Morgunblaðið - 17.04.2021, Blaðsíða 1
Aldrei
aftur!
Náttúru-legur
efniviður
Avraham Feldman, rabbíni gyðinga-
samfélagsins á Íslandi, segir mikil-
vægara en nokkru sinni að fræða fólk
og upplýsa um helförina enda sé það
besta leiðin til að koma í veg fyrir að
slíkur harmleikur eigi sér aftur stað.
Hann ritar formála að frægri bók
Gisellu Perl, Ég var læknir í Auschwitz,
sem komin er út í íslenskri þýðingu. 12
18.APRÍL 2021SUNNUDAGUR
Rýnt í skólakerfið
Netapótek LyfjaversFrí heimsending
Við Drápuhlíð íReykjavík hefurfjölskylda búiðsér fallegtheimili. 18
Hinn níræði HörðurJón Fossberg Péturssonfékk staðfest nýlega réttfaðerni og bætti Foss-berg við nafn sitt. 8
GunnþórunnJónsdóttir er meðheimildarmyndí smíðum umíslenska skóla-kerfið. 22
Loks rétt
feðraður
L A U G A R D A G U R 1 7. A P R Í L 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 89. tölublað . 109. árgangur .
Rafmagnaður
Verð 9.590.000 kr.
Advanced:
20” álfelgur, loftpúðafjöðrun, hiti í stýri,
íslenskt leiðsögukerfi
Innifalinn
ávinningur
1.270.000 kr.
hekla.is/audisalur · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA
Eigum nokkra lausa
til afhendingar
STUNDAR PÍANÓ-
NÁM Í TVEIMUR
LÖNDUM
50 ÁR SÍÐAN
HANDRITIN
KOMU HEIM
MENNINGARARFUR 1414 ÁRA PÍANÓLEIKARI 12
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Isavia ohf. gagnrýnir í umsögn til
Alþingis fjölmörg atriði í frumvarpi
samgönguráðherra til nýrra heild-
arlaga um loftferðir og segir vegið
verulega að hagsmunum félagins og
dótturfélaga þess. Breytingar sem
af því leiði muni jafnframt hafa nei-
kvæð áhrif á notendur og sam-
keppnishæfni Keflavíkurflugvallar.
Yfirlögfræðingur Isavia, sem
skrifar undir umsögnina, gagnrýn-
ir m.a. niðurfellingu lögveðs vegna
gjalda notenda flugvalla og breyt-
ingu á gildandi stöðvunarheimild
sem félagið telur skaða hagsmuni
þess og flugrekenda verulega.
Gerir hann alvarlegar athuga-
semdir við að í stað núgildandi
stöðvunarheimildar eigi að koma
kyrrsetningarheimild þar sem
rekstraraðili flugvallar, flugleið-
söguþjónusta og Samgöngustofa
geti lagt fram beiðni um kyrrsetn-
ingu loftfars til sýslumanns uns
lögmælt gjöld eru greidd, eða
trygging sett. Þetta sé ónothæft
úrræði. Er það sögð vera „arfavit-
laus hugmynd að leita þurfi til
sýslumanns um kyrrsetningu enda
verður loftfarið farið áður en
sýslumaður svarar símanum“.
Frumvarpið er viðamikið og alls
273 blaðsíður með greinargerð og
eru þar lagðar til veigamiklar
breytingar frá gildandi lögum. Í
gagnrýni Isavia á ákvæði um
brottfall lögveðs vegna ógreiddra
gjalda segir að það muni stórauka
líkur á að ekki takist að innheimta
gjöld notenda, leiði til meiri
áhættu í rekstri og töpuð notenda-
gjöld muni leggjast á notendur
sem fyrir eru.
„Arfavitlaus hugmynd“
- Isavia gagnrýnir loftferðafrumvarp ráðherra og segir vegið að hagsmunum
MSegir vegið að … »22
Játvarður prins, yngsti sonur Elísabetar 2.
Bretadrottningar, Soffía eiginkona hans og lafði
Lovísa, dóttir þeirra, virða hér fyrir sér blóm og
kransa sem breskur almenningur hefur lagt fyr-
ir framan kapellu heilags Georgs við Windsor-
kastala, en útför Filippusar drottningarmanns
fer þar fram í dag. Athöfnin verður látlaus og
lágstemmd að beiðni Filippusar, auk þess sem
heimsfaraldurinn setti strik í reikninginn. »21
AFP
Bretar sýna drottningunni samhug
„Hann situr í dyragættinni í djúpum
stól og er þokkalega drukkinn. Hann
tekur á móti okkur krökkunum og er
ég seinastur í röðinni inn. Þá ýtir
hann í mig með fætinum og segir:
„Ég á nú ekkert í þér!““
Þannig segir Hörður Jón Foss-
berg Pétursson frá því þegar hann,
sem lítill drengur, fékk fyrstu vís-
bendingu um að hann ætti annan
föður en talið var.
Í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins
rekur Hörður sögu sína, sem er lyg-
inni líkust. Hörður segir það merki-
legt að staðfesta loks faðernið, og
það kominn á tíræðisaldur. DNA-
próf staðfestu það sem hann alla tíð
grunaði; að hann væri af Fossberg-
ættinni. Hann lét því breyta nafni
sínu í þjóðskrá nú nýlega. „Þetta er
hálfgerð endurfæðing. Má maður
halda skírnarveislu?“
Morgunblaðið/Ásdís
Hörður Jón Fossberg Pétursson.
Ranglega
feðraður í
níutíu ár
- Rétt faðerni loks
staðfest með DNA
_ Jónas Haraldsson, ellilífeyrisþegi
sem lenti á svörtum lista stjórn-
valda í Kína á fimmtudag, kveðst
steinhissa á því að skrif hans hafi
flækst inn í ákveðna milliríkjadeilu.
Í yfirlýsingu sem sendiráð Kína
sendi frá sér í gær er staðfest að
þvingunaraðgerðin gagnvart Jón-
asi sé svar Kína við þátttöku Ís-
lands í þvingunaraðgerðum gagn-
vart kínverskum einstaklingum og
lögaðilum sem taka þátt í mann-
réttindabrotum í Xinjiang-héraði
gagnvart úígúramúslimum.
Jónas taldi áður að vera hans á
svarta listanum væri persónuleg.
»2
Skrif ellilífeyrisþega
flækt í milliríkjadeilu