Morgunblaðið - 17.04.2021, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021
✝
Hallveig
Fróðadóttir
fæddist í Reykja-
vík 1. júlí 1963.
Hún lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans 13. apríl
2021. Foreldrar
hennar eru Hólm-
fríður Kofoed-
Hansen og Fróði
Björnsson (d. 27.
febrúar 1995).
Systkini hennar eru Ragna
Fróðadóttir, f. 30. sept. 1964,
Björn Fróðason, f. 13. maí 1966
Íslands en þar starfaði hún í
meira en 25 ár og gegndi m.a.
lykilhlutverki í skýrsluhaldi
hrossaræktar. WorldFengur,
upprunaættbók íslenska hests-
ins, átti hug hennar allan og
átti hún stóran þátt í uppbygg-
ingu gagna og þróun kerfisins.
Í upphafi árs 2020 færðist
tölvudeild Bændasamtaka Ís-
lands yfir til Ráðgjafar-
miðstöðvar landbúnaðarins.
Þrátt fyrir veikindi sín síðustu
tvö árin var Hallveig alltaf til
staðar á hliðarlínunni eins mik-
ið og hún mögulega gat.
Hestamennska heillaði hana
frá unga aldri og stundaði hún
hana af kappi.
Útför Hallveigar fer fram í
Kópavogskirkju í dag, 17. apríl
2021, kl. 15. Útförinni verður
streymt.
og Hólmfríður
Fróðadóttir, f. 26.
febrúar 1975.
Hallveig ólst
upp í Mosfellsbæ
fram á unglings-
aldur og bjó síðar í
Reykjavík.
Eftir stúdents-
próf hóf hún störf
á Rannsóknar-
stofnun landbún-
aðarins í Keldna-
holti og vann þar við
margvísleg störf. Næsti við-
komustaður var Bændasamtök
Það var mikil tilhlökkun á
Dyngjuvegi 2 þegar von var á
Hallveigu systurdóttur minni
sumarið 1963. Hún var fyrsta
barnabarn foreldra okkar.
Fríða og Fróði bjuggu í næsta
nágrenni við okkur og þær mæðg-
ur voru tíðir gestir á Dyngjuveg-
inum. Þar var fylgst af aðdáun
með hverju skrefi í þroska hennar.
Við vorum eðlilega á því að hún
væri sérstaklega vel heppnað ein-
tak.
Ég var á góðum aldri og nýttist
vel sem barnapía og hafði gaman
af því.
Hallveig var snemma sjálfstæð
og dugleg og fékk undanþágu til
að koma á gæsluvöllinn í hverfinu
þegar hún var 18 mánaða. Annars
þurftu börn að vera tveggja ára til
að komast þangað.
Þegar kom að skólagöngu átti
hún auðvelt með nám og við fylgd-
umst áfram stolt með.
Hún kynntist ung hesta-
mennsku og heillaðist af þeim lífs-
stíl. Þegar hún fór út á vinnu-
markaðinn varð hún svo heppin að
fá starf tengt áhugamáli sínu.
Hestarnir og starfið í kringum þá
voru hennar líf og yndi og hún
eignaðist marga góða vini í hesta-
mennskunni.
Í starfi sínu átti hún stóran þátt
í þróun hugbúnaðar, WorldFeng-
ur, sem geymir margvíslegar upp-
lýsingar um íslenska hesta. Hún
var tengiliður við þá aðila sem
skrá upplýsingar um íslenska
hesta hvar sem er í heiminum.
Á seinni árum hafa barnabörn-
in af Dyngjuveginum hist reglu-
lega og þar var Hallveig hrókur
alls fagnaðar. Þau voru svo ánægð
með hvað þau náðu vel saman þótt
28 ár væru á milli Hallveigar og
Elíasar sem er yngstur. Þegar
þau hittust síðastliðið sumar lét
Hallveig sig ekki vanta þótt hún
hefði ekki úthald til að vera lengi.
Undanfarin ár hafa reynt mikið á
Hallveigu og þá kom í ljós hve
sterkur einstaklingur hún var.
Hún tók hlutskipti sínu af æðru-
leysi, var bjartsýn og gafst ekki
upp fyrr en í fulla hnefana.
Hallveig fékk góða umönnun
hjá mömmu sinni og systkinum en
þegar hún gat ekki verið heima
hjá sér þá flutti hún til mömmu
sinnar í lengri eða skemmri tíma.
Síðustu mánuðina var hún alfarið
hjá mömmu sinni sem sinnti henni
af alúð.
Að leiðarlokum langar mig að
kveðja Hallveigu með lokaerindi
ljóðs sem Sveinn Bjarman orti í
minningu Hólmfríðar Jónsdóttur,
langömmu Hallveigar.
Vertu nú sæl!
Vinir og frændur
klökkir kveðja.
Nei! Kom þú sæl!
Því góð minning
geymast skal
vori vígð
í vitund þeirra.
Björg Kofoed-Hansen.
„Vinir eru blóm í garði lífsins“
stendur einhvers staðar. Við erum
jú öll hluti af náttúrunni. Hallveig,
eða Veiga, var blóm í mínum
garði, eða öllu heldur tré. Það var
sumarið 1980, við vorum vinkon-
urnar í moldvörpuvinnu í Laugar-
dalnum þegar ró okkar var
skyndilega rofin. Einhver upp-
skrúfuð stelpa úr Árbænum kom-
in af flugstjórum og uppfinninga-
mönnum dirfðist að fullyrða að
þetta væri leiðinleg vinna, gat
bara sjálf verið leiðinleg. En hún
hætti ekki að banka á vinkon-
udyrnar, hafði pata af því að ég
væri sami hrosshausinn og hún og
hringdi á hverju kvöldi. „Einhver
Hallveig hringdi,“ sagði mamma.
En ef ég var heima var talað um
hesta í marga klukkutíma, hún var
nebblega ekkert uppskrúfuð og
þaðan af síður leiðinleg heldur eld-
klár og húmorísk og vel inni í öllu
sem viðkom hrossum. Það var því
oft kominn svipur á foreldrana
þegar síminn losnaði eftir marga
klukkutíma, ekki til farsímar þá.
Fyrr en varði var ég orðin heima-
gangur í Árbænum, styttra í hest-
húsið en af Smáragötunni, hreiðr-
aði um mig á gólfinu hjá Veigu,
hlustaði á þungarokk og malið í
henni þegar ég var að sofna. Það
var ristað brauð og kakó þegar við
komum heim skítkaldar úr hest-
húsinu seint og síðar meir og spa-
gettí úr Mikka Mús-bókinni um
helgar. Við leigðum saman hest-
hús nokkrar vinkonur og Veiga
fór að rækta, átti orðið leirljósan
graðhest, Dag, enginn af tegund-
inni homo sapiens nægjanlega
spennandi til undaneldis þó marg-
ir væru þeir til í tuskið. Svo Veiga
ræktaði bara hross, hafði kjarkinn
til að standa ein og óháð, eitthvað
sem margar konur þrá en treysta
sér ekki til. Hún átti líka Heklu og
alveg óvart var allt í einu komið
folald. Við vissum aldrei hvort það
var „alveg óvart“, fáum víst aldrei
að vita það. Svo fæddist Lynja í
hesthúsinu okkar Hilmars í Kópa-
voginum, líka „alveg óvart“ og
ræktunin hennar hélt áfram hjá
okkur eftir að við fluttum í sveit-
ina. Upp úr stóð, að öllum öðrum
ólöstuðum, eðalgæðingurinn Par-
dus, einstakur hestur þar sem
saman fór flugrúmur gæðingur og
pollrólegur traustur barnahestur.
Börnin mín elskuðu hann og mörg
börn fengu að njóta hans hér í
sveitinni. Hann læknaði kjarkleysi
fólks og gaf mörgum ljúfar stund-
ir því Veiga var ónísk á að lána
hann. Hún vann til verðlauna á
honum á mótum og Fanney dóttir
mín keppti á honum einnig, hafði
hann til umráða á sumrin, ekki há í
loftinu. Árin liðu og reiðgyðju-
félagið Skessessurnar varð til. Þar
varð Veiga fljótlega fullgildur fé-
lagi með sína einstöku skipulags-
gáfu sem okkur hinum er ekki öll-
um gefin, nauðsynlegur eignleiki
þegar heill hópur kvenna á öllum
aldri flandrar á hestum upp um
fjöll og firnindi. Haustið 2018 fór
Veiga að kenna sér meins í
mjöðminni sem síðar kom í ljós að
var beinkrabbi. Hún barðist eins
og ljón við þennan vágest og var
ótrúlega hress þrátt fyrir erfiða
baráttu. Nú hefur hún fengið frið.
Það var stutt á milli þeirra
„hjónanna“ Pardusar og hennar.
Nú eru þau saman á ný ásamt öðr-
um sem njóta sín áhyggjulaus í
„blómabrekkunni“.
Stefanía Sigríður Geirs-
dóttir (Stebba vinkona!).
Það er alltaf erfitt að sætta sig
við það þegar fólk í blóma lífsins er
hrifið burt úr þessum heimi. Það á
við nú, þegar Hallveig Fróðadóttir
hefur kvatt okkur eftir erfitt sjúk-
dómsstríð, sem hún tókst á við af
óbilandi bjartsýni, allt fram undir
það síðasta.
Leiðir okkar Hallveigar lágu
saman um árabil hjá Bændasam-
tökum Íslands. Þar var hún í essinu
sínu, sameinaði starfið við sitt
helsta áhugamál, hestamennsku og
hrossarækt.
Hallveig vann við skýrsluhald í
hrossarækt og annaðist frágang og
útgáfu skjala sem krafist er fyrir
útflutning hrossa. Þar reyndi sér-
staklega á nákvæmni, samvisku-
semi og þjónustulund; erindi út-
flytjenda bárust stundum með
litlum fyrirvara, og því var við
brugðið hvað Hallveig brást vel við
og lagði á sig til að afgreiða öll slík
erindi í tíma. Á þessum vettvangi
eignaðist hún marga vini sem
sakna hennar nú sárt. Hún var af-
bragðsstarfskraftur.
Á þessum tíma var þróað hjá
Bændasamtökunum skýrsluhalds-
forrit fyrir hross, World-Fengur,
sem þjónar hlutverki ættbókar fyr-
ir íslenska hestinn um heim allan
og er talið einstakt í sinni röð. Hall-
veig var mjög áhugasöm um þessa
þróun og tók virkan þátt í að kenna
á kerfið og kynna það jafnt inn-
lendum sem erlendum notendum,
bæði á hestamótum og með heim-
sóknum til Íslandshestafélaga
(FEIF) í nágrannalöndum okkar.
Alls staðar fór sama orð af starfi
hennar sem einkenndist af brenn-
andi áhuga, lipurð og léttri lund.
Hún var hvarvetna vel kynnt.
Þannig æxluðust mál að allt frá
2007 höfum við Hallveig, ásamt
fleira góðu fólki, deilt hesthúsi í
Víðidal. Hallveig átti frumkvæðið
og gerði okkur hinum þetta létt-
ara með því að hún sá að verulegu
leyti um alla hirðingu allt þar til
heilsan brást. Þarna kynntist ég
Hallveigu á nýjan hátt, og ekki
voru þau kynni lakari. Hestar
voru líf hennar og yndi og öll um-
gengni hennar við þá í samræmi
við það. Hún var vakin og sofin yf-
ir velferð þeirra og taldi ekkert
eftir sér í þeim efnum.
Svo var Hallveig líka góður fé-
lagi, glaðleg og umhyggjusöm,
alltaf tilbúin að létta undir með
manni ef þurfti. Við ornum okkur
nú við margar góðar minningar
um samverustundir í hesthúsinu,
útreiðartúra og ekki síst árlegan
„lokatúr“ sem endaði með grill-
veislu, þar sem allir lögðu eitthvað
til í fljótandi eða föstu formi. Þá
Hallveig
Fróðadóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KRISTINN REINHOLT
ALEXANDERSSON,
hljómlistarmaður og listmálari,
lést á heimili sínu föstudaginn 26. mars.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 21. apríl
klukkan 15. Einnig verður henni streymt frá
https://beint.is/streymi/kristinnalexandersson
Sigríður Jónsdóttir
Heiðar Kristinsson Pálína Ósk Hjaltadóttir
Marta Kristinsdóttir
Guðrún Jóna Sæmundsd. Grétar Jónsson
Kristinn Þór Steingrímsson Hulda Hjartardóttir
Jón Ómar, Alexander, Guðjón Ingi, Ágúst Hrafn,
Óliver Máni og Sigurbjörn Snær
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
RAGNHILDUR EINARSDÓTTIR,
Ragna frá Holtakotum, Grænumörk 5,
lengst af til heimilis á Heiðarvegi 11,
Selfossi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju
mánudaginn 19. apríl klukkan 13:30.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánasta fjölskylda og vinir
viðstödd. Athöfninni verður streymt á selfosskirkja.is
Elfa Bryndís Þorleifsdóttir Örn Sigurðarson
Þórmar Ragnarsson Jónína María Kristjánsdóttir
Heiðveig Ragnarsdóttir Henning Frederiksen
Jóhanna Ragnarsdóttir Bjarni Halldórsson
Eyrún Ragnarsdóttir Sigurður Már Guðmundsson
Einar Jónas Ragnarsson Petra Vijn
og fjölskyldur
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma,
systir og mágkona,
ERLA HAUKSDÓTTIR,
Kríuhólum 2,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi
mánudaginn 12. apríl. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju
miðvikudaginn 21. apríl klukkan 13.
Sérstakar þakkir til starfsfólks skilunardeildar og dagdeildar
geðsviðs Landspítalans fyrir góða umönnun.
Sigurbjörn Orri Úlfarsson Brynhildur Steindórsdóttir
Arna Sól Orradóttir Brynja Sól Orradóttir
Pétur Hauksson
Örn Hauksson Kara Jóhannesdóttir
Kevin Hauksson
Omar Magnusson
og aðrir aðstandendur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
STEFANÍA SVEINBJÖRNSDÓTTIR,
Miðvangi 4,
Hafnarfirði,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Hjúkrunarheimilinu Grund
31. mars. Útförin fer fram frá Garðakirkju þriðjudaginn 20. apríl
klukkan 13. Innilegar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilisins
Grundar fyrir umhyggju og hlýju í hennar garð. Vegna
samkomutakmarkana eru aðrir en nánasta fjölskylda beðnir að
hafa samband við aðstandendur óski þeir eftir að vera
viðstaddir jarðarförina.
Anna María Flygenring Tryggvi Steinarsson
Súsanna S. Flygenring
Sigurður Flygenring
barnabörn og barnabarnabörn
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 13-16 virka daga
Móðir okkar, amma og langamma,
SESSELJA LAXDAL
JÓHANNESDÓTTIR,
áður Skálagerði 15,
Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Grund
þriðjudaginn 6. apríl.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju miðvikudaginn
21. apríl klukkan 13.
Vegna fjöldatakmarkanna fá einungis að mæta
nánir ættingjar og vinir.
Jóhannes L. Harðarson
Haukur S. Harðarson
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELÍN ÞÓRDÍS ELÍSDÓTTIR,
Mýrarvegi 113, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 9. apríl.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 23. apríl kl. 10. Allir velkomnir og athöfninni verður
streymt á Facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju - beinar
útsendingar.
Aðstandendur afþakka blóm og kransa en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á SAK eða Krabbameinsfélag Akureyrar.
Kristín Kolbeinsdóttir Grettir Hjörleifsson
Jóhanna Valborg Kolbeinsd. Reynir Stefánsson
Kolbrún Lilja Kolbeinsdóttir Jón Jakobsson
ömmu- og langömmubörn
Elsku faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR BERNHARÐSSON,
Grænukinn 22,
Hafnarfirði,
lést á Landakoti 24. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Landakots fyrir góða
umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðbjörg Guðmundsdóttir Jón Gunnar Kristjánsson
Bernharður Guðmundsson Eygló Ingadóttir
Gísli Valgeir Gonzales Auður Björg Jónsdóttir
og barnabörn