BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.03.1990, Qupperneq 3
Hækkun lyfja mótmælt
Heilbrigðishópur BSRB sendi nýlega frá sér
ályktun þar sem mótmælt er verðhækkunum
þeim sem orðið hafa á lyfja- og sérfræðikostnaði
í heilbrigðisþjónustunni. ,d*jóðarsáttin í nýgerð-
um kjarasamningi gerir ekki ráð fyrir hækkunum
á þjónustu sem þessari,” segir í ályktuninni.
Heilbrigðishópurinn er einn þeirra vinnuhópa
sem settir voru á stofn á vegum BSRB síðastliðið
sumar, og hafa þeir það verkefni með höndum að
fara ofan í saumana á ýmsum þáttum velferðar-
kerfisins. Að sögn formanns vinnuhópsins,
Kristínar Á. Guðmundsdóttur, Sjúkraliðafélagi
íslands, hafa þegar verið haldnir tveir fundir það
sem af er þessu ári, og í bígerð er að fj alla náið um
niðurskurðinn í heilbrigðiskerfinu.
✓
I ályktuninni lýsir heilbrigðishópurinn sig
fylgjandi grundvallarhugmyndum þeim sem búi
að baki svokölluðum „bestukaupalista,” þar sem
ótvírætt sé verið að hvetja lækna til að ávísa á
ódýrustu lyfin, og lækkaþarmeð heildarkostnað
Ný stjórn hjá útvarpsmönnum
Baldur Jónasson hefur verið kosinn formaður
stjómar starfsmannafélags Ríkisútvarpsins. Hann
leysir Magnús Einarsson af hólmi, en Magnús
hefur gegnt þessum starfa síðasta árið.
Á aðalfundi starfsmannafélagsins semhaldinn
var 28. febrúar síðastliðinn var ný stjóm kjörin.
Hana skipa auk B aldurs formanns þau Ragnheiður
✓
AstaPétursdóttir, varaformaður; Guðrún Eyberg,
ritari; Kristín Þórarinsdóttir, gj aldkeri og Magnús
Einarsson, meðstjómandi.
lyfja. Þó vanti ýmis lyf á listann, og því sé nauð-
synlegt að endurskoða hann með jöfnu millibili.
Hópurinn er fylgjandi lækkun sérfræði-
kostnaðar í heilbrigðisþjónustunni með því að
gera heilsugæslustöðvamar virkari. Jafnframt
átelur hann það harðlega að þeir sjúklingar sem
sjúkdóms síns vegna þurfa á sérffæðiþjónustu að
halda séu skattlagðir svo sem sýnt er. „Augljós-
lega þarf að koma til móts við þessa sjúklinga
meðeinhverskonarþaki,” segiríályktun hópsins,
en hann skipa auk Kristínar þau Sigrún Björg
Ingþórsdóttir, fóstra; Ingibjörg Halldórsdóttir,
meinatæknir; Hulda S. Ólafsdóttir, sjúkraliði;
Ásgerður Helgadóttir, ljósmóðir; Hanna Dóra
Stefánsdóttir, þroskaþjálfi; Kristjana Sigurðar-
dóttir, þroskaþjálfi; Áslaug Björnsdóttir,
hjúkrunarfræðingur; Hólmfríður Geirdal,
hjúkmnarfræðingur og Guðrún Björg Sigur-
bjömsdóttir, Ijósmóðir.
F élagsmálaskólinn
Námskeið í Munaðarnesi
Næsta námskeið Félagsmálaskóla alþýðu
verður haldið í Munaðamesi núna um mánaða-
mótin, og því meira en tfmabært fyrir áhugasama
BSRB- félaga að fara að hugsa sér til hreyfings.
Rekstur skólans annast Menningar- og
fræðslusamband alþýðu -MFA- en með laga-
setningu ffá í vor leið á BSRB aðild að honum.
Það fer því vel á því að námskeiðinu núna
skuli vera fundinn staður í Munaðamesi, á
heimavelli BSRB, en þetta er í annað sinn sem
félagar BSRB og ASÍ sækja námskeið Félags-
málaskólans í sameiningu.
Nánar til tekið stendur námskeiðið yfir dagana
25. mars til 7. apríl n.k. og er svonefnd fyrsta önn
skólans. Markmiðið er að auka þekkingu og
þjálfun launafólks í greinum sem tengjast hags-
munamálum þess og hugðarefnum, og ræðst val
námsgreina og viðfangsefna af þessu markmiði.
Meðal margs annars er fjallað um kjaramál,
3