BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.03.1990, Page 2
Nýjar tillögur í húsnæðismálunum
Þann 3. júlí 1989 skipaði Jóhanna
Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, nefnd til að
fjalla um félagslega hluta húsnæðiskerfisins.
Undirrituð var fulltrúi BSRB í nefndinni, en í
febrúar 1990 skilaði hún áliti í fjórum
meginþáttum.
1. Drög að ffumvarpi til laga um Húsnæðis-
stofnun rikisins, þar sem kaflinn um
félagslega húsnæðiskerfið er endur-
skoðaður.
2. Tillögur um breytt skipulag Húsnæðis-
stofnunar og stjómun húsnæðismála í
landinu.
3. Tillögur um húsaleigubætur, leigu-
miðlanir og aukið framboð á leigu-
húsnæði.
4. Tillaga um endurskoðun laga um
húsaleigusamninga.
Hér á eftir er drepið á helstu tillögur nefndar-
innar:
Skipulag: Til að dreifa valdi Húsnæðis-
stofnunar rikisins og færa þjónustuna nær þeim
sem hennar njóta, leggur nefndin til að landinu
verði skipt í 5—8 húsnæðisumdæmi. I hvexju
umdæmi starfi stjóm semreki skrifstofu og annist
áætlanagerð, tillögur um lánveitingar til
félagslegra íbúða og þjónustu við almenning á
sínu svæði.
Lánamál: Einfaldaberlánakerfið, fækkalána-
flokkum og flytja þá lánaflokka sem lána til
félagslegs húsnæðis og era nú í Byggingarsjóði
ríkisins yfir í Byggingasjóð verkamanna. Láns-
tími og lánshlutfall verði samræmt, en vextir
verði mismunandi eftir því hvort um er að ræða
almennar eða félagslegar íbúðir.
S amræmdir verði vextir á framkvæmdalánum
og hækkun vaxta á lánum ffá Byggingasjóði
verkamanna, en þess jafnframt gætt að vaxta-
hækkunin hækki ekki greiðslubyrði þeirra lægst
launuðu, að teknu tilliti til vaxtabóta og húsaleigu-
bóta til leigjenda sem nefndin gerir tillögur um.
Leigumál: Greiddar verði húsaleigubætur til
allra þeirra leigjenda sem eru undir þeim
tekjumörkum sem miðað er við í félagslega
húsnæðiskerfinu og búa í íbúð undir 130 fm.
Húsaleigubætumar verði greiddar í gegnum
skattakerfið og fjármagnaðar af ríkissjóði, líkt og
vaxtabætur til íbúðareigenda.
í öllum stærri sveitarfélögum starfi leigu-
miðlanir sem veiti leigjendum þjónustu, staðfesti
löglega húsaleigusamninga og annist önnur þau
verkefni sem snerta leigjendur.
Eins og sjá má er hér aðeins tæpt á málum.
Lítið rými er fyrir hendi í blaði sem þessu, og því
ekki mögulegt að gera starfi nefndarinnar fyllri
skil á þessum vettvangi. Framvarpið með athuga-
semdum og skýrsla nefndar um félagslega
húsnæðiskerfiðliggur frammi á skrifstofu BSRB
öllum til aflestrar ef fólk vill glöggva sig á mál-
unum.
Ama A. Antonsdóttir
Smáskammtalækningar á móti bragði?
í kjölfar kjarasamninganna á dögunum bárust
BSRB fjölmargar kvartanir vegna verðhækkana
í mötuneytum, og sendu samtökin mótmæli til
stjórnvalda vegna þessa. Fjármálaráðuneytið
hefur nú sent mötuneytum sem undir það heyra
erindi þar sem þess er óskað að orðið verði við
kröfu stjómar BSRB um að verðhækkanir sem
ekki samrýmast markmiðum og forsendum
nýgerðra kjarasamning verði teknar til baka.
Ráðuneytið hefur einnig farið þess á leit að
mötuneytin upplýsi um gang mála.
Þegar hafa borist nokkur svör þar sem mötu-
neyti sverja af sér allar hækkanir. í einhveijum
tilvikumhafaverið haldnir fundir með starfsfólki
þar sem reynt hefur verið að ná samkomulagi um
verð og skammtastærð.