Morgunblaðið - 17.04.2021, Side 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021
50 ára Sigrún er Hafn-
firðingur og býr á Holt-
inu. Hún er með BA í
frönsku og fjölmiðla-
fræði og menntaður
blaðamaður og kenn-
ari. Sigrún kennir sam-
félagsgreinar í Víði-
staðaskóla í Hafnarfirði.
Maki: Jón Bjarni Bjarnason, f. 1975, for-
ritari og einn af stofnendum leikja-
fyrirtækisins Arctic Theory.
Börn: Sara Elísabet, f. 2005, og María
Sif, f. 2010.
Foreldrar: Jórunn Jörundsdóttir, f. 1944,
fv. skrifstofumaður hjá Hrafnistu, og Geir
Hauksson, f. 1940, fv. flugvirki hjá Ice-
landair, búsett í Hafnarfirði.
Sigrún Erna
Geirsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú ert að læra heilmikið á sviði
vissrar lífskúnstar. Stundum borgar það
sig að hafa fyrir hlutunum, þá kanntu bet-
ur að meta þá.
20. apríl - 20. maí +
Naut Stundum virðist allt vera á móti
manni og þá er gott að flýja á vit dag-
draumanna. Passaðu að hafa nóg svigrúm
í dag.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Ný tækifæri standa þér opin og
það ríður á miklu að þú flýtir þér hægt og
kannir alla málavexti til fulls. Rasaðu ekki
um ráð fram á lokasprettinum.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Dragðu nú ekki lengur að taka
upp hollustu í þína tilveru. Stundaðu hug-
leiðslu og komdu ró á hug þinn.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú þarft að taka upp nýtt og betra
vinnulag og forðast að vera með allt á síð-
ustu stundu. Kannaðu rótina að þeim
hömlum sem verið er að reyna að setja
þér núna.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Ef þú hefur þín takmörk á hreinu
mætirðu skilningi annarra á leið þinni.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Ef þú ætlar að ná takmarkinu, þarftu
að gefa smáatriðum gaum, ekki síður en
þeim stóru. Gættu þess að ganga ekki á
hlut annarra.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú hugsar oftast um ástina,
sem eitthvað sem mun gerast eða hefur
gerst. Varaðu þig á því að láta ofurkraftinn
í þér eyðileggja fyrir þér sambönd.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú hefur í mörgu að snúast
og skalt fá fólk í lið með þér til að leggja
hönd á plóg því þá gengur allt eins og í
sögu.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Samkeppnin laðar ávallt fram
þína bestu eiginleika og það er eins og þú
vaknir af dvala. Komdu niður úr bleika
skýinu, varlega þó.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er gott að þiggja aðstoð
annarra þegar mikið liggur við en gleymdu
ekki að þakka hana þegar allt er afstaðið.
Fólk leggur eyrun við þegar þú talar.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er engin ástæða til þess að
leyna tilfinningunum, því þú átt ekki að
láta stjórnast af öðrum. Framkvæmdu
hlutina með þínu lagi.
hann átt í farsælu samstarfi við fé-
laga sinn Stefán Hilmarsson (Stebbi
og Eyfi) og saman fóru þeir til Róm-
ar 1991 fyrir Íslands hönd og tóku
þátt í Eurovisionkeppninni með lag
og texta Eyjólfs „Draumur um
keppni Sjónvarpsins og Landslagið.
Lög eftir hann hafa verið gefin út í
Sviss, Austurríki, Þýskalandi, Dan-
mörku, Svíþjóð og Suður-Afríku.
Eyjólfur hefur komið fram víða
einn með gítarinn og einnig hefur
E
yjólfur Kristjánsson
fæddist 17. apríl 1961
Reykjavík og ólst upp í
Vogahverfinu. Hann
æfði handbolta og fót-
bolta með Þrótti upp í 3. flokk. „Ég
fór þá að stunda meira skíði, var öll
sumur uppi í Kerlingarfjöllum að
kenna á skíðum. Ég hætti í hand-
boltanum bara út af tónlistinni.“
Eyjólfur lauk barna- og grunn-
skólaprófi frá Vogaskóla 1977, stund-
aði nám í Menntaskólanum í Reykja-
vík í fjóra vetur og gekk einnig í
Tónlistarskóla FÍH og stundaði nám
í klassískum píanóleik hjá Jakobínu
Axelsdóttur 1982-1985 og lauk þar 3.
stigs prófum.
Eyjólfur var skíðakennari við
Skíðaskólann í Kerlingarfjöllum árin
1978-1991 með hléum þó vegna tón-
listarstarfa sinna.
Eyjólfur hefur verið atvinnu-
tónlistarmaður frá árinu 1984, en
ferilinn hóf hann í Vestmannaeyjum
ásamt hljómsveit sinni Hálft í hvoru.
„Það var svona í kringum 1980 sem
ég áttaði mig á því að tónlistin gæti
hugsanlega orðið ævistarfið. Ég fór
þá að spila meira opinberlega og árið
1984 vorum við í Hálft í hvoru ráðnir
á bjórlíkiskrá og spiluðum þar mikið
og á fínum launum. Árið eftir flyt ég
að heiman, og var þá búinn að búa
hjá pabba og mömmu í 24 ár.“
Gegnum tíðina hefur Eyjólfur leik-
ið með ýmsum hljómsveitum. Með
hljómsveitinni Hálft í hvoru hefur
hann sent frá sér tvær plötur og með
hljómsveitinni Bítlavinafélaginu sex
plötur. Eyjólfur hefur einnig sent frá
sér sjö sólóplötur á ferlinum, eina
plötu ásamt Bergþóri Pálssyni óp-
erusöngvara og tvær plötur ásamt
Stefáni Hilmarssyni. Eyjólfur hefur
sungið inn á ótal aðrar plötur og
geisladiska, átt fjölmörg vinsæl jóla-
lög sem enn eru leikin í útvarpi, tekið
þátt í vinsælum tónlistarsýningum á
Broadway í Mjódd, Hótel Íslandi,
Hótel Sögu og í Sjallanum á Akur-
eyri.
Eyjólfur hefur verið í fremstu röð
dægurlagasöngvara og -höfunda um
árabil. Hann hefur átt lög í efstu sæt-
um vinsældalista og unnið tónlistar-
keppnir hér heima svo sem Söngva-
Nínu“, sem hefur fest sig í sessi sem
eitt allra vinsælasta dægurlag Ís-
landssögunnar.
Árið 2018 fór Eyjólfur til Luton á
Englandi og nam þar tannhvíttunar-
fræði og hefur starfað sem slíkur á
Eyjólfur Kristjánsson tónlistarmaður – 60 ára
Fjölskyldan Frá vinstri eru Stefanía Agnes, Eyjólfur, Guðný og Sandra.
Mörg eru Eyfalögin orðin
Morgunblaðið/Eggert
Stebbi og Eyfi Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson hafa átt farsælt
samstarf í gegnum tíðina, hér á 17. júní-tónleikum árið 2006. Afmælisbarnið Eyfi.
40 ára Una er Reyk-
víkingur og býr í Smá-
íbúðahverfinu. Hún er
fatahönnuður að
mennt, áfengis- og
vímuefnaráðgjafi og
sálfræðinemi. Una er
ráðgjafi í VoR-teymi
hjá Reykjavíkurborg.
Systkini: Tvíburabróðirinn Hólmsteinn,
Erla, Ingveldur, Hugrún, Sigga Sóley og
stjúpbróðirinn Guðlaugur.
Börn: Sara Kamban, f. 2004, og Hugrún
Hlíf, 2011.
Foreldrar: Una Árnadóttir, f. 1949, fv.
skrifstofustjóri á lögfræðistofu, búsett í
Reykjavík, og Kristján Össur Jónasson, f.
1934, d. 2014, viðskiptafræðingur.
Una Hlín
Kristjánsdóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Jökull Kjartansson fæddist
10. desember 2020 kl. 17.28. Hann vó
3.880 g og var 54 cm langur. Foreldrar
hans eru Kjartan Kjartansson og
Guðný Hrafnkelsdóttir.
Nýr borgari