Morgunblaðið - 17.04.2021, Page 18

Morgunblaðið - 17.04.2021, Page 18
ÚR BÆJARLÍFINU Reynir Sveinsson Sandgerði Það hefur ekki farið framhjá neinum á Suðurnesjum að eldgos er hafið. Við sem búum á Ameríkuflekanum erum talin vera örugg, hvað sem á dynur. Við sjáum oft fal- legan rauðan bjarma á himni en það veit enginn hvað þetta stendur lengi yfir. Sennilega á þetta eftir að auka komu ferðamanna um Reykjanesskagann í sumar. Aðalskipulag Suðurnesjabæjar er nú í vinnslu fyrir hið sameinaða bæjarfélag. Nýlega var haldinn kynningarfundur um væntanlegt skipulag en Covid-19 sá til þess að fundinum var streymt. Fyrirspurnir voru á rafrænu formi en þetta var fyrsti kynningarfundur um aðalskipulagið. Skerjahverfi, 1. áfangi að nýju íbúðahverfi, mun rísa á næstunni. Hverfið er ofan við íþróttasvæði við Stafnes- veg en áætlaður kostnaður er um 130 milljónir króna. Búið er að leggja vatns- og skolplagnir að svæðinu en áætlað er að byggðar verði um 400 íbúðir í hinu nýja hverfi þegar það verður fullbyggt. Kraftur er í húsbyggingum þessa dagana í Suður- nesjabæ. Alls eru 60 íbúðir í byggingu og nú er svo kom- ið að fáar lóðir eru lausar í Sandgerði. Hins vegar eru þó- nokkrar lóðir lausar í Garði. Þá má nefna að húsum hefur fjölgað í Nátthaga, sem er við Golfvöllinn að Kirkjubóli, mitt á milli Sandgerðis og Garðs. Sandgerðisviti, sem er mjög sjáanlegt kennileiti í Sandgerði, er í dag ekki mikið augnayndi, enda er búið að hengja allskonar búnað frá ýmsum sjónvarps- og út- varpsstöðvum utan á vitann. Alls eru nú um 10 endur- varpar og loftnet á öllum hliðum hans. Mörgum bæjar- búum finnst þetta ekki fallegt og svo er kominn tími á að mála vitann. Hólmfríður Árnadóttir, sem hefur verið skólastjóri Sandgerðisskóla í um tvö ár, tók þátt í prófkjöri Vinstri grænna í Suðurkjördæmi nýverið. Hún stefndi á 1. sætið og vann það glæsilega, enda er hún skelegg kona. Vænt- anlega er hún fyrsti þingmaður í langan tíma sem kemur frá Sandgerði. Ástæða er til að óska Hólmfríði til ham- ingju með sigurinn. Göngu- og hjólastígur, sem lagður var á milli Sandgerðis og Garðs, hefur slegið í gegn. Stígurinn er mikið notaður, enda malbikaður og vel upplýstur. Nú þarf bara að vinna að því að leggja samsvarandi stíg til Keflavíkur. Svo eru sumir sem vilja samskonar stíg frá Keflavík og út í Garð. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Sandgerði Rauður bjarminn frá eldgosinu í Geldingadölum sést oft frá Sandgerði og Hvalsneskirkju. Rauður bjarmi frá gosinu 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021 Tæplega 200 milljóna króna tap varð af rekstri samstæðu Hörpu tónlist- ar- og ráðstefnuhúss ohf. á árinu 2020. Í tilkynningu segir að tapið sé rakið til víðtækra áhrifa sem kór- ónuveirufaraldurinn hafði á rekst- urinn, m.a. með langvarandi lok- unum og tekjufalli. Tekjur Hörpu lækkuðu um 56% milli ára og námu 537 milljónum króna samanborið við tæpar 1.210 milljónir árið 2019. Rekstrarframlag frá eigendum; íslenska ríkinu og Reykjavíkurborg, nam í upphafi árs 450 milljónum króna auk viðbótar- framlags vegna áðurnefndra áhrifa sem var 278 milljónir, samkvæmt til- kynningunni. Alls námu því tekjur samstæðunnar 1.245 milljónum króna sem er 414,6 milljóna króna lækkun frá fyrra ári. „Gripið var til afgerandi aðgerða til að mæta þess- ari stöðu og mikill árangur hefur náðst varðandi lækkun á rekstrar- kostnaði sem lækkaði um tæp 30% eða um 473 milljónir króna. Eigið fé nam 10.975,9 milljónum í árslok 2020,“ segir í tilkynningunni. Stóðu sig vel Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, for- maður stjórnar Hörpu, segir í til- kynningunni að niðurstaðan beri þess glöggt merki að stjórnendur og starfsmenn Hörpu hafi staðið sig vel í krefjandi aðstæðum síðustu miss- eri þegar algjör forsendubrestur varð í rekstrinum. „Beita þurfti öll- um leiðum til að lækka kostnað sam- hliða því sem ný tækni og nýjar áherslur voru innleiddar í viðburða- haldi. Það hefur sömuleiðis verið ánægjulegt að finna fyrir miklum stuðningi og skilningi eigenda húss- ins á þessum erfiðu tímum,“ segir Ingibjörg. Harpa tapaði 200 milljónum í fyrra - Rakið til áhrifa veirufaraldursins Morgunblaðið/Hari Starf Haldnir voru 512 viðburðir í Hörpu 2020 en 1.303 árið 2019. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skaga- fjarðar lýsir vonbrigðum sínum með seinagang Umhverfisstofnunar vegna bensínleka úr birgðageymi N1 á Hofsósi sem uppgötvaðist fyrir nærri tveimur árum og skort á skýr- um svörum og upplýsingum um framgang málsins innan stofnunar- innar. Kemur þetta fram í bókun byggðarráðs eftir umfjöllun um mál- ið en sveitarfélagið hefur verið að þrýsta á um aðgerðir opinberra aðila undanfarna mánuði. Sveitarfélagið fékk Eflu verk- fræðistofu til að rannsaka útbreiðslu mengunarinnar. Grafnar voru nokkrar holur og sýni tekin af jarð- vegi og grunnvatni, bæði í janúar og mars. Barst undir íbúðarhús Rannsakendur telja að gera megi ráð fyrir því að bensínið hafi lekið niður í malarlagið og borist þaðan með grunnvatni í átt til sjávar. Hluti af því hefur runnið undir húsið Suðurbraut 9 og þaðan yfir Suður- braut og í átt að húsi við Suðurbraut 6. Það hafi runnið í átt að sjónum og jafnvel fram af barðinu. Bent er á að stór lagnaskurður sé í Skólagötu og út í sjó og gæti hann hafa virkað sem leiðari fyrir grunnvatnið og bensínið og beint því í átt að sjónum. Annar hluti af bensíninu hefur runnið beint yfir Suðurbraut í átt að Suðurbraut 8 og 10. Íbúar í nágrenni bensínstöðvar- innar urðu varir við bensínlykt í íbúðarhúsum sínum. Lyktin var svo megn í einu húsanna að heilbrigðis- eftirlitið taldi það óíbúðarhæft um tíma og voru íbúarnir ekki fluttir til baka í síðasta mánuði. Veitingastað og verslun KS var lokað tímabundið af sömu ástæðum. Á vegum N1 var unnið að hreinsun á svæðinu síðastliðið sumar og þá voru fjarlægðir 200 rúmmetrar af jarðvegi. helgi@mbl.is Gagnrýna seina- gang Umhverf- isstofnunar - Skagfirðingar þrýsta á um aðgerðir vegna bensínlekans á Hofsósi Morgunblaðið/Björn Jóhann Hofsós Jarðvegur var fjarlægður þar sem bensíntankurinn stóð á bensín- stöð N1, við hlið veitingastaðar og verslunar KS. TRAUST OG FAGLEG ÞJÓNUSTA - ALLA LEIÐ Rafgeymar í húsbíla og hjólhýsi fyrir ferðalagið í sumar Startaðu ferðasumarið með Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.