Morgunblaðið - 17.04.2021, Side 24

Morgunblaðið - 17.04.2021, Side 24
S umum þykir „pólitísk rétthugsun“ aðgangshörð við daglegt tungu- tak; að nú sé bannað að tala eins og formæðrum okkar og -feðrum hafi verið tamt frá því að karlarnir héldu til veiða og konurnar sáu um börnin heima; að við (þ.e. miðaldra hvítir gagnkynhneigðir karlar á Vesturlöndum) megum ekki lengur nefna villutrúarmenn, vitlausraspítala, kellingatussur, múlatta, negra og kynvillinga; að ekki megi lengur nota niðr- andi orð eða tala af óvirðingu um konur og fólk af ólíkum uppruna sem hefur aðrar hugmyndir um trúmál, kyn- ferði og tilkall til frelsis og réttlætis en „við“. Að ekki sé minnst á þá frekju að heimta að talað sé um öll í staðinn fyrir alla (karla) – og að fólk megi ráða kynvitund sinni sjálft. Þessa uppsetningu á um- ræðunni má rekja til manna sem reyndu að klekkja á frjálslyndisöflum á Vestur- löndum með því að líkja þeim við réttlínuhugsun í anda Hitlers, Stalíns og Maós. Þannig var viðleitni til að láta vestrænt frjáls- lyndi, lýðræði og umburð- arlyndi koma fram í orðfæri okkar ómaklega tengd við kröfu stjórnvalda í alræðisríkjum um að láta alla þegna sína ganga í takt – að viðlagðri dauðarefsingu! Að sjálfsögðu ganga alltaf einhver fram af offorsi með hugmyndir sínar, jafnvel með hugmyndir um frjálslyndi, víðsýni og umburðarlyndi, og gera kröfu um algjöra undirgefni við þær. Slík einsýni má ekki draga athygli frá nauðsyn þess að halda áfram að hlúa að frelsi og lýðræði á Vesturlöndum með orðfærinu og því hvernig við tölum um fólk í fortíð og samtíð. Slík um- breyting tungutaksins ætti að vera fagnaðarefni, hvort sem við höllumst til vinstri eða hægri í pólitík – nema kannski fyrir þau sem eru alveg á hlið- inni öðruhvorumegin. Hörmulegar undantekningar eins og hatursorðræða nýfráfarins Bandaríkjaforseta ættu að vera ævarandi áminning um að láta tungutak í hans anda aldrei komast aftur upp á yfirborð samfélagsumræð- unnar. Algengt er að finna fyrir óþoli þegar framfarirnar láta bíða eftir sér. Þá getur hjálpað að horfa um öxl og glugga í vinsæla bók frá síðustu öld: Til Heklu eftir Svíann Albert Engström sem kom hingað til lands sumarið 1911 og skrifaði blöndu af ferða- og ævisögu um ævintýrið. Nútímafólki verður starsýnt á hvernig hann talar um konur og hæðist að því að sænsk „ritkvendi“ skuli hafa steypt sér yfir Ibsen í veislu sem Sænska rithöfunda- félagið hélt honum til heiðurs, og viljað tala við hann! Og þegar Engström reynir að skilja Íslendinga vísar hann til uppruna þeirra; að forfeðurnir hafi haft með sér „búpening, þræla, konur og önnur búsáhöld“ og síðan hafi orðið nokkur blóðblöndun vegna þess að „konur höfðingja vildu gjarn- an hafa samneyti við þræla manna sinna – eða við þræla yfirleitt.“ Þegar á móti blæs er hughreystandi að lesa svona texta og finna að okkur hefur þrátt fyrir allt munað nokkuð á leið í því hvernig við tölum hvert um annað. Okkur hefur munað nokkuð á leið Tungutak Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is 24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021 Bjarkardalur 33, 260 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Mjög rúmgóð og glæsileg 4ra herbergja íbúð á 3. hæð ásamt bílskúr í nýlegu fjölbýli í Dalshverfi í Reykjanesbæ. Staðsett í göngufæri við nýjan grunn- leikskóla. Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Verð 43.000.000 142,7 m2 S tjórnmálaflokkarnir sem urðu til snemma á síðustu öld endurspegluðu það samfélag sem þá var. Samfélagið hefur tekið breytingum og flokkarnir líka en það þýðir ekki að þeir endurspegli samfélagið jafn vel nú og þá. Þvert á móti. Þetta á ekki sízt við um hina hefðbundnu vinstriflokka, VG og Samfylkingu. Þess sjást engin merki að þeir reyni að undirstrika fyrri tengsl við verkalýðshreyfinguna. Samfylkingin sérstaklega virðist sjá um hagsmunagæzlu fyrir há- skólaborgara og hefur í leit að frambjóðendum engan áhuga á verkalýðshreyfingunni. Það eru einna helzt Flokkur fólksins og Sósíalista- flokkurinn sem leggja áherzlu á málefni fyrrverandi skjólstæðinga Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. Sjálfstæðisflokkurinn var reyndar orðinn annar öfl- ugasti launþegaflokkur landsins fyrir 60 árum en hef- ur misst áhugann á þeim kjósendahópi án þess að nokkrar skýringar hafi fengizt á því. Á sama tíma hafa umsvif hagsmunavarða aukizt mjög og þau ná líka til stjórnmálaflokkanna. Þeir vinna nú markvisst innan sumra flokkanna fyrir umbjóðendur sína en sérstaklega þó innan Sjálfstæð- isflokksins. Annars vegar gagnvart ráðamönnum flokksins og hins vegar að einhverju leyti innan flokksins í einstökum hópum þar. Kannski er þessi hagsmunavarzla skýringin á þeim breyttu áherzlum innan Sjálfstæðisflokksins sem nefndar voru hér að framan. Það er líklegt til árang- urs þegar heilt hús við Borgartún puðar á hverjum degi. Einn eftirminnilegasti fundur sem greinarhöfundur sat á Viðreisnarárunum var þegar Bjarni heitinn Benediktsson, þá forsætisráðherra, skammaði kaup- menn fyrir kröfur þeirra þegar almenningur var að taka á sig byrðar. Síðan hefur slík ræða ekki verið flutt en það skort- ir ekki tilefni. Hagsmunaverðir eru kallaðir „lobbíistar“ á ensku. Það er orðin atvinnugrein sem hefur yfir miklum fjármunum að ráða beggja vegna Atlantshafs. Það getur haft þau áhrif innan stjórnmálaflokks að al- mannahagsmunir gleymist en hagsmunir þröngra hópa ráði ferð. „Lobbíistarnir“ ráða hins vegar ekki yfir atkvæðum kjósenda. Getur verið að það hafi gleymst. Hagsmunaverðir hafa hvergi heilbrigð áhrif á stjórnmálin en í lýðræðisþjóðfélagi hafa bæði ein- staklingar og hópar eða félagasamtök fullan rétt á að berjast fyrir sínum hagsmunum. Hins vegar er það umhugsunarefni að síðustu ára- tugina fyrir faraldurinn hafði dregið mjög úr félags- starfi innan flokka. Það þýddi að minna fór fyrir virkum flokksmönnum en ella og þar með aðhaldi sem þeir veittu kjörnum fulltrúum. Heildarmyndin er þá sú að í starfi flokkanna hefur minna gætt almennra flokksmanna en þeim mun meira hagsmunavarðanna. Sem þýðir að lýðræðið hefur verið á undanhaldi. Það er sennileg skýring á mörgu sem hér hefur gerzt síðustu áratugi þar sem almannahagsmunir hafa verið vanræktir en hlúð að sérhagsmunum. Á sama tíma og krafan hefur verið sú að lýðræði væri aukið og beint lýðræði kæmi til sögunnar. Sumir halda því fram að í sumum flokkanna sé nánast ekkert bakland. Þeir séu ekki annað en nöfnin og þingmennirnir. Sé það rétt er það mikill veikleiki. Á bak við flokk verður að vera pólitísk hreyfing þar sem tekizt er á um menn og málefni. Það er því ekki út í hött að spurt sé á hvaða leið flokkarnir séu. Í raun og veru má segja að þessar lýsingar eigi við þá alla. En – það er þörf á opnum umræðum um þessi vandamál flokkanna. Ef þetta er rétt lýsing á þeim þarf að hrista upp í dauðu flokkskerfi. Það er athyglisvert, að það er sáralítið um það að efnt sé til opinna funda innan flokkanna um álitamál eða deilumál. Það er að sjálfsögðu ekki átt við frá upphafi faraldursins, þegar slík fundahöld hafa verið bönnuð. En reynslan af fjarfundum er góð og þá aðferð hefði verið hægt að nota mun meir en gert hefur verið. Og þá vaknar sú spurning hvort það henti forystu- mönnum flokkanna vel að geta borið faraldurinn fyrir sig sem skýringu á því að sjálfsagðar umræður fari ekki fram. Í stuttu máli er nokkuð ljóst að stjórnmálaflokk- arnir eru ekki að sinna því hlutverki sem snýr að þeim, sem er að standa fyrir umræðum innan sinna vébanda, sem eru þáttur í því að lýðræðið virki. Til viðbótar er svo einn þáttur í starfi hagsmuna- varðanna sem flækir þessa mynd. Það á við þegar flokkar eða forystumenn þeirra ráða þá til sín, í eigin þágu. Hver er þá hvað og hver á hvað? Áður tók fólk höndum saman sem var sammála um einhver mál eða einstaklinga. Nú snýst þetta um að kaupa þjónustu og hver er þá sannfæringin á bak við? Í prófkjörum í vor og sumar eiga þessi álitamál örugglega eftir að koma upp. Stjórnmálaflokkar skipta miklu máli í lýðræðislegu samfélagi. Og það er mikilvægt að þeir gæti að sér þegar kemur að vinnubrögðum. Þar kemur ekkert í staðinn fyrir hinn virka flokksmann. Það hættuleg- asta sem kemur fyrir þingmenn eða ráðherra er að vanrækja tengslin við hina virku flokksmenn. Stundum eru hinir kjörnu fulltrúar ótrúlega fljótir að gleyma. Og þá getur það gerzt að hinir gleymdu minni á sig með óþyrmilegum hætti. Á hvaða leið eru flokkarnir? Slík ræða hefur aldrei síðan verið flutt. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Einn virtasti fræðimaður Íslend-inga á alþjóðavettvangi, dr. Þráinn Eggertsson prófessor, er átt- ræður á þessu ári. Tvær bækur hans á ensku um stofnanahagfræði eru lesnar og ræddar í háskólum um all- an heim. Ekki er síður um það vert, að Þráinn hefur í nokkrum snjöllum ritgerðum varpað ljósi hagfræðinnar á sögu Íslands. Ein þeirra er um ítöl- una og birtist í International Review of Law and Economics árið 1992. Þar minnir Þráinn á samnýtingar- bölið (tragedy of the commons). Ef margir nýta saman einhverja auð- lind, þá er hætt við því, að hún verði ofnýtt, því að ávinningur af viðbót- arnýtingu rennur óskiptur til nýt- andans, en kostnaðurinn dreifist á alla. Eitt dæmi um þetta er beitar- land í íslenskum afréttum að fornu. Hver sveit nýtti saman slíkt beit- arland, en þá gátu einstakir bændur freistast til að reka of margt fé frá sér á fjall. Hrepparnir íslensku mynduðust ekki síst til að hafa stjórn á beitinni. Hver jörð fékk ítölu, eins konar kvóta, tölu þess fjár, sem reka mátti frá henni á fjall, og var heildartalan í hverri afrétt miðuð við, að eftir sumarið sneri féð aftur í eins góðum holdum og kostur væri frekast á. Hliðstæðan við núverandi kvótakerfi í sjávarútvegi leynir sér ekki, enda er vandinn sama eðlis. Önnur ritgerð Þráins birtist í Journal of Economic Behavior and Organization árið 1996. Hún er um þá ráðgátu, hvers vegna Íslendingar sultu öldum saman heilu og hálfu hungri, þótt hér væri gnótt fiskjar. Þráinn telur skýringuna vera, að konungur og fámenn stórbændastétt hafi í sameiningu þrengt að sjávar- útvegi, sem var að öðru óbreyttu arðbærasti atvinnuvegurinn. Kon- ungur óttaðist, að ella gengi landið undan honum, eins og lá við að gerð- ist á „ensku öldinni“ svokölluðu, fimmtándu öld. Hann kaus frekar litlar skatttekjur en engar. Stór- bændurnir vildu hins vegar ekki missa vinnuaflið að sjávarsíðunni. Útlendingum var því bönnuð vet- urseta, og landsmenn urðu að vera vistaðir á einhverju hinna fimm þús- und býla landsins og gátu aðeins stundað fiskveiðar í hjáverkum. Með konunglegum tilskipunum var verð á fiski fært langt niður frá markaðs- verði, en verð á landbúnaðarafurð- um að sama skapi fært upp. Afleið- ingin var, að Ísland festist í fátæktar gildru, sem það losnaði ekki úr, fyrr en yfirvöld í Kaupmannahöfn höfðu skilið kenningu hagfræðinnar um kosti alþjóðlegrar verkaskiptingar og viðskipta. Þráinn Eggertsson er einn fremsti fulltrúi þeirrar rann- sóknarhefðar á Íslandi. .Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Þráinn Eggertsson Orðræða „…okkur hefur þrátt fyrir allt munað nokkuð á leið í því hvernig við tölum hvert um annað.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.