BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.03.1990, Blaðsíða 5
Jafnréttisnefndin og 8. mars
Á fundi Jafnréttisnefndar BSRB þann 28.
febrúar síðastliðinn var samþykkt eftirfarandi
ályktun:
„I tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna,
8. mars, vill Jafnréttísnefnd BSRB hvetja íslenskar
konur til að herða baráttuna fyrir jöfnum kjörum
kvenna og karla. Nefndin minnir á að enn er langt
í land að þessu takmarki sé náð. Að jafnaði ná
íslenskar konur aðeins 70% til 80% af tekjum
karla.
Nefndin vill ennfremur benda á að enn gætir
fordóma í garð kvenna, innan verkalýðshreyf-
ingarinnar ekki síður en utan. Þess vegna er
aukin þátttaka kvenna í starfi samtaka launafólks
nauðsynleg svo að markmiðunum um kjaralegt
og félagslegt jafnrétti kynjanna verði náð.
Nefndin fagnar því að samtök kvenna hafa nú
opnað miðstöð gegn kynferðislegu ofbeldi.
Auknar upplýsingar í þessum efnum gætu leitt til
upprætingar hvers kyns ofbeldis og beitingu
aflsmunar í þjóðfélaginu. Virðing fyrir einstakl-
ingnum, kjaralegt og félagslegt jafnrétti kynjanna,
er forsenda þess að hægt sé að lifa fijáls í frjálsu
landi.”
Björn í Genf
Bjöm Amórsson, hagfræðingur BSRB, er
nýkominn heim frá Genf, en þar sat hann fund
Ráðgjafanefndar EFTA dagana 6. og 7. mars.
Ráðgjafanefndina skipa ýmsir aðilar sem hags-
muna eiga að gæta í viðræðunum milli EFTA og
EB. Ari Skúlason er fulltrúi ASI í nefndinni, en
að auki eigafulltrúar atvinnurekenda sæti í henni.
Formaður nefndarinnar er Ólafur Davíðsson,
formaður íslenskra iðnrekenda.
FyrirfundinníGenfhittustfulltrúarverkalýðs-
hreyfingarinnar. Voru fyrri viðhorf ítrekuð;
áhersla skyldi lögð á félagsmálaþáttinn, samtímis
því sem viðræðum EFTA og EB þyrfti að hraða.
Stærsti málaflokkurinn á nýafstöðnum fundi
Ráðgjafanefndarinnar var tvímælalaust þróunin
í Austur- Evrópu, og hvaða áhrif hún hefði á
viðræður EFTA og EB. Að vonum verður ekki
sagt að endanleg niðurstaða hafi náðst um þau
mál. Næsti fundur nefndarinnar verður haldinn í
Svíþjóð í júní, en hún hittist tvisvar til þrisvar á
ári.
Fyrirbyggjandi samskipti
Nokkur brögð hafa verið að því að ríki og
sveitarfélög hafa ekki virt rétt einstaklinga til
biðlauna, og hefur BSRB staðið í málaferlum
fyrir hönd ýmissa aðildarfélaga vegna slíkra mála.
Eitt mál af þessu tagi er öðrum undarlegra
fyrir þá sök að bæjarstjómin sem í hlut á hefur
neitað að láta nauðsynleg gögn af hendi, og
reyndar haft í hótunum vegna málsins. Hér er um
að ræða Njarðvíkurbæ, en í niðurlagi bréfs sem
bæjarstjórinn þar skrifaði vegna þessa máls segir
á þá leið að verði málið ekki látið niður falla „er
mér nauðugur sá kostur að leggj a til að ráðstafanir
verði gerðar til að slíkar kröfur rísi ekki í
framtíðinni.”
Útgáfumálin
Fréttabréf B SRB- tíðinda kemur nú út í fyrsta
skipti. Ætlunin er að það verði á ferðinni mánaðar-
lega eða þar um bil, og fj alli eins og nafnið bendir
til um það sem efst er á baugi innan bandalagsins
hverju sinni, greini frá samþykktum, ályktunum,
málalokum margs konar erinda sem berast til
BSRB, námskeiðum og félagsstarfi, svo tæpt sé
á því helsta. Fréttabréfinu verður fyrst um sinn
dreift til stjóma aðildarfélaga og annarra þeirra
sem félögin sj álf tiltaka, trúnaðarmanna og, síðast
en ekki síst, á vinnustaði.
BSRB- tíðindi voru endurvakin fyrir því sem
næst réttu ári, og höfðu útgáfumál bandalagsins
þá legið nokkuð í láginni árin á undan. Eftir
þreifingamar fyrsta árið um form og efni hefur
nú verið ákveðið að stinga út kúrsinn í útgáfu-
málunum með svofelldum hætti: fféttabréfið
kemur út mánaðarlega eins og áður sagði, eða
einstíttogtilefni gefast. EnnfremurkomaBSRB-
tíðindin út tvisvar á ári, og þá aftur á formi
tímarits en ekki lengur sem dagblað.
BSRB-tíðindi: umsjónar- og ábyrgðar-
maður: Hjörleifur Sveinbjörnsson
5