Morgunblaðið - 17.04.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 17.04.2021, Qupperneq 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021 Atakan Basdar – Birkir Hallmundarson Hvítur er skiptamun og peði yfir og sannarlega góð ráð dýr hjá unga manninum. Hann lék nú 37. … Kh5. Hvítur sá nú leið til að komast í „gjörunnið“ hróksendatafl og lék: 38. Hxg7?? Bxg7 39. Hxg7, en þá kom skyndilega 39. … Hxf2+! og eftir 40. Kxf2 var svartur patt. Jafn- tefli í höfn. Afturvirkar skákþrautir Ég misskildi dæmið sem þú birtir um daginn. Eitthvað á þessa leið hófst samtal sem ég átti við kunn- ingja minn um daginn. Hann hafði talið það „afturvirka skákþraut“ sem ég birti í blaðinu. Síðast spunnust umræður um þrautir þar sem verk- efnið er að rekja leikina aftur á bak. Ekki kom kunninginn alveg að tóm- um kofunum hjá greinarhöfundi sem endur fyrir löngu eignaðist bókina „The chess mysteries of Sherlock Holmes“. Til upphitunar fyrir les- endur skellti höfundurinn, Raymond Smullyan rökfræðingur, taó-isti, heimspekingur og stærðfræðingur, eftirfarandi dæmi á forsíðu: Sherlock Holmes kemur á vett- vang skákviðburðar ásamt félaga sínum Watson, sér þar stöðu og tekst að rekja atburðarásina aftur- virkt: Hvítur á leik. Hver var síðasti leikur svarts – og hver var leikur hvíts þar á und- an? Þessi er nú frekar létt og skellum okkar í annað dæmi aðeins snúnara: Svartur á leik. Er löglegt að hrókera? Gefið er að hvorki hvítur né svart- ur hefur drepið annan taflmann í síð- asta leik. Lausnir í næsta pistli. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/SÍ Íslandsmeistarar Skáksveit Vatnsendaskóla sigraði á Íslandsmóti 1.-7. bekkjar grunnskóla. Sigursveitina skipuðu, f.v.: Arnar Logi Kjartansson, Tómas Möller, Mikhael Bjarki Heiðarsson, Guðmundur Sveinbjörnsson og Jóhann Helgi Hreinsson. Aftari röð, f.v.: Hjörvar Steinn Grétarsson sem afhenti verðlaun og Kristófer Gautason liðsstjóri. Virtist fokið í flest skjól K eppni í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands sem frestað var í byrjun apríl er aftur komin á dagskrá og hefst sumardaginn fyrsta, 22. apríl nk. Davíð Kjartansson getur ekki verið með og tekur Sigurbjörn Björnsson sæti hans. Aðrir kepp- endur sem fyrr: Alexander Oliver Mai, Björn Þorfinnsson, Bragi Þor- finnsson, Guðmundur Kjartansson, Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi Áss Grétarsson, Hjörvar Steinn Grétarsson, Jóhann Hjartarson og Vignir Vatnar Stefánsson. Komst fram hjá tveim hindrunum Sú breyting sem varð á högum landsmanna vegna hertra sóttvarna- ráðstafana leiddi til þess að skák- iðkun færðist aftur yfir á netið og síðustu daga hafa farið fram nokkur athyglisverð skákmót á þeim vett- vangi. Lenka Ptacnikova stóð fyrir mótum fyrir börn og unglinga bæði hér og í Tékklandi. Evrópska skák- sambandið, ECU, hefur haldið nokk- ur mót og í gær fór t.d. fram Evrópu- mót þingamanna – einstaklings- og sveitakeppni. Brynjar Níelsson, Páll Magnússon og Karl Gauti Hjaltason settust við taflið í gær og tefldu eftir tímamörkunum 10 2. Um síðustu helgi tefldu nokkur ungmenni í móti á vegum ECU á stigabilinu 1000-1400 elo-stig. Kepp- endur skiptu hundruðum og teflt var um keppnisrétt í enn stigahærri flokki. Til þess að komast svo langt þurftu keppendur að komast í gegn- um tvö mót. Birkir Hallmundarson nýorðinn 8 ára og Arnar Logi Kjart- ansson 11 ára komust báðir í gegn- um fyrri hindrunina og Birkir náði svo alla leið seinni keppnisdaginn, varð í 79. sæti af 250 keppendum. Birkir sem var skráður með 1050 elo-stig tefldi alls 17 skákir, og tekur um þessa helgi þátt í stigaflokknum 1400-1700 elo. Í lokaumferðinni mátti hann alls ekki tapa en fokið virtist í flest skjól þegar þessi staða kom upp: Stigamót ECU á netinu 2021: Björn Hallgrímsson, forstjóri og stjórnarformaður H. Benedikts- sonar, hefði orðið 100 ára í dag, 17. apríl. Hann lést 20. september árið 2005, 84 ára að aldri. Björn fæddist í Thorvaldsens- stræti 2 við Austurvöll. Það hús lét Páll Melsted sagnfræðingur byggja árið 1878 undir Kvennaskólann, sem hann og kona hans, Þóra Mel- sted, stofnuðu fjórum árum fyrr. Eftir að Kvennaskólinn flutti suður á Fríkirkjuveg eignuðust foreldrar Björns húsið, Hallgrímur Bene- diktsson, stórkaupmaður, alþingis- maður og bæjarfulltrúi í Reykjavík, og kona hans, Áslaug Zoëga hús- freyja. Í þessu sögufræga húsi fæddust einnig systkini Björns; Ingileif stjórnarformaður, f. 1919, d. 2007, og Geir, forsætisráðherra, borgar- stjóri og seðlabankastjóri, f. 1925, d. 1990. Sjálfstæðisflokkurinn var síðan með starfsemi sína í húsinu um skeið. Þar hafa nokkrar kynslóðir Reykvíkinga dansað og húsið hefur gengið undir ýmsum heitum, svo sem Sjálfstæðishúsið, Sigtún og nú síðast NASA. Hallgrímur var af fjölmennustu ráðherraætt landsins, Reykja- hlíðarætt, en Áslaug, kona hans, var dóttir Geirs Zoëga rektors og Bryndísar Sigurðardóttur frá Flat- ey, af ætt Boga Benediktssonar, fræðimanns á Staðarfelli. Lengi stjórnarformaður Björn lauk prófi frá Verzlunar- skóla Íslands 1939 og var við fram- haldsnám og störf í Bandaríkjunum 1942-46. Hann var fulltrúi hjá H. Benediktssyni hf. 1946-52, forstjóri Ræsis hf. 1952-54 og forstjóri H. Benediktssonar hf. lengst af frá 1954. Auk þess var hann stjórnar- formaður fyrirtækisins um árabil og sat í stjórn ýmissa annarra fyrir- tækja sem stórfjölskylda hans hafði átt hluta í eða komið að, s.s. Nóa- Síríusar hf., Hreins hf., í stjórn Steypustöðvarinnar hf., Skeljungs og Ræsis hf. Þá átti hann sæti í stjórn Félags íslenskra stórkaup- manna og Verslunarráðs Íslands. Í umfjöllun í Morgunblaðinu 29. nóvember 1991, á 80 ára afmæli H. Benediktssonar hf., sagði Björn af því tilefni: „Það hefur verið gæfa okkar fyrirtækis frá upphafi, að til að um Björn Hallgrímsson í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins 2. október 2005. Þar var einnig skrifað: „Eitt sinn í árdaga hlutabréfa- væðingar sátu tveir ritstjórar Morgunblaðsins á fundi með Birni Hallgrímssyni á skrifstofu hans við Suðurlandsbraut, þar sem H. Bene- diktsson hafði byggt stórhýsi á þeirra tíma mælikvarða ásamt Skeljungi. Ritstjórarnir höfðu orð á þessu við Björn, sem leit upp, brosti og rétti viðmælendum sínum eitt blað. Þeim varð ljóst, þegar þeir skoðuðu blaðið að á móti þeim sat maður, sem hafði haldið svo vel utan um eignir fjölskyldu sinnar, að þar var um að ræða stórveldi í ís- lenzku viðskiptalífi, sem lítið fór fyrir.“ Eiginkona Björns var Emilía Sjöfn Kristinsdóttir húsmóðir, f. 12. ágúst 1927, d. 26. október 2003, dóttir Kristins, kaupmanns í Geysi. Björn og Sjöfn eignuðust fjögur börn. Þau eru Áslaug, gift Gunnari Sch. Thorsteinssyni og eiga þau þrjú börn, Kristinn, d. 2015, kvænt- ur Sólveigu Pétursdóttur og eign- uðust þau þrjú börn, Emilía Björg, sem gift var Sigfúsi Haraldssyni, og eiga þau þrjú börn, og Sjöfn, gift Sigurði Sigfússyni, og eiga þau fjögur börn. Þeir feðgar, Björn og Kristinn, fv. forstjóri Skeljungs, áttu sama afmælisdag og hefði Kristinn því orðið 71 árs í dag. þess hafa ráðist góðir og hæfir starfsmenn og gott samstarf og vin- átta verið á meðal þeirra.“ Björn var mikill öndvegismaður, samviskusamur, heiðarlegur, glað- sinna og vingjarnlegur í viðmóti. Þessa eiginleika áttu þau systkinin öll sameiginlega; Ingileif, Geir og Björn. Björn var einn af bakhjörlum Morgunblaðsins í áratugi en fjöl- skylda hans var í hópi aðaleigenda blaðsins. „Björn hafði sig ekki mikið í frammi í því hlutverki, sinnti störf- um sínum af þeirri hógværð, sem einkennir þetta fólk en það mátti finna nærveru hans,“ var m.a. skrif- Merkir Íslendingar 100 ár í dag frá fæðingu Björns Hallgrímssonar Feðgar Kristinn og Björn Hallgrímsson á góðri stund á Þingvöllum, en þeir áttu sama afmælisdag, 17. apríl. Kristinn hefði orðið 71 árs í dag. Tímamót Björn Hallgrímsson hefði orðið 100 ára í dag. Ljósmyndir/Úr einkasafni Stórfjölskyldan Í efstu röð: Hallgrímur Gunnarsson, Gunnar Pálsson, Gunnar Snorri Gunnarsson. Páll Gunn- arsson, Kristinn Björnsson, Björn Hallgrímsson; Hallgrímur Geirsson, Finnur Geirsson, Geir Hallgrímsson og Kristín Geirsdóttir. Miðröð situr í stólum: Ingileif Bryndís Hallgrímsdóttir, Áslaug Benediktsson, Áslaug Björnsdóttir, Sjöfn Kristinsdóttir og Erna Finnsdóttir. Sitjandi á gólfinu frá vinstri : Áslaug Gunnarsdóttir, Emilía B. Björnsdóttir, Sjöfn Björnsdóttir og Áslaug Geirsdóttir. Myndin er tekin árið 1965.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.