Morgunblaðið - 17.04.2021, Side 27

Morgunblaðið - 17.04.2021, Side 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021 Með sannfæring- arkrafti skrifar vinur minn Guðni Ágústs- son í Morgunblaðið 15. apríl í tilefni hug- leiðinga, sem ég setti fram á dögunum, um það sem líkt væri með miðjumoði Evrópu- sambandsins og sam- vinnuhugsjóninni. Guðni telur að sam- líking þessi beri vott um ESB-trú, trúarhita og ofsatrú. Þessum nafn- giftum er ugglaust ætlað að draga úr gildi hugleiðinga minna. Ég læt það liggja milli hluta en gengst við því að skrifa ekki annað en það sem ég hef trú á að sé gagnlegt fyrir þjóðina. Fyrsta röksemd Fyrsta röksemd Guðna er byggð á því að samlíkingin standist ekki skoðun vegna þess að SÍS og kaup- félögin hafi orðið að öfugsnúnum risum, sem hafi riðlast og fallið um sjálfa sig. Ég ætla ekki að andmæla því og vel má vera að að því komi að Evrópusambandið leysist upp þó að það blasi ekki við í dag. En spurningin, sem Guðni þarf að svara, er þessi: Féll samvinnu- hugsjónin með SÍS? Ég var ekki að segja annað en að Evrópusambandið væri miðju- bandalag, sem byggði á málamiðl- unum milli markaðshyggju og fé- lagshyggju. Ég hef þá trú að það sé skyn- samleg hófsöm pólitík og að sam- vinna þjóða á þeim grundvelli hafi reynst farsæl. Önnur röksemd Önnur röksemd Guðna gegn al- þjóðlegu miðjusamstarfi er sú ákvörðun Breta að ganga úr Evr- ópusambandinu. Það er kórrétt hjá Guðna að meginröksemdin fyrir út- göngu var sú að Bretland ætti að nýta afl sitt sem fimmta stærsta efnahagsveldi í heimi til að hafa betur í tvíhliða samningum við minni þjóðir. Við finnum fyrir því. Bretland er ekki jafn opið fyrir Íslendinga og áður. Breskir sjómenn og bændur eiga nú erfiðara um vik að selja vörur á Evrópumarkað vegna auk- ins skrifræðis. Þó að Guðni líti á það sem aukið frelsi sér maður á ummælum bænda og sjómanna að þeir upp- lifa þessa breytingu á annan veg. Bretar eiga sameig- inlega fiskistofna í Norðursjó með nokkr- um Evrópusambands- þjóðum. Samkvæmt Hafréttarsáttmálanum, sem Ísland á aðild að, verða þeir að semja eftir ákveðnum reglum um skiptingu þeirra. Reglur Evrópusambandsins kveða á um að engin þjóð fær veiði- rétt í lögsögu annarrar nema á grundvelli veiðireynslu. Þar af leið- ir að engin erlend skip kæmu hing- að til veiða við inngöngu í sam- bandið. Þriðja röksemd Þriðja röksemd Guðna er sú full- yrðing að Evrópusambandið sé eitt og EES-samningurinn annað. Innri markaður Evrópusambandsins er kjarninn í starfsemi þess. Sú lög- gjöf, sem ríki með fulla aðild að Evrópusambandinu setja, án þess að við eigum sæti við borðið, spannar nær öll svið í þjóðarbúskap okkar. Við erum þannig hluti af Evrópusambandinu þó að við séum ekki fullir aðilar. Nær öll efnahags- starfsemi okkar byggist á þeirri löggjöf. Frá fyrsta degi hafa verið deilur um það hvort þessi skipan mála stæðist stjórnarskrá. Guðni vill bregðast við því með því að virða þessar sameiginlegu leikreglur að vettugi. Ég vil breyta stjórnar- skránni svo að samstarf af þessu tagi sé heimilt án nokkurra tví- mæla. Fullveldið á ekki bara að tryggja frelsi þingmanna. Þeir eiga að nota fullveldið til þess að tryggja ein- staklingum og fyrirtækjum þeirra athafnafrelsi á jafnréttisgrundvelli á einu stærsta markaðssvæði heimsins. Þarna greinir okkur á. Fjórða röksemd Fjórða röksemd Guðna felst í þeirri fullyrðingu að þjóðin hafi kosið Icesave af sér, ekki einu sinni heldur tvisvar. Þessi deila stóð ekki um skuld Landsbankans heldur ábyrgð ríkissjóðs. Veruleikinn er sá að Bretar og Hollendingar héldu kröfum sínum um ábyrgð ríkissjóðs til streitu eins og engar þjóðaratkvæðagreiðslur hefðu farið fram. Þær kröfur stóðu þar til EFTA-dómstóllinn hafnaði þeim á grundvelli aðildar Íslands að reglum Evrópusambandsins. Það voru reglur Evrópusam- bandsins, sem réðu úrslitum í þessu máli. Ef Bretar hefðu ekki verið bundnir af þeim hefðu þeir getað neitt aflsmunar sem fimmta stærsta efnahagsveldi í heimi. Hefði það verið betra? Það er svo annað mál að á end- anum var öll skuldin greidd með fullum vöxtum og áföllnum kostn- aði. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort Guðni vinur minn hafi aldrei fundið til þjóðlegs stolts yfir því að þrotabúið og nýi ríkisbank- inn hafi staðið við þær skuldbind- ingar sem stofnað var til. Einu sinni var það helsta tákn um full- veldi þjóða. Eftir Þorstein Pálsson Þorsteinn Pálsson » Þeir eiga að nota fullveldið til þess að tryggja einstaklingum og fyrirtækjum þeirra athafnafrelsi á jafnrétt- isgrundvelli á einu stærsta markaðssvæði heimsins. Höfundur er lögfræðingur. ESB-trú, trúarhiti og ofsatrú Í vikunni lagði heil- brigðisráðherra fram frumvarp um að lög- leiða neyslu fíkniefna. Þar undir eru öll hin kunnu ólöglegu fíkni- efni. Samhliða fyrir- ætlunum um lögleið- ingu fíkniefnaneyslu hefur aðgerðin fengið nýtt heiti sem er af- glæpavæðing. Al- vanalegt virðist að beita villandi orðalagi svo auðveldara verði að vinna þeim fylgi og er skemmst að minnast fóstureyðingarlöggjaf- arinnar. Alvarlegur vandi Ef við hugsum til unga fólksins er enginn vafi á að fíkniefnaneysla er alvarlegasti vandinn sem steðjar að þeim hópi. Stjórnlaus fíkn í þessi efni hefur vægast sagt skaðleg áhrif á mjög marga, bæði fíklana en ekki síður þá sem næst þeim standa. Í störfum mínum til áratuga í lögregl- unni varð ég áþreifanlega var við þetta, örvæntinguna, vonleysið og bjargarleysið. Sú barátta var oft á tíðum upp á líf og dauða. Allt of margir falla í þeirri baráttu. Berstrípað frumvarp Frumvarp heilbrigð- isráðherra gengur efn- islega út á að heimila kaup og vörslu fíkniefna, svo lengi sem um neyslu- skammta sé að ræða. Frumvarpið sem slíkt stendur hins vegar ber- strípað, þar sem því fylgja engar hlið- araðgerðir, eins og títt er meðal þeirra þjóða sem hafa farið áþekka leið. Þannig fylgja ekki neinar aðgerðir á sviði heil- brigðis-, forvarnar-, meðferðar- eða löggæslumála. Hér er því á ferð illa undirbúið og vanhugsað frumvarp. Fíkniefnaneytendur fá ekki samhliða bætt meðferðarúrræði, ráðgjöf og mál þeirra fara ekki í neinn sér- stakan farveg til að taka á vanda- málinu sem þessi hópur á við að etja. Engin tilraun er gerð til að skilgreina hvað sé neysluskammtur og það er eft- irlátið ráðherra. Þegar talsmenn frumvarpsins segja að þetta sé leiðin sem aðrir séu að fara, þá er það rangt. Margar aðrar þjóðir, sem hafa farið þessa leið, taka samhliða upp fjölþætt- ar aðgerðir til aðstoðar fíklum. Mikil neysluaukning En hvernig hefur reynsla annarra þjóða verið af því að lögleiða neyslu fíkniefna? Samkvæmt Evrópsku vímu- efnarannsókninni (ESPAD) jókst neysla meðal unglinga í Portúgal á fíkniefnum öðrum en kannabis þrefalt á tuttugu árum frá 1995. Sömu sögu er að segja frá Hollandi, hlutfall ung- menna sem höfðu prófað kannabis þrefaldaðist á rúmlega tíu árum frá 1984, en á Íslandi er hún einmitt þre- falt minni en í Hollandi. Viðamiklir vankantar Þegar svipað frumvarp var lagt fram á síðasta þingi bárust umsagnir frá ýmsum aðilum, þ.á m. Embætti land- læknis, ríkissaksóknara og Lög- reglustjórafélagi Íslands þar sem þeir ýmist lögðust gegn frumvarpinu eða bentu á að þörf væri á að útfæra málið miklu betur. Í samráðsgátt stjórnvalda þegar áform um frumvarpið voru kynnt fyrr á þessu ári barst umsögn frá lög- reglustjóranum á höfuðborgarsvæð- inu þar sem bent er á þá ágalla sem eru á frumvarpinu. Bendir lög- reglustjórinn á að ekki hafi verið gerð verkefnisáætlun og svo virðist sem takmörkuð vinna hafi farið fram til undirbúnings þessu viðamikla verk- efni sem lýtur ekki einungis að breyt- ingum á lögum. Ekki hafi verið farið í umfangsmikla stefnumótunarvinnu eins og gert hefur verið í Noregi og eru tillögur þar í landi langt í frá eins róttækar og hér á landi. Í lokin hvetur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæð- inu til þess að farið verði í heildstæða stefnumótunarvinnu og bendir á norska fordæmið í því sambandi. Sölumenn innan um neytendur Löggæslumenn mega búast við að neytendur veifi efnunum framan í þá og sölumenn munu fela sig innan um neytendur. Þegar svo verður komið hefur lögreglan fá úrræði við að berj- ast gegn dreifingu efnanna. Fjöl- mörg dæmi eru um að haldlagning lögreglu á smærri skömmtun hafi leitt til uppljóstrunar stórra dreif- ingarmála, fjölþættrar brota- starfsemi og peningaþvættis. Varnaðaráhrif Varnaðaráhrif refsinga eru ekki síst að fæla fólk frá því að fremja af- brot. Afleiðing af lögleiðingu neyslu- skammta verður líkast til sú að ekk- ert tiltökumál verður fyrir hinn almenna ungling að sækja fíkniefna- partíin og þegar kæruleysið tekur völdin að prófa efni af léttara tagi. Það er alkunn staðreynd að þeir sem ánetjast fíkniefnum byrja í vægari vímuefnum, en færa sig síðan fljótt yfir í harðari neyslu. Staðreyndin er sú að enginn fagnar þessu frumvarpi meira en sölumenn dauðans. Eflum meðferðarúrræði og forvarnir Að leggja slíkt frumvarp fram nú rétt fyrir kosningar, algjörlega vanbúið að þessu leyti, er einungis auglýsingamennska. Miðað við orð ýmissa þingmanna virðist frum- varpið njóta nokkurs stuðnings í þinginu, sem er í raun ótrúlegt miðað við hversu ófullburða það er. Miðflokkurinn mun bregða skildi fyrir ungmennin í landinu og berjast gegn vanhugsaðri lögleiðingu fíkni- efna. Efla þarf meðferðarúrræði fyr- ir þá sem nú þegar berjast við fíkn, styrkja lögregluna í baráttunni við sölu og dreifingu efnanna og auka forvarnir. Eftir Karl Gauta Hjaltason Karl Gauta Hjaltason » Frumvarpið sem slíkt stendur hins vegar berstrípað, þar sem því fylgja engar hliðaraðgerðir, t.d. ekki bætt meðferðarúrræði eða ráðgjöf. Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi. kgauti@althingi.is Lögleiðing fíkniefnaneyslu Gleðilegt var að sjá tilkynningu Vegagerð- arinnar í vikunni sem bar yfirskriftina „Loftbrú mikil búbót fyrir landsbyggðina“. Þar segir að fjöldi fólks hafi nýtt sér afslátt- arkjör Loftbrúar frá því í september enda sé það mikil búbót fyrir lands- byggðarfólk. Mark- miðið er að bæta að- gengi landsbyggðar að miðlægri þjónustu í höfuðborginni með lægri flugfargjöldum. Loftbrú veitir 40 pró- senta afslátt af heildarfargjaldi fyrir áætlunarleiðir innanlands til og frá höfuðborgarsvæðinu. Hver ein- staklingur nýtur lægri fargjalda fyrir allt að þrjár ferðir árlega fram og til baka eða sex flugleggi. Í áraraðir hef ég talað fyrir að jafna aðgengi landsbyggðar að þjónustu sem byggð hefur verið upp miðlægt í Reykjavík. Fyrst fór ég að tala fyrir þessu opinberlega fyrri hluta árs 2016, þá sem bæjarfulltrúi á Akureyri og í stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyja- fjarðar. Eftir fjöldann allan af ræðum, viðtölum og greinaskrifum veitti ég forstöðu starfshópi skipuðum af Jóni Gunnarssyni samgönguráðherra vorið 2017 um framtíð innanlandsflugs, sem lagði til að fargjöld landsbyggðar nytu allt að 50 prósenta niðurgreiðslu. Þar var byggt á hinni „skosku leið“ um að niðurgreiða flugferðir íbúa dreifðra svæða. Hin áralanga barátta fyrir hinni „skosku leið“ hefur skilað sér svo um munar. Loftbrúin nýtist að- eins einstaklingi með lög- heimili í skilgreindri fjar- lægð frá höfuðborginni. Hún nær ekki til fyr- irtækja, stofnana eða ferðamanna á lands- byggðinni. Gagnvart at- vinnulífi er skýr að- stöðumunur gagnvart höfuðborgarsvæði. Þann aðstöðumun þarf að jafna, en með öðrum að- ferðum en loftbrú. Ég hef margítrekað að það séu skýrustu rökin fyrir betra samgöngukerfi, ekki síst uppbyggingu flugvalla á landsbyggðinni. Stundum er farið niðrandi orðum um störf þingmanna. Við umræður um „skosku leiðina“ fann maður mótvind- inn. Tillögurnar ekki sagðar raunhæf- ar og vart hugsaðar til framtíðar. Það hefur reynst alrangt. Í frétt Vegagerðar segir að ungt fólk 20-24 ára á landsbyggðinni sé hóp- urinn sem nýti þetta tækifæri öðrum fremur. – Til mikils var barist. Einmitt unga fólkið þarf hvað mesta hvatningu til að festa rætur í heimabyggð. Hjá þeim liggur blómleg framtíð lands- byggðar. Eftir Njál Trausta Friðbertsson Njáll Trausti Friðbertsson »Ungt landsbyggð- arfólk nýtir Loft- brúna öðrum fremur. Höfundur er alþingismaður Norð- austurkjördæmis. Loftbrúin er unga fólksins Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að við- komandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569- 1100 frá kl. 8-18. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.