.
I sambandi við endurskoðun á gjaldskrá fyrir
héraðslækna, tekur þingið fram, að ætlast er til,
að tekið sé tilht til grunnkaupshækkana, og að
á gjaldskrána komi vísitala, eins og hún er greidd
á hverjum tíma.
14. þing B. S. R. B. ítrekar þá samþykkt 13.
þings bandalagsins, að bandalagsstjórn vinni að
því, að lögregluþjónar, hjúkrunarkonur, veður-
fræðingar, tollverðir, flugumferðarstjórar og
aðrir þeir, sem vaktavinnu stunda, fái greidda
33% uppbót á næturvinnu, eins og nú á sér stað
um símamenn og ýmsa aðra, samanber reglu-
gerð útgefna af ríkisstjórninni 30. júlí 1945.
Laun bæjarstarfsmanna.
14. þing B. S. R. B. felur stjórn bandalagsins
að stuðla að því, að bæjarfélögin greiði starfs-
mönnum sínum eigi lægri uppbætur á laun en
greiddar eru starfsmönnum ríkisins, unz ný
launalög hafa verið sett, en launagreiðslur bæj-
anna verði þá samræmdar þeim.
Ennfremur skorar þingið á stjórn bandalags-
ins, að veita þeim starfsmannafélögum bæjanna,
sem þess óska, aðstoð til þess að koma eftirlauna-
málum sínum í svipað faorf og þegar hefir feng-
izt á Akureyri og Siglufirði.
Athugun lífeyrissjóðslaga.
14. þing B. S. R. B. felur stjórn bandalagsins
að athuga ósamt fulltrúum launþeganna í stjórn-
um lífeyrissjóðanna, hvort ekki sé rétt að breyta
lögum sjóðanna þannig, að lífeyririnn sé reikn-
aður hverju sinni eftir því, hver laun embættis-
ins, er lífeyrisþeginn gegndi síðast, áður en hann
lét af störfum, eru á hverjum tíma.
STARFSMANNABLAÐIÐ 19