Morgunblaðið - 17.04.2021, Side 11

Morgunblaðið - 17.04.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Pétur Haukur Helgason, formaður Félags maraþonhlaupara, segir ár- legt vormaraþon félagsins verða haldið laugardaginn 24. apríl. Það hafi orðið ljóst eftir að slakað var á samkomu- takmörkunum vegna kórónu- veirufaraldursins. Maraþonið hefst í Elliðaárdalnum rétt hjá gömlu rafstöðinni klukk- an átta árdegis og hálfmaraþonið kl. tíu. „Hlaupið er vestur Fossvogs- dalinn og snúið við á horni Hofs- vallagötu og Ægisíðu og farin sama leið til baka. Hlaupið á sér langa sögu og fór fyrst fram 1998 og er haldið á vorin og haustin. Báðum hlaupunum var frestað í fyrra vegna faraldursins en nú stendur til að halda hlaupið og skipuleggja það í samræmi við gildandi sóttvarna- reglur,“ segir Pétur Haukur um hlaupaleiðina. „Til að koma í veg fyrir hópa- myndun verður markið haft opið í til- tekinn tíma og verður flögutíminn látinn gilda. Þetta á þó ekki við um vinningstímann en þá ræður skot- tíminn og fljótustu hlaupararnir verða að mæta í upphafi rástíma. Hlaupið hefur notið mikilla vin- sælda gegnum árin enda er það mátulega fjölmennt og reynt er að hafa alla umgjörð þess afslappaða og skemmtilega. Til dæmis er hefð fyrir því að bjóða hlaupurum upp á nýbak- aðar vöfflur þegar þeir koma í mark ásamt öðru góðgæti. Því miður verð- ur að sleppa því í þetta sinn vegna óvenjulegra aðstæðna,“ segir Pétur. Flagan límd á keppnisnúmerið Skráning í vormaraþonið fer fram á vefsíðunni netskraning.is. Að þessu sinni verður notast við flögu sem límd er aftan á einnota númer sem keppendur bera á treyju sinni. Að sögn Péturs Hauks hefur þetta kerfi reynst vel í Powerade- vetrarhlaupunum í ár. Vormaraþon verður haldið - Hlaupið frá rafstöðinni í Elliðaárdal næsta laugardag - Féll niður í fyrra vegna kórónuveirufaraldursins Pétur Haukur Helgason Morgunblaðið/G.Rúnar Fiðringur Hlaupið verður hálft maraþon og heilt maraþon 24. apríl. Skipholti 29b • S. 551 4422 Skoðið laxdal.is TRAUST Í 80 ÁR Vorið er komið í Laxdal Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Ný buxna- sending frá Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er ljóst að stofustarfsemi lækna er í mótbyr og að nýliðun hefur ekki verið næg. Yfirvöld hafa ekki brugð- ist við því með því að bæta í þessa starfsemi eða auglýsa eftir læknum, og virðast þvert á móti ætla að þrengja að henni og koma sem mestu inn í ríkisrekstur- inn þar sem hlut- irnir kosta meira,“ segir Þór- arinn Guðnason, formaður Lækna- félags Reykjavík- ur. Málefni sér- greinalækna hafa verið í eldlínunni í vikunni. Morgun- blaðið hefur sagt frá áformum Svan- dísar Svavarsdóttur heilbrigðisráð- herra um að breyta reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjón- ustu sjálfstætt starfandi sérgreina- lækna sem starfa án samnings við SÍ. Felur breytingin meðal annars í sér að sjúklingar þeirra lækna sem rukka aukakostnað samkvæmt gjaldskrá muni ekki njóta kostnað- arþátttöku Sjúkratrygginga Íslands. Samningar hafa verið lausir frá 2018. Þórarinn hefur bent á að sá hópur lækna sem starfa sem sérfræðilækn- ar á stofu sé að eldast hratt og stór hluti þeirra muni hætta störfum inn- an fárra ára. Hann telur að það stefni í alvarlegan skort í þeirra hópi. Í nýlegri grein í Læknablaðinu rakti hann að meðalaldur sérfræði- lækna á stofu er um 60 ár. „Það þýðir að 42% þeirra eiga að- eins eftir sex ár eða minna til að ná eftirlaunaaldri. Eftir sex ár verður því tæpur helmingur stofulækna hættur eða við það að hætta vegna aldurs, eða 135 af 320 læknum. Ný- liðunarþörfin er því 20-25 læknar á ári, sem er stór hluti þeirra sem hafa útskrifast á ári úr læknadeild HÍ. Þörfin verður enn meiri ef reiknað er með aukinni þjónustuþörf vegna öldrunar þjóðarinnar, fólksfjölgunar og vaxandi kröfu um meiri þjónustu. Þá tekur 12-16 ár að mennta sér- fræðilækni að afloknu stúdents- prófi,“ sagði í greininni. „Ég hef verulegar áhyggjur af stöðunni og þessar tölur um aldur- hnigna lækna staðfesta að það er ekki að ástæðulausu. Starfsemi stofulækna hefur minnkað um 2-4% undanfarin misseri. Þjóðsögur um að starfsemin sé að aukast mikið, sem oft er haldið fram, eru þannig rang- ar,“ segir Þórarinn í samtali við Morgunblaðið. „Ég hef verulegar áhyggjur af því hvar sjúklingar eiga að fá þjónustu ef læknastöðvar neyðast til að slökkva ljósin og loka hurðinni í síð- asta sinn hvort heldur sem er vegna aldurs og skorts á nýliðun eða út af rekstrarerfiðleikum. Það gæti gerst fyrr en nokkurn grunar. Orrahríðin sem við höfum starfað í síðustu ár hvetur ekki ungt fólk til að flytja heim úr sérnámi og hefja störf á stofu, í því óöryggi, samningsleysi og rekstrarumhverfi sem nú er,“ segir Þórarinn. Hann segir aðspurður að heil- brigðisyfirvöld hafi ekki brugðist við ábendingum þessa efnis en vanda- málið sé þekkt. „Landlæknir hefur staðfest mikinn skort á bæði gigtar- læknum og taugalæknum á stofu með skýrslum nýverið. Nýrnalækn- ar á stofu eru aðeins þrír, blóðlækn- ar þrír, öldrunarlæknar tveir og krabbameinslæknirinn er bara einn eftir á stofu. Þetta eru sérgreinar sem eru nánast í útrýmingarhættu. Geðlæknum á stofu hefur fækkað talsvert síðustu tvö ár og þar er mjög erfitt að komast að. Það er líka skort- ur á og erfitt að fá tíma hjá hjarta- læknum, lungnalæknum, innkirtla- læknum og bæklunarlæknum á stofu til að nefna nokkur dæmi.“ Þórarinn kveðst telja að heilbrigð- iskerfið muni ekki ráða við ástandið á næstu árum ef ekki verði viðsnún- ingur varðandi nýliðun meðal stofu- lækna enda sinni sá þriðjungur stofulækna sem brátt hætta störfum um 230 þúsund komum sjúklinga ár hvert. Það sé svipað og allar komur á göngudeild Landspítala á ári. Hann segir að búa verði betri umgjörð um starf þessara lækna til að laða fleiri lækna heim til starfa í sérfræði- læknaþjónustunni. „Ég reikna með að almenningur hafi orðið var við þetta á eigin skinni eða hjá ættingjum, að erfitt er að fá tíma hjá mörgum sérfræðilæknum á stofu. Af hverju eru yfirvöld ekki að kanna leiðir til þess að halda að minnsta kosti í horfinu með þessa starfsemi í stað þess að horfa á hana minnka ár frá ári meðan biðlistar lengjast?“ Óttast skort á sérfræðilæknum - Formaður Læknafélags Reykjavíkur segir að hópur lækna sem starfa sem sérfræðilæknar á stofu sé að eldast hratt - Mikil nýliðunarþörf vegna öldrunar þjóðarinnar - Bæta þarf starfsumhverfi lækna Morgunblaðið/Ásdís Skurðaðgerð Mikil þörf er á nýliðun hjá sérfræðilæknum á stofum. Þórarinn Guðnason Vantar þig pípara? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.