BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.03.1990, Blaðsíða 12
Verðlagseftirlitverkalýðsfélaganna:
Vextina undir smásjá
Starfsemi bankanna, vextir og lánamál,
*
tryggingar, verðlagið hjá Bifreiðaskoðun Islands,
aðrar söluvörur olíufélaganna en þær sem eru
undir verðlagseftirliti: þetta eru meðal þeirra
pósta sem Verðlagseftirlit verkalýðsfélaganna -
þeirra á meðal BSRB - mun taka til sérstakrar
athugunar á næstunni. Starfseminni hefur nú
verið haldið úti í rúmlega hálfan mánuð við
góðar undirtektir almennings.
Verðlagseftirlit verkalýðsfélaganna hefur nú
látið útbúa tvö verðgæslublöð í samvinnu við
Alþýðusambandið, Verðlagsstofnun og Neyt-
endasamtökin í Reykjavík. Á öðru blaðinu eru
tilteknar nokkrar algengar nauðsynjavörur sem
eiga að fást um allt land. V erðlagsstofnun athu gaði
verðið á þessum vörum í 30 til 40 verslunum á
höfuðborgarsvæðinu dagana 5. og 6. mars, og
hefur síðan tekið saman það sem kallað er „Dæmi
um verð á höfuðborgarsvæðinu í mars.” Þessi
verð getur fólk haft til hliðsjónar við eigin
verðathuganir.
Á hitt verðgæslublaðið eru hvorki skráðar
vörutegundir né verð, en það hentar vel til að skrá
niður innkaup frá einum tíma til annars.
Hvetur verðlagseftirlitið verkalýðsfélögin til
að hafa gott samstarf sín á milli um þessi mál, og
jafnframt við neytendafélög þar sem þau eru til
staðar.
Þegar verðlagseftirliti verkalýðsfélaganna var
komið á fót í kjölfar kjarasamninganna var mein-
ingin að láta duga að hafa símatíma á morgnana,
en það reyndist allsendis ófullnægjandi að sögn
starfsmanns eftirlitsins, Leifs Guðjónssonar, og
hefur mikill fjöldi fólks hringt og komið á fram-
færi ábendingum um verðhækkanir. Leifur segir
tvennt einkenna viðbrögðin; annars vegar láti
fólk í ljós ánægju með að verkalýðshreyfingin
skuli hafa sett verðlagseftirlitið í gang, en hins
vegar séu menn argir yfír hækkunum þeim sem
orðið hafa.
Verðlagseftirlit verkalýðsfélaganna verður
starfrækt í þrjá mánuði. Markmiðið er að sporna
gegn óeðlilegum verðhækkunum, enda var það
rauði þráðurinn í kjarasamningunum að verðlagi
skyldi haldið í skefjum. Félagsmenn BSRB eru
hér með hvattir til að hafa samband við
verðlagseftirlitið ef þeir verða varir við hækkanir
á vöru og þjónustu sem þeim finnst óeðlilegar.
Síminn hjá verðlagseftirlitinu er:
624230.
Útseld vinna: óheimilt að
hækka taxta
Eftirfarandi samþykkt um taxtakaup vegna
útseldrar vinnu var gerð á fundi Verðlagsráðs
hinn 22. febrúar síðastliðinn:
„Oheimilt er að hækka taxta vegna hvers kyns
útseldrar vinnu eða þjónustu tengdri henni frá
því sem var 31. desember 1989 hjá eftirfarandi
starfs- og atvinnugreinum: endurskoðunar-
þjónustu, tölvuþjónustu og þjónustu kerfisfræð-
inga, tæknifræðinga, arkítekta, rekstrarráðgjafa,
múrara, trésmiða, veggfóðrara, pípulagninga-
manna,málaraogverkamannaíbyggingariðnaði.
Gilda taxtar vegna útseldrar vinnu og þjónustu
ofangreindra aðilaeins og þeir voru 31. desember
1989 ífá og með deginum í dag að telja sem
hámarkstaxtar.”
Fulltrúi BSRB í Verðlagsráði er Einar Ólafs-
son, formaður Starfsmannafélags ríkisstofnana.
12